Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Blaðsíða 24

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Blaðsíða 24
Ronald IWac Keith Tilfinningar og hegðun foreldra fatlaðra barna Hegðun foreldra fatlaðra barna stafar af ýmsum þáttum. svo sem menningar- og þjóðfélagslegum viðhorfum til barna almennt. til fatlaðs fólks. til kennara og félags- ráðgjafa. til lækna og læknisþjón- ustu almcnnt. Að mestum hluta er hegðun þeirra þó sprottin frá eigin tilfinningu fvrir að eiga fatlað barn. Hvers eðlis sem fötlunin kann að vera þá eru viðbrögð foreldra um margt svipuð. Viðbrögð og áhrifa- þættir fara eftir því: 1. Hvort fötlunin er merkjanleg við fæðingu eða kemur í Ijós síðar. 2. Hvort um mikla andlega van- gefni er að ræða. 3. Hvort fötluninersýnilegöðrum. 4. Viðhorfum annarra. s.s. fólks al- mennt. kennara. lækna og með- ferðaraðila. til fötlunar og fatl- aðs fólks. TILFINNINGAR FORELDRA Hver eru sennileg viðbrögð for- eldra sem uppgötva að barn þeirra er fatlað? Hverjar eru tilfinningar (og síðan hegðun) hjóna sem finna sig í þess- um ..dæmigerðu" aðstæðum? Hugleiðum viðbrögð ungra for- eldra sem eignast fyrsta barn og það er með Dowris syndrom eða spina bifide, fatlanir sem eru augljósar við fæðingu. Þeir hafa ekki ennþá ..fest ást“ á barninu. í þeirri merk- 1 8 HJÚKRUN o - 56. árgangur ingu að barnið sé hluti af þeim. hvað sem kann að koma fvrir það. Tilfinningar þeirra eru ruglings- legar: 1. Tvær lífeðlisfræðilegar tilfinn- ingar: a) Að vernda þann hjálpar- vana. b) Snöggur afturkippur við því sem er óeðlilegt. 2. Tvær tilfinningar um vanhæfni: a) Vanhæfni til að eignast af- kvæmi. b) Vanhæfni til að ala upp. 3. Þrjár tilfinningar um missi eða sviptingu, því þeir töldu vfir- gnæfandi líkur á að eignast heil- brigt barn: a) Reiði. b) Sorg. c) Aðlögun. sem tekur tíma. 4. Tilfinning um ,.sjokk“. 5. Sektarkennd — sem er e.t.v. sjaldgæfari en margir halda. 6. Skammarkennd. sem er félags- legt viðbragð við því sem for- eldrar halda að öðru fólki finn- ist. Reiðin vfir sviptingunni getur or- sakað árásargjarna hegðun gagn- vart þeim sem eru að revna að hjálpa foreldrunum. Sort’in getur valdið depression — aðlögun getur komið nokkuð fljót- lega. en þó hún sé stöðug verður hún ekki alltaf með tilliti til vanda- mála sem kunna að koma upp. Sjokkið“ getur valdið mikilli ásókn til ráðgjafastofnana í leit að betri fréttum. Sektarkennd — kannast ekki allir foreldrar við. Þetta er samsett til- finning með undirtóna. t.d. refsing scm getur framkallað depression (depurð). Skammarkennd (embarrassment) getur leitt til hlédrægni í félagsleg- um efnum og jafnvel félagslegrar einangrunar. TILFINNINGAR OG HEGÐUN SÉRHÆFÐRA RÁÐGJAFA Hjúkrunarfræðingar. kennarar. félagsráðgjafar. læknar o.fl. með- ferðaraðilar. sem þurfa að horfast í augu við fatlaða einstaklinga. eru oft ringlaðir. eins og reyndar flestir fullorðnir. í hegðun þeirra gætir áhrifa eigin tilfinninga. E.t.v. ráð- leggur læknir eða félagsráðgjafi að

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.