Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 35
Hrönn Jónsdóttir
Kenningar Júlíu Yöldan
um tengsl mataræðis
og sjúkdóma
Grœnmetismarkaður við heilsuskólann.
Síðastliðið haustfór ég í námsferð
til Svíþjóðar og Danmerkur. Eg
heimsótti m.a. heilsuskóla í Dan-
mörku og dvaldi þar í viku. Mig
langar að segja ykkur frá þeirri
heimsókn og gera í stórum dráttum
grein fyrir þeim kenningum sem
þar er starfað eftir.
Júlía Völdan hefur starfað að nátt-
úrulækningamálum í um 40 ár, en
heilsuskólann stofnaði hún árið
1971. Hún er 66 ára gömul, af
norsku bergi brotin, full af eld-
móði, áhuga og baráttuvilja.
Hún hefur gefið út tvær bækur.
Önnur heitir Syre og base balancen
eða Sýru og lútarjafnvægið. Sú
bók kom út árið 1969. Síðari bók
hennar heitir Rákost og kræft —
Hrámeti og krabbamein og var
gefin út árið 1986.
Til þess að segja í fáum orðum á
hvaða hugsjón Júlía Völdan
byggir starfsemi sína ætla ég að
vitna í upphafsorð hennar, í bók-
inni Rákost og kræft, en þau
hljóða á þessa leið: „Það er alltof
mikið af sjúkdómum og alltof
margar sjúkrahússinnlagnir. Það
fyrra nagar lífsgleðina og hið
síðara nagar fjárhaginn. Menn
halda að þeir geti meðhöndlað
sjúklinga svo þeir öðlist heilsu en
fæstir þeirra sem sjúkir eru þurfa
meðferð það sem þeir þarfnast er
fræðsla og meiri fræðsla, svo að
þeir geti meðhöndlað sig sjálfir og
komið í veg fyrir að sjúkdómar
endurtaki sig. Alþjóða Heilbrigð-
isstofnunin WHO hefur að kjör-
orði - Heilsa fyrir alla árið 2000.
Þetta er eitthvað það jákvæðasta
sem ég hef heyrt lengi“. Þessi bók
bendir á hinn gullna veg að þessu
háleita markmiði.
Starfsemi Júlíu Völdan er fjór-
þætt. Hún rekur búgarðinn Birke-
gárden, þar sem framleitt er líf-
rænt ræktað grænmeti. Þá rekur
hún heilsuskóla sem rúmar um 100
manns. Þar eru haldin vikunám-
skeið í þeim þáttum sem hún telur
grundvöllinn að heilbrigði og vel-
líðan. Einnig rekur hún heilsu-
hælið Lerkegárden. Það stofnaði
hún fyrir konur með hnúta og æxli
í brjóstum. Hún gefur út heilsu-
blaðið Ny tid og Vi.
Eins og fyrr segir rúmar heilsu-
skólinn 100 manns. Við vorum 87 í
þessum hópi, Danir, Svíar, Norð-
menn og Færeyingar. Við vorum
tveir íslendingar, ég og ungur
maður búsettur í Noregi. Hann
var að leita sér lækninga vegna
krabbameins í sogæðakerfi. Viku-
dvölin á heilsuskólanum og Lerke-
gárden kostar kr. 2000 danskar,
þar sem stofnunin nýtur ekki
framlags frá hinu opinbera.
Júlía Völdan hefur ekki tíma til að
tala við hvern og einn, þar sem
fjöldinn á heilsuskólanum er um
hundrað manns. Hún hefur því
þann háttinn á að hún skiptir
sjúklingum sínum í hópa eftir
sjúkdómum og talar síðan við
hvern hóp fyrir sig.
Þar eð ég var komin þarna frá
HJÚKRUN Vfe-64. árgangur 29