Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Page 22

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Page 22
nánari skoðun. Það er auðvelt að mæla augnþrýsting. Líkt og augn- speglun ætti augnþrýstingsmæling að vera fastur liður í almennri lækn- isskoðun. Það sama má segja um sjónskerpupróf. Af 700 glákusjúkl- ingum, sem eru í eftirliti og meðferð á göngudeild augndeildar Landa- kotsspítala, hafa um 15% verið sendir þangað af Rannsóknastöð Hjartaverndar. Þetta segir sína sögu og undirstrikar hversu stór þáttur almennra lækna. eða lækna annarra en augnlækna, í sjónvernd getur verið.x í árslok 1979 voru 419 einstakl- ingar skráðir lögblindir hér á landi. Af þeim höfðu 74 eða um 18% misst sjónina af völdum gláku. Við könnun. sem ég gerði árið 1950. var sambærileg tala um 50%.4? Á síðastliðnum 30 árum hefur heildaralgengi blindu lækkað um 60%. Aðalástæðan fyrir þessari lækkuðu blindutíðni er sú, að hæg- fara gláka kemst sjaldnar á lokastig nú en áður. Þótt mikið hafi áunnist í glákuvörnum, verður að halda bar- áttunni áfram og margt er hægt að bæta. Auk hægfara gláku eru aðrir hrörn- unarsjúkdómar, sem valda alvar- legri sjónskerðingu og eru mjög tíðir á efri árum. Langalgengasta orsök lögblindu hér á landi er ellirýrnun í miðgróf sjónu (degenerntio macularis sen- ilis). um 40% af öllum blindum. Fólk sem hefur skerta sjón af völdum þessa kvilla er lesblint. en hefur að jafnaði góða ratsjón. Þessi tegund blindu er ólæknandi. en með leysigeislameðferð hefur tekist að stöðva þróun sjúkdómsins í viss- um tilfellum. Er þarna nýtt verkefni framundan í blinduvörnum. EIIi- drer (cataracta senilis) er ekki hægt að fyrirbyggja, en það er tíður kvilli meðal aldraðs fólks.4-5 Hér á Iandi gætir drerblindu (ský á augasteini) nær ekki. þar eð aðgerð 1 6 HJÚKRUN 3 -4/bo - 56. árgangur er gerð á flestum áður en þeir teljast blindir. Aðgerðaráhætta er lítil og fá flestir góða sjón eftir aðgerð, ef augu eru að öðru leyti heilbrigð. Slvsavarnir Ekki veit ég um tölu augnslysa hér á landi. en þau eru algeng. a.m.k. smærri augnslys. Meiriháttar augn- slys eru flest lögð inn á augndeild- ina á Landakoti. að meðaltali 60 á ári. í meirihluta er ungt og miðaldra fólk og hefði í flestum tilfellum ver- ið hægt að fyrirbyggja slysin, ef fyllstu varkárni hefði verið beitt. Mér telst til að 11 manns hér á landi séu alblindir á báðum augum af völdum slysa eða um 3% af öllum blindum.4 5 Slysablinda á öðru auga er enn al- gengari. Á síðustu árum hefur nokkuð áunnist á sviði sjóngæslu hér á landi. Kemur það fram í lækkaðri blindratölu. Algengi blindu er nokkru lægri hér en í nágrannalöndunum. en það segir alls ekki að hér sé betur að öllum sjónverndarmálum búið. t.d. sjóngæslu meðal barna. Þótt okkur hafi miðað nokkuð áleiðis í sjón- gæslu og sjónverndarmálum á síðari árum eru framundan mörg verkefni sem bíða úrlausnar. Helstu úrbcetur á sriði sjóngæslu og blinduvarna tel ég vera: 1. Lögskráning á sjónskertu fólki. Er slík skráning forsenda þess að hægt sé að skipuleggja fyrir- byggjandi þjónustu til varnar blindu. 2. Allsherjar skráning glákusjúkl- inga og sykursjúkra, en þeir eru stærstu áhættuhópar blindu. sem oft er unnt að halda í skefj- um, ef nógu fljótt er gripið í taumana. 3. Leit að áhættuhóp hægfara gláku með augnþrýstingsmæl- ingu á heilsugæslustöðvum og þar sem hópskoðanir fara fram. 4. Skipulegri leit að sjóngöllum og ófullkominni samsjón meðal 4 ára barna á heilsugæslustöðv- um verði komið í betra horf en nú er. 5. Stækkun göngudeildar augn- deildar Landakotsspítala, sem er orðin of lítil, sérstaklega fyrir augnþjálfun barna. Höfuðverk- efni göngudeildarinnar er fyrir- byggjandi starfsemi. Einnig þarf fleiri augnþjálfa úti á landi. t.d. á Akureyri. 6. Aukin almenningsfræðsla um slysavarnir og augnsjúkdóma sem valda skertri sjón. 7. Aukin fræðsla hjúkrunarfólks um sjónverndarstarfsemi. 8. Stofnsetning þjónustumiðstöðv- ar fyrir sjónskert fólk — sjón- hjálp (low-vision clinic). Skapa þarf aðstöðu fyrir sjónþjálfara (synpedagog). sem annast end- urþjálfun þeirra er orðið hafa fyrir varanlegu sjóntapi. 9. Læknar almennt hafi það í huga að augnskoðun er einn liður al- mennrar læknisskoðunar. því að augun eru ekki síður spegill líkamans en sálarinnar. HEIMILDIR 1. Björnsson, G., tlalldórsson, S.: Sjónskert börn. Læknablaðið 65. árg. 4. tbl. 1979. 2. Halldórsson, S.: Childhood blindness in lceland. Acta Ophthalmologica Vol. 58, 1980. 3. Björnsson, G.: Af hagleik læknishanda. Læknablaðið, Fylgirit 2, 1977. 4. Björnsson, G.: Blindir og sjónskertir. Könnun á aigengi og orsökum sjónskerð- ingar og blindu á íslandi í árslok 1979. Læknablaðið (í prentun). 5. Björnsson, G.: Sjóndepra og blinda. Fréttabréf um heilbrigðismál 4. hefti 1980. 6. Kolmer, E.M.: Diabetic retinopathy clinics in endochrinology and metabol- ism. Vol.6, No. 2, 1977. 7. Björnsson, G.: Augnhagur Borgfirðinga. Læknaneminn 31. árg., 4. tbl. 1978. 8. Björnsson, G.: Gláka á göngudeild. Læknablaðið 65. árg., 5. tbl. 1979.

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.