Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Síða 13

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Síða 13
ast 322 sjúklingar á deildina á tíma- bilinu. Urtakið var 22 sjúklingar. eða tæp 7% af heildarfjölda sjúklinga á deildinni á þessu tímabili. Við höfum farið yfir rúmlega helm- 'ng úrtaksins og dregið ályktanir út frá því. Athugunarlisti var unninn í hóp- vinnu þannig að: 1 • Eyðublöðum var snúið upp í spurningaform. til að kanna alla þætti jafnt. 2. Settar voru fram ákveðnar kröfur um hvaða þætlir ættu að koma fram í ýmsum stigum hjúkrunarferlisins og spurningar þar að lútandi. Athugunarlistinn var svo margyfir- farinn af hópnum. Áöuren farið var að vinna með hann við raunveru- legar aðstæður komu fram ófyrir- sjáanlegir vankantar. sem ekki verða raktir hér. f Jpplýsingasöfmm Valdar voru af eyðublöðunum spurningar. sem við álitum að bæmu hjúkrunarferlinu beint við. Niðurstöður eru raktar hér með hliðsjón af þáttum hjúkrunarferlis- lr>s. Upplýsinganna var nær alltaf aflað innan sólarhrings frá innlögn. betta teljum við nauðsynlegt. til þess að markviss hjúkrun geti hafist strax. Flestar upplýsingar sem aflað var höfðuðu til líkamslegs ástands sjúklings. Aðeins um helmingur þeirra er öfluðu upplýsinga spurðu út í sálræna og félagslega sviðið. Hjúkrunarfræðingarnir skrifuðu nær því allir nafn sitt við upplýs- 'ngasöfnunina. Þetta kom okkur skemmtilega á óvart. Hjúkrunargreining I Ijós kom að alltaf var gerð hjúkr- Unargreining. Töldum við að allt Það. er fært var í greiningardálk og gefið það númer. væri hjúkrunar- greining. Orsök hjúkrunargrein- ingarinnar var aðeins nefnd í um 25% greininga. Einnig kom í ljós að sumar greiningar báru aðeins sjúk- dómsheiti. Athugað var hvaða þarfir hjúkrunarfræðingar greindu. Allir höfðu sjúklingarnir líkamleg- ar þarfir. eins og búast mátti við. þar sem könnunin var gerð á al- mennri sjúkradeild. Hjá um helm- ingi sjúklinganna voru greindar sál- rænar þarfir, en félagslegar ekki hjá neinum. Við höfðum einnigáhuga á að vita hvort hjúkrunargreiningin væri gerð eftir forgangsröðun. t.d. Maslow. en svo revndist ekki vera. Að vísu var innlagningarástæðan oft fyrsta hjúkrunargreiningin. Einnig var athugað hvort vanda- málin væru flokkuð niður eftir stigi þeirra. Hjá öllum voru greind virk vandamál. mjög sjaldan yfirvofandi og aldrei möguleg. Aldrei var gert endurmat á hjúkrunargreiningu. í nær öllum tilfellum var frumgrein- ing gerð samdægurs og sjúklingur- inn kom. þ.e. strax á eftir upplýs- ingasöfnun. H júkrunarfyrirmœli og framvinda Markmið voru ekki sett í sambandi við nein fyrirmæli. Evðublöðin bjóða að vísu ekki upp á sérstakan markmiðadálk. en rætt var í upp- hafi um að þau gætum við skrifað í tengslum við fyrirmæli. Fyrirmæli voru aðeins í sambandi við þriðjung hjúkrunargreininga. Hjá öllum voru fvrirmæli um líkamlegar þarf- ir. hjá helming um sálrænar þarfir. en hvergi varðandi félagslegar þarf- ir. Flest fjölluðu fyrirmælin um beina athugun. tæknilega aðhlynn- ingu. læknismeðferð og fyrirbygg- ingu. Einnig voru fyrirmæli um fæði og hindrun á sársauka. í örfáum til- vikum voru fyrirmæli um fræðslu og umhyggju. Aldrei var gerð framtíð- aráætlun. Fyrirmæli voru ekki mjög nákvæm. t.d. aldrei tekið fram hve lengi þau giltu. og þar af leiðandi ekki endurmetin.Framvinda höfð- aði oftast til greiningarinnar. en oft kom í ljós ný greining í framvindu. sem ekki var færð í greiningardálk. NIÐURSTÖÐUR Upplýsingasöfnunin virtist ganga nokkuð vel, nema hvað við mætt- um leggja meiri áherslu á sálræna og félagslega þætti. Hjúkrunarfræðingar virðast hafa nokkuð gott vald á að greina líkam- legar þarfir sjúklinganna, en virðast gleyma að líta á sjúklinginn sem veru með félagslegar og sálrænar þarfir eins og líkamlegar — eða finnst þeir ekki valda því. Svo virð- ist sem við séum ekki búin að slíta okkur að öllu leyti frá gamla ..kard- exinu“. Við reiknuðum alltaf með byrjun- arörðugleikum og vissulega eru enn þröskuldar í vegi. en þó ekki svo óvfirstíganlegir að við viljum snúa til baka. Eins og fvrr segir var markmið okk- ar með könnuninni. í fvrsta lagi að kanna hvað hjúkrunarfræðingum finnst skifta máli í upplýsingasöfn- un og úrvinnslu. Þessu markmiði náðum við ekki. því að úrtakið var ekki nógu stórt til að vera fulltrúi fvrir heildina. Við teljum réttmæti og áreiðanleika ekki nógu vel tryggt til að hægt sé að draga beinar ályktanir af niðurstöð- um. Aftur á móti teljum við hlut- lægni nokkuð vel tryggða þar sem sömu hjúkrunarfræðingarnir sömdu athugunarlistann og öfluðu upplýsinga. Svörin vekja okkur þó til umhugsunar um hvað mætti rannsaka betur síðar. Annað mark- miðið var að finna hvaða þætti helst þyrfti að bæta með aukinni fræðslu. Sömu takmörk eru fyrir þessum þætti og áðurnefndum þáttum í sambandi við réttmæti og áreiðan- leika. En þessi athugun bendir til HJÚKRUN 3-'4/ao - 56. árgungur 1 1

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.