Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 38

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 38
ráöiö þessu." Ég spurði þá hver viö- brögðin heföu orðið. „Okkur fannst nokkrir litanna vera nokkuð djarfir, en þá létum við bara mála yfir þá með öðrum litum." Pá finnst mér vakna sú spurning, — hver á að ráða? Á að ráða einhvern til þess að velja liti, — aðila sem virkilega hefir vit á slíku, — eiga málararnir að ráða, — eða starfs- fólkið? Starfsfólk kemur og fer, — sá næsti segist ekki vilja þessa liti sem fyrir voru, — á að mála aftur? Þarna þarf einhvern ábyrgan aðila, sem ákveður þetta í eitt skipti fyrir öll. I skólum sem byggðir eru í dag er viðurkenndur ákveðinn hundraðs- hluti af byggingarkostnaði til list- skreytinga og ættu hönnuöir að fylgja því mjög vel eftir. Ekki veit ég til þess að þetta sé þó viðurkennt varðandi sjúkrahús. Að mínum dómi ber umhverfi barnadeildarinnar á Landakots- spítala af, e.t.v. vegna þess að hún hefir færri sjúkrarúm. Einnig má geta þess í þessu sambandi að list- skreytingar eftir Gunnar Bjarnason leiktjaldamálara, eru á tlestum sjúkrastofum, en þær setja mjög hlýlegan og skemmtilegan blæ á stofurnar. Því miður er ekki slíkt að sjá í setustofu né leikstofu. Erlendis hefir nú yfirleitt verið komið fyrir dýrabúrum t.d. með kanínum, marsvínum og hömstr- um. Spurning vaknar um ofnæmi hjá börnum. Nú er sagt að börnin finni þetta sjálf svo og starfsfólkið, ekki síst ef allir vinna saman, bæði börn og hjúkrunarstarfslið. Fiska- búreru einnig vinsæl. Væri ekki hugsanlegt að útbúa gróðurhús, sem börn get heimsótt og jafnvel fengið lánaðar plöntur, — plöntur sem börnin geta farið með á viðkomandi sjúkrastofu. Ef slíkt á sér stað fer að vakna þessi sígilda spurning um bakteríur, — bæði er varðar mold og dýr. Ég held að læknar og hjúkrunarfræðingar séu að miklu leyti hættir að hugsa eins mikið um bakteríur í þessu sambandi og áður. í viðtölum við starfsfólk á áður- nefndum barnadeildum hér á landi kom í ljós, að hér eru leyfð fiskabúr og plöntur, — þó innan glers. Dýr að öðru leyti eru ekki leyfð, — en væri ekki hægt að leyfa þau. — þá einnig innan glers. í þessu sambandi vakti það athygli mína, aö á Barnaspítala Hringsins er börnum leyft að leika sér með sand í sandkassa. Hvað þá með bakteriur? Hönnuðir ættu einnig að taka tillit til barna varðandi gluggahæðir, — þau verða einnig að geta notiö út- sýnis. Barnið og sjúkrahúsið. Þetta efni eitt, gæti orðið aðalefni á heilsdags- ráðstefnu og vissulega væri tilefni til þess, — jafnvel þótt ekki væri barnaár. Hönnuðir þurfa samvinnu við lækna, hjúkrunarfræðinga og fóstrur til þess að geta hannað slíkar deildir eða verið ráðgefandi um liti. Ég sakna þess að þessir aðilar, læknar og hjúkrunarfræðingar skuli ekki hafa haft tækifæri til þess að taka virkari þátt í þessari ráðstefnu. Að lokum. Fimm ára drengur, sem lá á sjúkrahúsi, var að hlaða og byggja úr kubbum, þegar hjúkrun- arfræðingur kom að og spurði hvað hann væri að byggja. Svarið var: „Ég er að byggja fangelsi þar sem enginn kemst út.“ Er það þannig, sem börn upplifa sjúkrahúsin. Sjúkrahús eiga ekki að vera hönnuð né útbúin þannig að börnin hafi það á tilfinningunni að þau séu í fangelsi eins og þessi fimm ára drengur. Heimildir: „Sygeplejersken" Tidskrift for Sygeplejersker. Blöðfrá 1978 og 1979. „Hjúkrun" Tímarit Hjúkrunarfélags íslands. Blöðfrá 1979. Foreldrafræðsla Framhald af bls. 1 / Lokaorð Námskeiðin eru aðeins auglýst á mæðradeild Heilsuverndarstöðv- ar Reykjavíkur og tímasett eftir venjulegan vinnutíma. Besti tíminn fyrir konuna að byrja í svona námskeiði er á tímanum frá 5.-7. mánuði meðgöngu. Undanfarin ár hefur það aukist jafnt og þétt að faðirinn sé við- staddur fæðingu barns síns ef það er vilji beggja foreldranna og fæðingin fyrirsjáanlega eðlileg. í Fæðingardeild Landspítalans var sú nýbreytni tekin upp um síðustu áramót að sérstakur heimsóknar- tími er kl. 20.30 til kl. 21.00, ætlað- ur feðrunum til að vera með barni sínu og móður þess. Á Fæðingarheimili Reykjavíkur- borgar hefur hinsvegar alltaf verið sérstakur „pabbatími." Mikilvægt er að hvetja foreldrana til að afla sér meiri almennrar fræðslu og lestrarefnis en hægt er að veita á svona stuttu námskeiði. Efnismeðferð verður samt að vera skýr og einföld og styðja þarf við sjálfstraust foreldranna en ekki brjóta það niður. Ef til vill náum við aðeins hluta af því takmarki sem við höfum sett okkur en erum alltaf með fræðslu- efnið í endurskoðun. Við reynum að taka til athugunar þær ábendingar sem við fáum og virðast til bóta, og vonum að eftir eigi að koma í Ijós, að óbornum ís- lendingum verði þessi fræðsla að góðu gagni. □ 26 HJÚKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.