Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 13
ferðar klemmunnar. Ákveðið hef-
ur verið í samvinnu við fæðinga-
deild og sængurkvennadeildir
Landspítalans, að breyta nafla-
meðferð einu sinni enn í þeim til-
gangi sem fyrr að minnka hættu á
staphylococcasýkingum á húð ný-
bura. Verður notuð teygja á nafla-
stúf í stað klemmu og zinkoxid-
púður með chlorhexidini þar til
stúfur dettur af.
Eins og fyrr sagði eru engar tölur í
heilbrigðisskýrslum frá 1980-1985
um tíðni blöðrubólu, en Kristín
Jónsdóttir læknir á Sýkladeild
Landspítalans lét góðfúslega í té
yfirlit frá árinu 1982, sem hún tók
saman um sýni frá nýbur^deildum
Landspítalans og voru jákvæð fyr-
ir staphylococcus aureus. Þar kem-
ur í ljós að af 2457 börnum, sem
fæddust á Landspítalanum 1982
fengu 43 blöðrubólu samkvæmt
ræktunarniðurstöðum, en það er
1,7% og dreifist tiltölulega jafnt
yfir árið. Til samanburðar er yfirlit
innsendra sýna seinni hluta ársins
1985 þ.e.a.s. eftir að breyting á
böðun hafði átt sér stað. Þar kom í
ljós að af 1113 börnum, sem fædd-
ust á Landspítalanum 1. maí 1985-
31. okt. 1985, fengu 2 blöðrubólu
samkvæmt ræktunarniðurstöðum,
bæði í maímánuði, en það er 0,8%.
Samkvæmt álitsgerð American
Public Health Association árið
1970 er líklegt að klasasýklafar-
aldur sé í aðsigi á nýburdeild, er
upp koma sýkingar í tveimur eða
fleiri nýburum á minna en tveggja
vikna tímabili eða eitt tilfelli af
brjóstaígerð hjá móður. Ef ekki er
um faraldur að ræða megi búast
við 3-4 sýkingum af staphylococc-
um í 1000 nýburum árlega.
Að endingu vil ég leggja áherslu á
að allar breytingar eru tilgangslitl-
ar, ef þýðingarmesta sýkingar-
vörnin gleymist þ.e. samviskusam-
legur handþvottur starfsfólks fyrir
og eftir umönnun barnanna.
HEIMILDIR
1. Elizabeth Barrett-Cannon: Staphy-
lococcal infections in the nursery. Epide-
miology for the Infection Control Nurse
1978.
2. Atli Dagbjartsson, Gréta Aðalsteinsd.,
Kristín E. Jónsdóttir. Blöðrubóla ung-
barna. Lœknablaðið 66. árg. 1. tbl.
3. Epidemiology and control of staphy-
lococcal pyoderma among newborn in-
fants-evaluation of a method for routine
cord care with 4% chlorhexidine-deter-
gent solution. Journal of Hospital In-
fection 1984, 5, 121-136.
4. Review of the toxicity of hexachloro-
phene. Arch. Environ. Health. vol. 23,
Aug. 1971.
5. Finland M. Epidemic character of stap-
hylococcal infections. Moclern Medicin
38, 22.jan.1973.
6. Absorbtion of chlorhexidine from intact
skin of newborn infants. Arch. of Disease
in Childhood 1979, 54, 379-383.
7. Navlepleje hos nyfödte - maal og
midler. Klinisk Sygepleje nr. 4, 1987.
Til athugunar
Frá 1. júlí 1988 hækka öll laun
hjúkrunarfræðinga um 2%
Núgildandi kjarasamningur gildir til
31. desember 1988
Orlof - sumarfrí
Samkvæmt 11. gr. kjarasamnings HFÍ frá maí 1987 er lág-
marksupphæð orlofsfjár fyrir fullt orlofsár, 9% af maímán-
aðarlaunum orlofstökuársins, í launaflokki 69,3. þrepi.
Samkvæmt því er lágmarksupphæð orlofsfjár fyrir fullt
starf kr. 5.034.00. (fyrir starfsmann sem vinnur eingöngu
dagvinnu).
Þeir sem vinna álags- og yfirvinnu fá orlofsfé af þeirri vinnu
sem hér segir:
Við minni starfsalduren 10ár 10.17%
Við 10 ára starfsaldur eða 40 ára aldur 11.59%
Við 18 ára starfsaldur eða 50 ára aldur 13.04%
Orlofsfé þetta er lagt inn á póstgíróreikning og greitt út í
maí.
• Orlofspósentan kemur ekki fram á launaseðli, svo fylgjast
þarf með hvort hún sé rétt.
• Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
• Tímabil sumarorlofs erfrá 15. maí til 1. október.
• Lágmarksorlof er tveir dagar eða 16 vinnuskyldustundir
fyrir hvern unninn mánuð, 24 vinnudagar eða 192 vinnu-
skyldustundir eftir eins árs starf, fyrir hjúkrunarfræðing
yngri en 40 ára eða með innan við 10 ára starfsaldur.
• Við 10 ára starfsaldur eða 40 ára aldur lengist orlofið um 3
daga eða 24 klst. í samtals 216 vinnuskyldustundir.
• Við 18 ára starfsaldur eða 50 ára aldur lengist orlofið aftur
um 24 klst. í samtals 240 vinnuskyldustundir.
• Vaktavinnufólk í hlutavinnu á að fá lengingu á orlofi þegar
helgidagar koma inn á orlofstímann, (aðrir en laugardagar
og sunnudagar).
• Starfsmaður á rétt á að fá 160 vinnuskyldustundir (20 daga)
af orlofi sínu á sumarorlofstímabilinu (15. maí til 30. sept.)
• Orlof tekið að loknum orlofstímanum lengist um 1/4 (25%)
• Sama gildir ef orlof er tekið fyrir orlofstímann að ósk atvinnu-
rekenda.
• Veikindi í orlofi eiga ekki að skerða leyfi, enda séu veikindin
sönnuð með vottorði, eins fljótt og við verður komið.
• Sé hjúkrunarfræðingur beðinn að vinna í sumarleyfi sínu
ber honum yfirvinnukaup fyrir starf sitt. Bent er á að ganga
úr skugga um að svo sé áður en vinna í orlofi hefst.
• Við talningu orlofs telst hálfur mánuður eða meira í starfi
sem heill mánuður, skemmri tíma er sleppt.
HJÚKRUN '/fe-64. árgangur 11