Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Blaðsíða 44
Hverjar voru helstu umrœður og
niðurstöður í þeim hópi sem þú
starfaðir í?
— Spurningin sem hópurinn fjallaði
um var „Hvernig á að byggja upp og
þróa samvinnu milli heilsuverndar/
heimilishjúkrunar og sjúkrahús-
anna?“
Allir í hópnum voru sammála um
að upplýsingamiðlun frá sjúkrahús-
unum til heilsuverndar/heimils-
hjúkrunar væru langt frá því að vera
fullnægjandi. Rætt var um ýmislegt
til úrbóta. M.a. skyldi reynt að hafa
áhrif á stjórnendur, stjórnmála-
menn, lækna o.fl. um mikilvægi
þess að samstarfið milli heilsu-
verndar, sjúkrahúsa og heima-
hjúkrunar geti orðið að veruleika.
Tryggja verði með lögum að tjá-
skipti milli ólíkra meðferðaraðila
séu virk svo að tryggt verði áfram-
hald í meðferð sjúklinga/skjól-
stæðinga eftir af sjúkrahúsi kemur.
Hópurinn taldi mikilvægt: — að
skipuleggja verði samvinnu milli
hinna ólíku meöferðaraðila — að sá
hjúkrunarfræðingur sem tæki þátt í
þeirri skipulagningu, hefði fram-
haldsmenntun í stjórnun.
Hvað áleit hópurinn að vœri til
ráða?
— Breyta innihaldi hjúkrunar-
menntunarinnar þannig að meira sé
miðað við heilbrigði og viðhald
þess.
Reglubundnar ráðstefnur og nám-
skeið til aö viðhalda skilningi og
þekkingu á starfssviði hópanna inn-
an hjúkrunarþjónustunnar.
Heimsóknir og samstarf milli þeirra
sem vinna í heilsuvernd/heima-
hjúkrun og þeirra sem starfa á
sjúkrahúsum.
Fljótlega kemur tölvuvæðing, sem
upplýsingamiðill inn í myndina.
Niðurstaða hópsins var því að
ítreka að gera skuli hjúkrunarfræð-
ingnum kleift að hafa aukin áhrif á
þróunina innan síns sérsviðs.
Ingibjörg R.
Magnúsdóttir
Ase Andersson, formaður Árósa-
svæðis hjúkrunarfélagsins danska
bar fram eftirfarandi fyrirspurn til
Ingibjargar R. Magnúsdóttur deild-
arstjóra og námsbrautarstjóra
hjúkrunarfræði í Háskóla íslands,
en Ingibjörg sat fundinn sem á-
heyrnarfulltrúi:
Hvert er viðhorf gagnvart hjúkrun-
arfræði í Háskóla Islands og hverer
reynsla af starfi hjúkrunarfræðinga
þaðan.
Ingibjörg fór nokkrum orðum um
hjúkrunarfræðinám í háskólanum
og rakti aðdraganda þess. Hún
sagði að háskólinn væri búinn að
brautskrá 36 hjúkrunarfræðinga
með BS gráðu. Nokkrir þeirra
hefðu haldið áfram í háskólanum
og lokið námi í uppeldisfræðum til
kennsluréttinda, nokkrir væru við
nám eða störf erlendis og aðrir við
störf í skólum, sjúkrahúsum og við
heilsugæslu. Enn væri of snemmt að
leggja dóm á störf hjúkrunarfræð-
inga BS. Augljóst væri, að þeir væru
fúsari á að taka að sér kennslustörf,
en hjúkrunarfræðingar hafa verið
til þessa, en flestir vildu afla sér
meiri reynslu í starfi áður en þeir
tækju að sér stjórnun. Að því leyti
væru þeir ekkert frábrugðnir öðr-
um einstaklingum nýkomnum frá
prófborði. Þá nefndi Ingibjörg að í
nýjum lögum um heilbrigðisþjón-
ustu (frá 1978) væri kveðið á um
ábyrgð hjúkrunarfræðinga og
stjórnun hjúkrunar og að „aukin á-
byrgð í starfi krefðist meiri þekking-
ar og betri menntunar. ‘ ‘
Móttaka danska félagsins
Dansk Sygeplejerád tók að vanda
á móti sínum norrænu gestum með
mikilli reisn. Sá stutti tími sem var
til lystisemda var notaður til þess að
bjóða þátttakendum að skoða hina
fornu Jelling kirkju. Þar var fyrsta
kirkjan reist 960. Við kirkjuna
standa stórbrotnir rúnasteinar frá
sama tíma, sem eru merkustu stein-
ar Danmerkur.
Ennfremur var boðið í Legoland,
sem er Legokubbaborg með öllu
tilheyrandi. Þar mátti sjá bæi, borg-
ir og minnismerki víðs vegar að úr
heiminum. Við fslendingarnir
söknuðum þó þess að þar var
ekkert að finna frá íslandi. Úr því
mætti bæta t.d. með fyrirmynd frá
Vestmannaeyjum eða öðrum á-
móta þekktum stöðum. Ennfremur
bauð danska hjúkrunarfélagið til
hátíðarkvöldverðar. Við það tæki-
færi var fráfarandi stjórnaraðilum
þeim Gerd Zetterström Lagervall
Svíþjóð, Monu Donner Finnlandi
og síðast enn ekki síst Maríu
Pétursdóttur þakkað margra ára
ötult starf í þágu SSN. María
Pétursdóttir var því miður ekki
viðstödd til að taka á móti gjöf og
þakklæti frá samtökunum en Svan-
laug Árnadóttir, formaður HFÍ,
veitti gjöfinni viðtöku og var hún
beðin fyrir hinar bestu kveðjur og
þakkir til Maríu.
Menntunarmál rœdd á íslandi
1980
Næsti fulltrúafundur verður hald-
inn á Hótel Loftleiðum í september
1980. Aðalumræðuefni fundarins
verður: menntun hjúkrunarfræð-
inga á Norðurlöndum og hvort
menntunin uppfylli þær kröfur
sem gerðar eru til hjúkrunarfræð-
inga. □
32
HJÚKRUN