Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Page 11
þessum tíma tíðkaðist það að setja
3% hexachlorophen út í baðvatn-
ið eða setja það á blautan svamp
áður en þvottur hófst. Þar sem
hexachlorophen leysist illa upp í
vatni er talið betra að smyrja því
beint á húð nýburans og þvo síðan
strax af með volgu vatni. Var sú
aðferð tekin upp í faraldrinum
1976 og jafnframt var lögð áhersla
á aukið hreinlæti hjá starfsfólkinu,
einkum handþvott. Faraldurinn
rénaði vorið 1977 og voru það ár
skráð 10 tilfelli á Landspítalanum.
Vor og sumar 1978 jókst sýkinga-
tíðni á ný og voru það ár skráð 19
tileflli. 1979 voru í heilbrigðis-
skýrslum skráð 47 tilfelli af öllu
landinu en frá 1980 hefur skráning
af einhverjum orsökum fallið nið-
ur alls staðar og engar niðurstöður
í heilbrigðisskýrslum.
Árið 1983 var hætt að framleiða
physohex vegna þess að svo mjög
hafði dregið úr notkun þess og var
þá á Landspítala tekin upp notkun
á hibitan 1% við böðunina en
spritt áfram notað á naflastúf.
Hibitan er chlorhexidinlausn en
það efni hefur helst verið ráðlagt
til notkunar í stað physohex. Ekki
hafa komið fram nein eituráhrif af
völdum chlorhexidin, þó er varað
við að efnið komist inn í miðeyra,
því eins og önnur sótthreinsiefni
getur það valdið heyrnartapi.
Sumarið 1984 eftir hálfs árs
notkun með hibitan 1% kom í ljós
að óvenju mörg börn fengu blöðru-
bólu á Stór-Reykjavíkursvæðinu
samkvæmt lýsingu hjúkrunarfræð-
inga í ungbarnaeftirliti. Par sem
Fæðingarheimili Reykjavíkur var
lokað í júlí og fram til 15. ágúst
þetta ár þótti sýnt, að flest þessara
barna hefðu fæðst á Landspítalan-
um. í ljósi þessa þótti ástæða til að
reyna að finna árangursríkara efni
við böðun nýbura. Var síðan
ákveðið að nota meðferð sem
byggð var á viðamikilli sænskri
rannsókn, sem birtist í Journal of
Hospital Infection (1984) 5, 121-
136. í þeirri rannsókn var fylgst
með 3602 nýburum (frá því í októ-
ber 1979 til desember 1981) og
athuguð tíðni og tegundir af stap-
hylococcasýkingum. Áður hafði í
faraldri af völdum staphylococcus
aureus komið í ljós að 87% af
öllum staphylococcum, sem rækt-
uðust frá sýkingum í nýburum,
voru upprunnin á fæðingardeild.
Hættan á sýkingu eftir að heim var
komið jókst í réttu hlutfalli við
fjölda staphylococca á húð barn-
anna við útskrift.
Svíar tóku upp notkun 4% chlor-
hexidin (öðru nafni hibiscrub) á
naflastúf einu sinni á sólarhring
fyrstu 5-6 daga ævinnar. Börnin
voru að öðru leyti böðuð úr vatni
án sápu. Reyndist þetta árangurs-
rík meðferð bæði við að draga úr
fjölda staphylococcus aureus á
húð barnanna meðan þau voru á
fæðingadeild svo og að lækka tíðni
blöðrubólu eftir að heim var kom-
ið, en fylgst var með börnunum í
19 mánuði.
í samstarfi milli sýkingavarnar-
nefndar Landspítalans, sængur-
kvennadeildar og barnadeildar
Landspítalans svo og Fæðingar-
heimilis Reykjavíkur var ákveðið
að breyta meðferð nýbura á Land-
spítalanum en að meðferð skyldi
óbreytt á Fæðingarheimilinu til að
viðmiðun fengist. Á Fæðingar-
heimilinu var notað spritt á nafla-
stúf, börnin að öðru leyti böðuð úr
Húðsýkingar af völdum Staph. aureus hjá börnum tveggja til þriggja
vikna gömlum í hlutfalli viðfjölda Staphylococca á 5.-6. degi eftir fœð-
ingu. Ekkert sótthreinsunarefni var notað.
Bólfesta af Staph. aureusá húð barna áfœðingadeild (cfu/20cm2) Fjöldi barna Fjöldi húðsýkinga eftir útskrift
Allar Jákvœðar rœktanir afstaph. aureus
0-10 74 19(25,7%) 8(10,8%)
Ul o o 367 114(31,1%) 58(15,8%)
ÍOMO* 39 35(89,7%) 19(48,7%)
Alls 480 168(35,0%) 85(17,7%)
Journal of Hosp. Infection (1984) 5, 121-136.
Húðsýkingar af völdum Staph. aureus hjá börnum tveggja til þriggja
vikna gömlum í hlutfalli viðfjölda Staphylococca á 5.-6. degi eftirfœð-
ingu. Hibiscrub 4% á naflastúf.
Bólfestaaf Staph. aureusá húð barna á fœðingadeild (cfu/20 cm2) Fjöldi barna Fjöldi húðsýkinga eftir útskrift
Allar Jákvœðar rœktanir afstaph. aureus
0-10 1751 96(5,5%) 22(1,2%)
50 -104 253 50(9,5%) 25(4,8%)
Alls 2274 146(6,4%) 47(2,0%)
Journal of Hosp. Infection (1984) 5,121-136.
HJÚKRUN !fa-64. árgangur9