Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Blaðsíða 10
Þessar upplýsingar segja okkur
mikið um líf barnsins. við kynnumst
þörfum þess. við hvernig lífsskilyrði
það býr og hvers má krefjast af því.
Þannig getum við myndað okkur
skoðanir á ástandi barnsins og
hvernig það er undirbúið andlega
fyrir sjúkrahúsleguna.
Þeir sem annast barnið mest á
sjúkrahúsinu eru öruggari í um-
gengni við það og þurfa ekki að
spvrja hvern annan og vera í vafa.
Það er hægt að ganga beint til verks
og gera það fyrir barnið sem það er
vant. t.d. ef það vaknar á nóttunni
eða getur ekki sofnað á kvöldin.
Samband milli hjúkrunarfræðings.
sjúklings og aðstandenda verður
mun betra. Þetta myndar gagn-
kvæmt traust.
Móðir leitar frekar til þeirrar
manneskju sem gefur sér tíma til að
setjast niður og hlusta og sem hefur
áhuga á barninu. Þetta veitir að-
standendum örvggi. þeir geta betur
t jáð sig og eru ekki eins hræddir við
að fela okkur umsjá barnsins.
Hvað barninu sjálfu viðvíkur. þá er
það andleg röskun að meira eða
minna leyti að fara úr sínu daglega
umhverfi inn á sjúkrahús. Á þetta
aðallega við um börn á aldrinum
1 árs til 5 ára. þar sem ekki er hægt
að útskýra þetta fyrir þeim. þau eru
hrædd og þau vantar eitthvert hald-
reipi.
Þetta er oftast hægt að yfirvinna á
auðveldan hátt. t.d. ef barnið kynn-
ist betur einni sérstakri manneskju.
I mörgum tilfellum myndar það
frekar tilfinningatengsl og er líkara
sjálfu sér ef það sér að fólkið í
kringum það hagar sér líkt og fólkið
heima og gerir hlutina líkt.
Við byrjuðum að kynna upplýs-
ingasöfnunina á deildinni í mars
síðastliðnum og var þetta síðan út-
skýrt fyrir starfsfólkinu öllu. lið
fyrir lið. þar til allir skildu tilgang-
inn. Ég held því fram að þetta hafi
tekist vel hjá okkur og sérstaklega
H HJÚKRUN 3 '4/ao - 56. árgungur
vegna þess að allir voru með frá
byrjun og skildu tilganginn.
Jafnt og þétt hefur þetta orðið liður
í bættri hjúkrun á deildinni og þykir
sjálfsagt og ekki hægt að komast hjá
því að hafa þetta í notkun.
I byrjun voru ýmsir erfiðleikar sem
að steðjuðu. Starfsfólkið var ekki á
eitt sátt um gildi skrárinnar. en
þegar á reyndi og smávegis reynsla
kom á þetta. sá það hvað mikið
gagn það gerði. Einnig þurfti að út-
skýra hvert atriði vel til að skilja
þýðingu hvers þeirra um sig. Fyrst í
stað voru aðstandendur spurðir um
öll atriði strax við komu og gat það
tekið dágóðan tíma. síðan kom
læknir sem spurði mikiö um sömu
atriðin. Fannst fólki töluvert þreyt-
andi að svara sömu spurningunni
mörgum sinnum. Við fikruðum
okkur áfram og tókum upp þann
hátt að útfvlla aðeins einstaka þátt
fyrst og setjast síðan niður með
barninu og móðurinni. þegar þau
voru búin að átta sig á deildinni og
mesta spennan við innlögnina var
yfirstaöin. Gott er að setjast niður á
einhverjum rólegum stað. t.d. nota-
legu horni í leikstofunni. þegar
hvíldartíminn er og tala við barnið.
fá upplýsingar og kynnast því.
Oft er það hópstjóri þeirrar stofu
sem barnið leggst á. sem fær þetta í
hendur.
Mjög nauðsynlegt er að lækpar not-
færi sér upplýsingarnar úr skránni.
bæði til að þurfa ekki að tvítaka
spurningarnar til foreldra og líka til
að samstarfið sé gott. Sumir læknar
hafa séð notagildi skrárinnar og
notfæra sér hana. aðrir ekki ennþá,
en það kemur með tímanum.
Jafnt og þétt er upplýsingasöfnunin
orðin að raunveruleika hjá okkur
og er þetta skref í átt að því sem
koma skal. þ.e. ferlinu sjálfu.
Með tímanum hefur það sannast
fyrir okkur að þetta er skref að auk-
inni og bættri einstaklingshjúkrun,
og er ekki vafi á því að starfsfólkið
fær meira út úr sinni vinnu og er
öruggara í sínu fagi. að ég tali svo
ekki um sjálfan sjúklinginn. hversu
mikið þetta er honum í hag.
Ólöf Hafliðadóttir
deildarstjóri
Hjúkrunarferlið
í framkvæmd
Fvrir ári síðan var bvrjað að halda
námskeið í hjúkrunarferlinu fvrir
hjúkrunarfræðinga á Landspítal-
anum og varð deild 2 í Hátúni fyrir
valinu til að hrinda hjúkrunarferl-
inu í framkvæmd.
Um síðustu áramót var farið að
vinna að breytingum á hjúkrunar-
þjónustunni. Þetta gekk hægt í
fvrstu. en um mitt sumar 1979 voru
málin komin ísæmilegt horf.
Það skal tekið fram að þetta er al-
gjör frumraun. Hjúkrunarferlið á
eftir að þróast og verða. eftir því
sem skilningur vex og fleiri verða
virkir í notkun þessa starfsháttar.
mikilvæg hjálp við hjúkrun. Rétt er
að athuga að oft eru notuð mismun-
andi hugtök yfir sama þáttinn í ferl-
inu.
Ég hef verið beðin að koma með
dæmi af deildinni hvernig hjúkrun-
arferlið er útfært.
HJÚKRUNARSKRÁ
fyrir:
Jón Jónsson. f. 5/10 1898.
fyrrverandi skrifstofustjóri.
Asíœða til innlagningar:
Þann 5. febrúar 1979 kemur sjúkl-
ingur frá heimili sínu á sjúkrabör-
um. Ástæða til innlagningar: 1) Til
að hvíla eiginkonu, 2) vökvaskort-
ur. Upplýsingar eru fengnar þann 7.
febrúar frá eiginkonu og við athug-
anir hjúkrunarfræðings.