Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Síða 15

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Síða 15
Tafla 1 Einkenni sem tengd hafa verið fyrirtíðaspennu pirringur kvíði spenna þunglyndi fjandskapur minnkaðsjálfsálit óákveðni skapsveiflur erfiðleikar með einbeitingu félagsleg einangrun sjálfsmorðshugsanir höfuðverkur brjóstaspenna verkir í liðum ógleði niðurgangur harðlífi svefnleysi hraðurhjartsláttur þreyta slappleiki áhrif á kynlíf bjúgur verkur í kviðarholi bólur í andliti löngun í ákveðinn mat þyngdaraukning bandi, kynferðislega vanhæfni sem og almenna vanhæfni. í dag þegar leitað er skýringa á fjarveru kvenna úr vinnu er hún oft útskýrð á þá leið að konan sé á túr eða að byrja. Á grundvelli þessa líffræðilega þáttar hefur konum verið meinaður aðgangur að hinum ýmsu störfum og eimir víst af því enn. Ruble og Brooks-Gunn (1979) héldu því fram að rannsóknir sem gerðar hafa verið á tíðum og óþægindum tengdum þeim byggðu á þremur staðhæfingum: a) Sannað sé að breyting verði á líkamlegum einkennum, til- finningalegri upplifun og hegðun kvenna yfir tíðahring- inn. b) Vitað sé að hormónar orsaki þessar breytingar. c) Breytingarnar séu miklar og hafi yfirleitt slæm áhrif á virkni konunnar. Þær Ruble og Brooks-Gunn lásu yfir þær rannsóknir sem gerðar hafa verið og fundu ekki nægilegar niðurstöður til að hægt væri að styðja ofannefndar staðhæfingar. Þær ályktuðu að þessar staðhæf- ingar væru byggðar á almennum hugmyndum sem þróast hafa inn- an samfélaga, en ekki á vísinda- legum niðurstöðum. Shainess (1961) hafði áður sett fram þá til- gátu að viðbrögð kvenna við tíð- um væri afleiðing upplifunar kon- unnar af fyrstu tíðum, viðhorfum foreldra hennar og reynslu móður hennar. Tilgangur þessarar rannsóknar var að svara eftirtöldum spurningum: 1. Er munur á minni af fyrstu tíðaupplifun og fræðslu fyrir fyrstu tíðir hjá konum sem telja sig hafa fyrirtíðaspennu og konum sem ekki hafa fyrirtíða- spennu? 2. Er munur á viðhorfum til tíða hjá konum sem telja sig hafa fyrirtíðaspennu og konum sem ekki hafa fyrirtíðaspennu? 3. Er munur á viðhorfi til kven- hlutverksins hjá konum sem telja sig hafa fyrirtíðaspennu og konum sem ekki hafa fyrir- tíðaspennu? 4. Hver eru einkenni kvenna sem telja sig hafa fyrirtíðaspennu? Orsakir fyrirtíðaspennu A. Líffrœðilegar orsakir Tengsl fyrirtíðaspennu við tíða- hringinn varð til þess að fyrstu rannsakendur fyrirbærisins ein- beittu sér að því að sýna fram á að ójafnvægi í framleiðslu á estrogeni og/eða progesteroni væri orsökin fyrir einkennunum (Greene og Dalton, 1953). Ekki hefur verið sýnt fram á réttmæti þessarar kenningar í dag, og hafa niður- stöður rannsókna á henni verið í andstöðu hver við aðra. Orsakir mótsagnakenndra niðurstaða hafa verið raktar til vandamála í að- ferðafræði rannsókna á PMS, þar með vakið alvarlegar spurningar um réttmæti þessara rannsókna (sjá Rubinow og Roy-Byrne, 1984 eða Abplanalp, 1983). Aðrar kenningar af líffræðilegum toga spunnar byggja á ofgnótt eða skorti ákveðinna efna. Má þar nefna kenningar um að fram- leiðsla á prolactini sé of mikil (Halbreich et.al., 1976), að skortur sé á vítamínum og stein- efnum (Abraham og Hargrove, 1980, Abraham, 1982), breytingar á styrkleika vasopressin og breyt- ingar á renin-angiotensin-aldo- steron ásnum (sjá Rausch et.al. (1982) um frekari upplýsingar), og of lágur blóðsykur (dePirro et.al., 1978). Framangreindar kenningar hafa byggt á því að einkenni of- gnóttar eða skorts ofangreindra efna eru þau sömu og algeng ein- kenni fyrirtíðaspennu. Enn aðrar kenningar af líffræðilegum toga spunnar hafa leitast við að sýna fram á að einkenni fyrirtíða- spennu megi rekja til breytinga í sjálfráða taugakerfinu (Kuczmi- erczyk og Adams, 1986), og til truflana í hormóna og taugaboð- efnum sem lúta yfirstjórn endor- phina (Reid og Yen, 1981). Engin þessara kenninga hefur þó verið staðfest með rannsóknum í dag. B. Sál-félagslegar orsakir Reynt hefur verið að rekja orsakir fyrirtíðaspennu til félagslegra þátta. Kenningar þar að lútandi hafa tengt fyrirtíðaspennu við vanhæfni konunnar til að sætta sig við kvenleikann (Berry, og Mc- Guire, 1972; Shainess, 1961) og viðhorfa konunnar til tíðaupplif- unarinnar (Brooks, Ruble og Clark, 1977). Félagsmótun kon- unnar hefur einnig verið talin or- sakaþáttur fyrirtíðaspennu hjá sumum (Paige, 1973), en rann- sóknir annarra hafa ekki staðfest það (Brown og Zimmer, 1986; Woods 1985). Viðhorftil tíða, minning umfyrstu tíðir ogfræðsla um tíðir Woods, Dery og Most (1982) rannsökuðu tengslin á milli hvað HJÚKRUN Vfe-64. árgangur 13

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.