Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Síða 32

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1980, Síða 32
Fréttir og tilkynningar REGLUR fyrir námssjóð hjúkrunarfræð- inga hjá Akureyrarbæ eða stofn- unum bæjarins l.gr. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að því að hjúkrunarfræðingar starf- andi hjá Akureyrarbæ eða stofnun- um hans afli sér menntunar sem geri þá hæfari til að leysa störf sín af hendi. - • gr. Tekjur sjóðsins eru umsamið fram- lag bæjarsjóðs og stofnana hans samkvænit gildandi kjarasamningi milli Akureyrarbæjar og Hjúkrun- arfélags Islands, hverju sinni. d. gr. Stjórn sjóðsins skal skipuð 5 mönn- um, þannig að 2 fulltrúar séu til- nefndir af Akureyrardeild Hjúkr- unarfélags Islands og 3 af Akur- eyrarbæ. Kjörtímabil sjóðstjórnar skal ver það sania og bæjarstjórnar. Stjórnin skiptir með sér verkum. 4. gr. Fé sjóðsins skal einkum varið til að auðvelda hjúkrunarfræðingum að sækja námskeið í sinni starfsgrein með því að sjóðurinn taki þátt í að greiða kostnað vegna feröa- og námsdvalar. Ennfremur að styrkja hjúkrunarfræðinga til lengra sér- náms í hjúkrun eða endurmenntun, effé er fyrir hendi. Einnig taki sjóð- urinn þátt í kostnaði af námskeiða- haldi innanbæjar. 26 HJÚKRUN3-*4/ao- 56. árgangur 5. gr. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri varðveitir námssjóðinn og annast bókhald hans án sérstakrar þókn- unar. Fé sjóðsins skal ávaxta á sem hagkvæmastan hátt. Stjórn sjóðsins skal yfirfara ársreikning og árita hann. 6. gr. Reglur þessar taka gildi er þær hafa veriö staðfestar af stjórn Hjúkrun- arfélags íslands og bæjarstjórn Akureyrar. Þær skulu endurskoð- aðar ef annar hvor þessara aðila leggur fram beiðni þar um fyrir lok janúarmánaðar ár hvert. Samþykki í bœjarstjóm Akureyrar 8. apríl 1980 Samþykkt í stjórn Hjúkrunarfélags Islancls 19. júní 1980 Félagsfundur Hjúkrunarfélag íslands gekkst fyrir almennum félagsfundi 16. október sl. kl. 20.30 í Átthagasal Hótel Sögu. Fundarefni: Kröfur í sérkjarasamningum kynnt- ar. í fjarveru formanns setti varafor- maður félagsins, Ása St. Atladóttir, fundinn og bauð félagsmenn vel- komna. Valgerður Jónsdóttir kynnti kröfugerð sérkjarasamning- anna. Sigurveig Sigurðardóttir skýrði frá 1. fundi kjararáðs og viðsemjenda um sérkjarasamningana. Hann var stuttur og afdrifalítill, því öllum kröfum um kauphækkanir var hafnað. Nokkrar umræður urðu um kröfu- gerðina og svöruðu þær Valgerður, Sigurveig og Ása fyrirspurnunum. Þótti ýmsum kröfugerðin mjög hógvær, svo ekki sé meira sagt, en beinar breytingartillögur bárust ekki. Kjararáð taldi hyggilegt að stilla kröfum í hóf, ef það mætti verða til þess að samningar næðust að þessu sinni. Sérkjarasamningar félagsins við fjármálaráðherra og Reykjavíkur- borg frá 1. júlí 1976 og aftur frá 1. júií 1977 voru úrskurðaðiraf kjara- nefnd. Aftur á móti tókust samn- ingar milli HFÍ og Akureyrarbæjar 1. júlí 1977. Fundinn sátu 62 hjúkr- unarfræðingar og stóð hann til kl. 22.45. Aðalfundur trúnaðarmanna HFÍ Föstudaginn 10. október I9<S0 var haldinn 7. aðalfundur trúnaöar- manna HFÍ að Grettisgötu 89, Reykjavík. Mættir voru 52 trúnað- armenn. Formaður trúnaðarráðs, Þórdís Sigurðardóttir setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Að því loknu las formaður skýrslu trúnaðarráðs yfir s.I. ár. Því næst fór fram kosning í trúnaö- arráð. Ur ráðinu gengu Katrín Tómasdóttir, Landspítala og Val- borg Árnadóttir, Landakotsspítala. í kjöri voru Bergdís Kristjánsdóttir, Landspítala og Auöur Ragnars- dóttir, Landakotsspítala. Voru þær sjálfkjörnar þar sem tleiri gál'u ekki kost á sér. Eftir kosningu gaf Ingibjörg Gunn- arsdóttir skrifstofustjóri ýmsar upplýsingar frá HFÍ.

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.