Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 51

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1979, Page 51
Fækkun starfsfólks á sjúkrahúsum Síðastliðna 2-3 mánuði hefur verið starfandi nefnd með fulltrúum flestra starfshópa, sem vinna á sjúkra- húsum. Nefnd þessi tók til starfa vegna boðskapar stjórnar- nefndar ríkisspítalanna í júlí sl. um að fækka ætti starfsfólki á sjúkrahúsum. Nefndin einsetti sér að reyna að komast að því, hvernig standa ætti að þessum fækkunum, hvaða starfsfólki er ofaukið og hvar eigi að skerða þjónustu við sjúklingana, en það hlýtur að verða eðlileg afleiðing starfsfólksfækkunar. Til þessa hefur verið erfitt að fá svör við þessum atrið- um, þrátt fyrir ýtarlegar tilraunir. 5. nóv. var haldinn opinn fundur að Hótel Sögu og þangað boðið ýmsum ráðamönnum, sem þarna fengu tækifæri til að svara fyrir sig, auk þess sem umræður voru opnar. Troðfullur Súlnasalur sýndi svo ekki var um villst, að starfsfólk sjúkrahúsanna lét þetta mál sig miklu skipta. Fyrirlesari af hálfu HFÍ var Þuríður Backman. Á fundinum var m.a. á það bent, af hálfu starfsfólks, að enginn liti neikvætt á aukna hagræðingu og breyt- ingar þar sem þeim væri við komið. Rannsóknir þyrftu þó að liggja fyrir, sem sýndu og sönnuðu að slíkt ætti ekki eftir að koma niður á þjónustunni við sjúka. Ekki hefur verið hafist handa varðandi niðurskurð þennan, enn sem komið er. Málið er enn í athugun og mun nefndin starfa áfram. Fundarstjórar voru hjúkrunarfræðingarnir Ingibjörg Helgadóttir og Jóna V. Höskuldsdóttir. Á fundinn kom sögsveitin Kjarabót og flutti brag sem saminn var af þeim félögum í tilefni fundarins, við lög úr Kardimommubænum, og fer hann hér á eftir: KARDIMOMMURÍKIÐ Við erum stödd í Kardimommuríkinu. Þar hefur verið gripið til mikilla sparnaðarráðstafana. Við heyrum fyrst í niðurskurðarnefndinni: (lag: Við læðumst hægt um laut oggil ...) Á spítölunum spörum viö og splæsum ekki krónu sjá tillt þetta Sóknarlið þœr Siggu, Möggu og Jónu. ídrulluverkin dygði ein þótt deildin yrði ekki eins hrein. Þófœkkum við aldrei um ofeða van hvorki kratar né kommar né íhaldið. Við nálgumst hœgt um næturbil með niðurskurðarhnífa, ef sjúkraliða sjáum við síst þeim munum hlífa, og flesta þessa fræðinga við flokkum ei sem gæðinga og aflífum þá eins og afsláttarhross bæði háskólamenntaða og hins'egin. Þá víkur sögunni að lækninum. Hann kemur til vinnu sinnar á skurðstofugangi nokkru eftir að sparnað- urinn hófst og er orðinn langþreyttur á ástandinu. Doktor Saxi: Hvar er húfan mín, hvar er handklæðið, hvar er hjúkkan mín, sem á að standa mér við hlið, hvar erskammelið, hvar erskurðborðið, því að skera þennan sjúkling þolir enga bið, það var lán að enginn lést hjá mér í gœr. HJÚKRUN 39

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.