Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Page 31

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Page 31
 >1i Vi w.í J *> f,l y Fulltrúgjundurinn þádi bod forsetaembcettisins að Bessastöðum. Forseti Islands, Vigdís Sigríðardóttir. Hjúkninarfrœðingar Norðurlanda þakka þér innilega fyrir að bjóða okkur til Bessastaða. Við erum stolt yfir því, að dóttir Sigríðar, sem var brautryðjandi í norrœnni samvinnu hjúkrunarkvenna og mikilsvirtur leiðtogi, er kosin fyrst allra kvenna þjóðhöfðingi í lýðrœðisríki. Við hyllum þig og óskum þér heilla, og þér og móður þinni allrar bless- unar. Flutti Toini þetta á góöri íslensku og vakti þaö bæði undrun og aödá- un. Ennfremur hafði Reykjavíkurborg og heilbrigðisráðuneytið móttöku fyrir fulltrúana í Höfða. Stjórnarkjör o.fl. Toini Nousiainen frá Finnlandi var endurkjörin formaður SSN, Kirsten Stallknecht, Danmörku og endur- kjörin 1. varaformaður og Svanlaug Árnadóttir var endurkjörin 2. vara- formaður samtakanna. Kosning er tileins ársísenn. Ákveðið var að SSN mundi hefja útgáfu rits um hjúkrunarrannsókn- ir. Fyrirhugað er að ritið komi út einu sinni á ári. Eva Holm Christi- ansen, Danmörku, og Ulrica Croné, Svíþjóð, stóðu að undirbún- ingi og gagnasöfnun. Þær munu áfram vinna að verkefninu í sam- ráði við stjórn SSN. í tilefni af 60 ára afmæli HFÍ á síð- asta ári var formanni HFÍ afhent peningagjöf að upphæð 12.000 norskar krónur. Verður fjármunum þessum varið til styrktar þátttak- endum frá HFÍ í ICN þinginu 1981, en kennaradeild félagsins hefur tekið að sér að sjá um umræðuþátt á þinginu. Næsti fulltrúafundur verður hald- inn í Noregi 1981. Aðalumræðu- efni fundarins verður: Staða hjúkrunarfélaganna á inn- lendum, norrænum, evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Ingibjörg Árnadóttir HJÚKRUN 3-'4/eo - 56. árgangur 25

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.