Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 46

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 46
Gerríe Kilburn, lektor Atvinnu- heilbrigðismál Nýlega var stödd hér á landi Gerrie Kilburn, hjúkrunarfræðingur. Hún er kennari við City College School of Nursing City University í -New York. Hélt hún erindi á vegum Hjúkrunarfélags íslands í Hjúkrun- arskóla íslands 25. september sl. Fjallaði það um atvinnuheilbrigðis- mál og var fyrirlesturinn auglýstur og opin öllum hjúkrunarfræðingum og nemum. Flestir hafa einhverja hugmynd um atvinnusjúkdóma, en lítt er kannað hversu mörg sjúkdómstilfelli megi rekja til atvinnu eða vinnustaða manna. Um fyrirbyggjandi aðgerðir og störf hjúkrunarfræðinga á vinnu- stöðum höfum við ekki orð yfir á íslenku annað en heilsuvernd, en á ensku kallast það occupational health nursing (OHN). Þar sem þessi mál eru lítt þróuð hér á landi, þykir okkur viðeigandi að kynna í stuttu máli það sem Gerrie Kilburn fjailaði um í erindi sínu. Skilgreining ameríska hjúkrunar- félagsins á OHN er: að beita hjúkr- unarfræði í framkvæmd til að auka, endurbæta og viðhalda heilsu starfsfólks á vinnustöðum. Hjúkrunin beinist að starfsmannin- um og heilsu hans á vinnustað. Til þess þarf hjúkrunarfræðingurinn sérþekkingu tengdri vinnuaöstöðu eða umhverfi. Árið 1888 var fyrsti hjúkrunar- fræðingurinn á þessu sviði ráðinn af kolaframleiðendum í Pennsylv- aníu. Nú stunda 20 þúsund hjúkr- unarfræðingar heilsugæslu á vinnu- stöðum 80 miljóna starfsmanna. Flestir hafa þeir 3ja ára hjúkrunar- nám, nokkrir B.S. próf og fáeinir 2ja ára nám. Starf þeirra er mismunandi mikið, en flestir eru einir á sínum vinnu- stað. Helstu viðfangsefni þeirra eru: 1) að vinna með stjórnendum og lækn- um við að skipuleggja og fram- kvæma starf heilsugæsludeildar- innar, 2) velja vörur, tæki o.fl, 3) halda skýrslur um öll óhöpp sem koma fyrir, 4) þjálfa og stjórna að- stoðarfólki við heilsugæsluna, 5) taka þátt í slysavörnum og aðgerð- um sem fyrirbyggja atvinnusjúk- dóma, 6) meðferð slysa, 7) vísa starfsmönnum til annarra aðila ef þörf gerist, 8) taka þátt í læknis- skoðunum, 9) leiðbeina starfsfólki, 10) endurhæfa þegar þörf er á, 11) fylgjast með slysagildrum á vinnu- stöðum, 12) taka þátt í og fram- kvæma rannsóknir. Hafa ber í huga að markmið fyrir- tækisins er að framleiða eða veita ákveðna þjónustu, frekar en að tryggja heilsufar starfsfólks. Flestir starfsmanna eru heilbrigðir en margir atvinnusjúkdómar, og þá oftast af völdum mengunar, geta haft langan meðgöngutíma, 20-30 ár s.s. asbestosis o.fl. En þegar menn vinna lengi á sama vinnustað gefst ákjósanlegt tækifæri til að fylgjast með heilsufari og þörfum þeirra. Formleg kennsla í occupational health nursing í Bandaríkjunum er lítil eða engin ennþá, en hægt er að taka það sem valgrein á B.S. stigi í háskóla. Því er spáð að þessum þætti heil- briðisþjónustunnar verði gerð betri skil í námi og framkvæmd í framtíð- inni vegna aukinnar þekkingar. En ekki þarf sérmenntun til þess að sjá samræmið milli heilsu starfsfólks og aðbúnaðar á vinnustað. Þótt áheyrendur Gerrie hafi ekki fyllt marga tugi, þá vakti erindið mikinn áhuga viðstaddra og stóðu umræður í rúma klukkustund á eft- ir. Kunnum við Gerrie Kilburn bestu þakkir fyrir fróðlegt og skemmtilegt erindi. A.S.I Frá fyrirlestri Gerrie Kilburn. Ljósm.: Sigrún Hulda Jónsdóttir 34 HJÚKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.