Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 40

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Side 40
Islensku þátttakendurnir eru fremstir á myndinni. Frá vinstri: Svanlaug Árnadóttir formaður Hjúkrunarfélags íslands, Ása St. Atladóttir varaformaður félagsins, Helga Bjarnadóttir hjúkrunarnemi, Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Steinunn Sigurðar- dóttir hjúkrunarforstjóri Sjúkrahúss Akraness, Áslríður Karlsdóttir Tynes heilsuverndarhjúkrunarfrœðingur, Anna María Andrésdóttir hjúkrun- arfrœðingur, Jón Karlsson hjúkrunarnemi og Ingibjörg Árnadóttir ritstjóri tímaritsins Hjúkrun. Fyrir aftan, við ncestu tvö borð sitja sœnsku þátttakendurnir og síðan þeir dönsku. Gagnstætt til vinstri sátu Finnar og síðan Norðmenn. Tilraunamiðstöð — Barnsburð- arleyfi í Finnlandi hefur verið komið á fót tilraunamiðstöð varðandi tölvu- væðingu innan sjúkrahúsa. Stöð þessi kemur væntanlega til með að marka línur í framtíðarþjónustu á þessu sviði þar í landi. Finnska hjúkrunarfélagið færði því danska hjúkrunarfélaginu sérstakar þakkir fyrir framgang þess og fram- lag, en tölvuvæðing innan sjúkra- húsa var aðalumræðuefni fulltrúa- fundarins 1978. „Án þeirra upplýs- inga sem þar komu fram hefðum við ekki verið nægilega undurbúin til þátttöku í þessu verki, en við höf- um verið með í skipulagningunni frá byrjun," sagði fulltrúi finnska félagsins. Það kom einnig fram hjá Finnum að barnsburðarleyfi er 9 mánuðir fyrir móður og 12 dagar fyrir föður. Kostnaður— Hagnaður Vegna umræðuefnisins „Forgangs- verkefni innan heilbrigðisþjónust- unnar” voru tilkallaðir áhrifaaðilar heilbrigðisþjónustu hvers lands sem fyrirlesarar. Hjúkrunarfélag ís- lands fór þess á leit við Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóra ríkisspítala að hann tæki það verk- efni að sér og varð hann við þeirri beiðni. Hann fjallaði síðan um það hvaða þættir heilbrigðisþjónust- unnar ættu að hafa forgang og sagði m.a.: „Aðalatriði við heilsugæsluna til langs tíma litið, eru fyrirbyggj- andi aðgerðir sem geta vafalaust sparað verulegan kostnað vegna heilbrigðisþjónustu. Sé aftur á móti litið til stutts tíma, er augljóst að aukin heilsugæsla mun ekki draga úr kostnaði vegna sjúkrahúsþjón- ustu. Við getum því ekki vænst þess að sjá fjárhagslegan árangur auk- innar heilsugæslu eftir stuttan tíma en langtímaáætlunin gæti tekist með góðri samvinnu heilbrigðis- þjónustunnar innan sjúkrahúsa og utan,“ sagði Davíð Gunnarsson að lokum. Það vakti athygli á fundinum er Davíð Gunnarsson snaraði yfir á sína ágætu sænsku, kafla úr lögum um heilbrigðisþjónustu frá 1978, þar sem fram kemur „hjúkrunar- stjóri skipuleggur hjúkrun á deild- inni í samráði við hjúkrunarfor- stjóra og ber ábyrgð á henni“, því íslenskir hjúkrunarfræðingar eru þeir einu á Norðurlöndum sem hafa slík ákvæði í lögum. Stjórnarkjör Toini Nousiainen frá Finnlandi var endurkjörin formaður SSN, Kirsten Stallknecht, Danmörku endurkjör- in 1. varaformaður, Svanlaug Árnadóttir var á fundinum kjörin 2. varaformaður samtakanna. Kosning er til eins árs í senn. 28 HJUKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.