Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Side 3

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Side 3
Hjúkrunarfræðingur við störf sín á Barnaspitala Hringsins. Ljósm.: IngibjörgÁrnadóttir. Litgreining: Prentmyndastofan. 3.-4. tölublað- nóvember 1980 56. árgangur ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622. RITSTJORN: ÁNNA S. INDRIÐADÓTTIR, SÍMI 22038. ÁSLAUG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 27417. JÓNA GUÐMUNDSDÓTTIR, SÍMI 22458. AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING: INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622. SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, SlMI 15316 OG 21177. BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA. endurprentun bönnuð án leyfis ritstjóra. PRENTUN: PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF. EFNISYFIRLIT Hjúkrunarferli .......................... 2 Fyrirbyggjandi augnlækninsþjónusta ......14 Minning .................................17 Tilfinningar og hegöun foreldra fatlaöra barna .. 18 Menntun hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum ... 20 Fréttir og tilkynningar .................26 Brautskráning frá HSÍ ...................28 Ritstjórnarspjall Að nýafstöðnum kjarasamningum vakna ýmsar spurningar um hvað við vorum að samþykkja. Nú munu margir hugsa að of seint sé að fjalla um þessi mál, þegar allt er afstaðið. En eftir ár eru aftur lausir samningar, svo ekki veitir af að fara að huga að þeirri ,,baráttu.“ Við síðustu samninga samþykktum við launahækkun um 3-3,5% á 10.-15. Ifl. og 1-2% á 15.-17. Ifl., þegar kjaraskerðing frá síðustu samningum er orðin um 20%. Þeir sem unnu að gerð samninganna viður- kenna að 14 þúsund krónunum verði búið að marg- stela frá okkur á samningstímabilinu. Lögð var áhersla á ýmsar félagslegar bætur, s.s. Iífeyrissjóðs- og atvinnuleysisbætur. En eru kjarasamningar hinn rétti vettvangur til að semja um almenn mannréttindi og hvert erþá hlutverk lýðræðiskjörins alþingis? Ekki eru allir félagsmenn einhuga um veru okkar í BSRB og á hverjum kjaramálafundi félagsins er sú spurning borin upp, hvern hag við höfum af henni. Þess má geta að greiðsla HFÍ til BSRB er á þessu ári ca. 15 milljónir. Hver er staða okkar innan BSRB? Erum við látnar gjalda þess að vera kvennastétt? í athyglisverðri grein í Ásgarði, 2. tölubl. mars ‘80, eftir Helgu Ólafsdóttur bókavörð, ,,Um konur og launaflokka," sýnir hún með súluriti skiptingu karla og kvenna í launaflokka. Þar kemur fram að konur eru í miklum meirihluta í lægri launaflokkunum. Hún segir m.a.: „Konur eru röskur meirihluti félaga innan BSRB, en annars flokks félagar, vegna þess að við samningaborðið hefur kvennastéttum alltaf verið fórnað og á því virðist ekkert lát." öllum störfum fylgir ábyrgð, en erum við sáttar við það að þau séu metin til launa eftir kynferði? Nokkur deyfð hefur verið yfir umræðum um kjaramál innan félagsins, nema ef væri innbyrðis metingur um launaflokka, og e.t.v. er árangurinn í réttu hlutfalli við það. Viljum við brýna ykkur til að hugleiða stöðu okkar í heild sem stéttarfélags. Jóna Guömundsdóttir HJÚKRUN 3--*/«o - 56. árgangur 1

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.