Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Síða 26

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Síða 26
dreifstýringu eða miðstýringu? Virðir hún embættismenn sína? Gefur hún frá sér til þeirra og treystir þeim til að taka ákvarðan- ir? Er hjúkrunarforstjóri virtur sem yfirmaður/leiðtogi og sér- fræðingur? Samkvæmt heitinu hjúkrunarforstjóri á hann rétt á að sitja stjórnarfundi með tillögurétt og málfrelsi. Hann hefur ekki atkvæðisrétt og tekur því ekki ákvarðanir en hann hefur áhrif á ákvarðanatöku. Hann er í þeirri sérstöðu að vera í beinu sambandi við stjórnmálamenn. Hann er þeirra ráðgjafi í hjúkrunarmálum og honum ekki aðeins ber heldur er honum skylt að beita sér í þeim málaflokki. Það eru margir um hituna en úrræði og auðlindir tak- mörkuð þannig að stöðugt verður að velja og hafna og samkeppnin er hörð. Hvernig fœr hjúkrunarforstjóri áheyrn? Hvernig getur hjúkrunarforstjóri látið hlusta á sig og taka til greina það sem honum liggur á hjarta? - hann þarf að: - setja skýr markmið - hafa góðan rökstuðning - greina skilmerkilega frá þeim leiðum, sem hann hyggst fara til að ná settu markmiði - sýna að hann geti tekið á sig ábyrgð - þjálfa sig í að gefa fyrirmæli - sýna fram á árangur í starfi. Vanti eitthvað af þessu veikir það stöðu hjúkrunarforstjóra. Til að þetta takist verður hann og stéttin öll að vera vel menntuð í bestu merkingu þess orðs og standa í því efni á sama grunni og þær stéttir, sem hún starfar með. Aud Blankholm segir frá því í undirstöðuefninu að í Noregi hafi komið fram tillögur um að koma á fót stöðu, sem væri faglega og stjórnunarlega sett yfir alla starf- semi deildarinnar. En norska hjúkrunarfélagið er algerlega mótfallið þessu. En hver á þessi stjórnandi að vera, hvaða stétt á hann að tilheyra? Þarna verðum við að vera á verði. En annað sem Aud Blankholm sagði „verið er að vinna að því að dreifstýra fjár- málastjórninni og gera deildirnar fjárhagslega ábyrgari í von um að fjármálastjórnin verði betri og réttlátari og starfsmenn verði betur meðvitaðir um kostnað“. Það verður áhugavert að fylgjast með þessu m.a. með tilliti til þess sem ég sagði áður um fjárhagslega ábyrgð hjúkrunarfræðinga. Hér að framan hef ég reynt að sýna fram á hve mikla möguleika hjúkrunarfræðingar hafa til að taka ákvarðanir. Þeir þurfa aðeins að nýta sér það vald sem þeir raun- verulega hafa og það frá grasrót- inni upp á topp. Hvernig er málum háttað á íslandi? Fyrir 14 árum hóf ísland eitt Norðurlanda hjúkrunarnám í háskóla og var lögboðið sl. ár að allt hjúkrunarnám skyldi fara þar fram. Þetta varðar einnig ákvarð- anatöku hjúkrunarfræðinga. Grein sem er kennd í háskóla verður sjálfkrafa viðurkennd sem fræði- grein eða vísindagrein og því fylgir faglegt sjálfræði. Þar með tryggir hún sér sess við hlið annarra heil- brigðisstétta sem sækja menntun sína í háskóla. Þessar stéttir tala því sama tungumál og starfa á jafnréttisgrundvelli. Það er skil- yrði þess að bíða ekki lægri hlut. Á íslandi eru hjúkrunarfræðingar sjálfstæð stétt, faglega og stjórn- unarlega, sem stjórna og bera ábyrgð á hjúkrun. Samkvæmt lögum skal hjúkrunarforstjóri starfa við öll sjúkrahús og við heilsugæslustöðvar, telji ráðherra þess þörf. Hjúkrunarforstjóri við heilsugæslustöðvar hefur erindis- bréf, þar sem segir að hann skuli vera ábyrgur gagnvart heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og stjórn heilsugæslustöðvarinnar. Honum er heimilt að sitja stjórn- arfundi með tillögurétt og mál- frelsi. Hann skal hafa nána sam- vinnu við stjórn heilsugæslustöðv- arinnar og heilsugæslulækni og vera stjórninni til ráðgjafar um málefni hennar. Hann skipuleggur og hefur faglega ábyrgð á hjúkrun heilsugæslustöðvarinnar. Erind- isbréf hjúkrunarforstjóra á sjúkra- húsum sem á að tryggja þeim sam- bærilega réttarstöðu hefur því miður ekki enn verið staðfest af ráðherra. Þessi lög og erindisbréf er það sem styrkir bezt stöðu, sjálfstæði og faglega ábyrgð hjúkrunarfræðinga á íslandi og jafnframt stjórnunar- stöðu á æðsta þrepi og rétt til setu á stjórnarfundum með tillögurétt og málfrelsi, með háskólanáminu eru þeir viðurkenndir fagstétt. í heilbrigðisráðuneytinu er ein staða deildarstjóra setin hjúkrun- arfræðingi og hjá landlæknis- embætti einnig. í þessum stöðum hafa hjúkrunarfræðingarnir að- stöðu til að: - taka beinar ákvarðanir - taka þátt í ákvörðunum - hafa áhrif á ákvarðanir Hjúkrunarfræðingar eiga sæti í nefndum sem fjalla um heilbrigð- ismál, bæði opinberum og á vegum félagasamtaka og er aðild þeirra í mörgum tilvikum lög- bundin. Með þetta í huga mega íslenzkir hjúkrunarfræðingar þá ekki vel við una? Betur má ef duga skal. f*að þarf stöðugt að vera á verði. Pað kemur alltof oft fyrir þrátt fyrir þetta að hjúkrunarfræðingar eru sniðgengnir við ákvarðanatöku og þegar leitað er ráðgjafar, ekki er allt tryggt í lögum, reglugerðum eða erindisbréfum. Eins og áður er getið eru margir um hituna og 24 HJÚKRUN 1Á8- 64. árgangur

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.