Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 38

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 38
hluti af því sem við köllum geim- geislun. Mikilvægt er, að geimgeislunin hlýtur að vera mismunandi í dægr- unum tveimur, þar sem hún virkar öfugt að morgni og kvöldi á plönt- ur, dýr og menn. Júlía kallar morgungeislunina út- víkkandi og kvöldgeislunina þrengj- andi. Útvíkkandi dagsgeislun byrjar hjá Dönum kl. 1.30 að nóttu og varir til kl. 11.30. Þá kemur skiptitím- inn, sem varir í um það bil tvo tíma. Viðkvæmir eða veikir ættu þá að taka sér miðdagshvíld, alla vega að vera ekki í erfiðisvinnu. Kl. 13.30 byrjar þrengjandi dags- geislun sem varir til um það bil kl. 23.30. Þá kemur aftur skiptitími í um það bil tvo tíma og hún er á breiddargráðu Danmerkur um það bil kl. 6.30 til 8.30. Það er besti tíminn til að fara í morgun- göngur. Mest þrengjandi tíminn er frá um það bil kl. 18.30 til 20.30. Það er sá tími sem hún telur bestan til að ganga til hvíldar, og þá ekki hvað síst fólk sem er að vinna með sjálft sig vegna veikinda. Eins og mánaðarhrynjandi skiptist í tvo hluta, annan útvíkkandi og hinn þrengjandi, þá gildir það á sama hátt fyrir árið. Fyrri hlutinn er frá vetrarsólhvörfum til sumar- sólhvarfa og hinn hlutinn frá sumarsólhvörfum til vetrarsól- hvarfa. Þá skiptist tíminn á miðju sumri og miðjum vetri. Alveg eins og mán- aðarhrynjandinn hefur tvo hálf- mána hefur árshrynjandinn tvö jafndægur. Við vorjafndægur opnast jörðin fyrir gróðri og vexti og á haustj afn- dægrum undirbýr jörðin sig fyrir dvala vetrarins og það er alltaf mikið um sjúkdóma og dauðsföll í kringum bæði þessi jafndægur og einnig í kringum sólhvörfin, en í minna mæli. Með því að benda fólki á þetta er Júlía Völdan að benda fólki á að það geti undirbúið sig undir þennan tíma, til dæmis með því að vera í jafnvægi hvað snertir lút og sýru, plús og mínus jafnvægi, að ógleymdum svefninum, sem einnig er mikilvægur. Það er að segja, að sjá til þess að vera ekki vansvefta. Fólk getur til dæmis notað almanak og skráð inn á það veikindaköst og fylgst þannig með. Julía Völdan telur að krabbamein eigi rætur sínar að rekja til þrenns konar ójafnvægis í líkamanum, það er að segja sýru-lútar ójafn- vægis, plús-mínus ójafnvægis og svefn ójafnvægis. Það síðast nefnda svefninn, hefur ekki aðeins með sjálfan svefninn að gera heldur það, að krabba- meinssjúklingar hafa gengið á sjóðinn, lífskraftinn og hið and- lega þrek í langan tíma með of mikilli streituvekjandi vinnu, óreglulegum svefntíma og því sem fylgir í kjölfar þess, notkun örv- andi efna, eins og kaffi og tóbaks. Hvað sýru-lútar ójafnvæginu við- víkur þá hafa krabbameinssjúkl- ingar neitt of mikillar sýru eða sýrumyndandi fæðu og þar með myndað hið súra umhverfisástand sem hún telur stuðla að vexti og framgangi krabbameins. Plús- mínus ójafnvægi í blóðinu er þriðji af áðurnefndum ójafnvægisþátt- um hjá krabbameinssjúklingum. Myndun hnúta í brjóstum í tengslum við geimgeisla. Júlía Völdan hefur gert mikilvæga athugun sem hún vill athuga og rannsaka betur, en vantar nú sem stendur meiri efnivið. Þessi athugun gengur út á það að flestir hnútar í brjóstum myndist í kringum jafndægur og sólhvörf. Skýring hennar er á þessa leið. Eins og vitað er þá er mjög sterk geimgeislun þremur dögum fyrir mánaskipti og í fjórtán daga í kringum jafndægur. Þessi langvarandi sterka geislun hefur þau áhrif, að ef líkami ein- staklingsins er í miklu ójafnvægi (plús-mínus, sýru-lútar, svefn), þá getur hún valdið hnúta- og æxlis- myndun. Þessir hnútar gætu, flest allir, horfið aftur af sjálfu sér á tiltölu- lega stuttum tíma ef þeir fengju tækifæri til þess, það er að segja ef ekki væri hreyft við þeim. En því miður gerist það alltof sjaldan, segir Júlía Völdan, því það er rokið til að taka sýni og gera skurðaðgerð með miklum hraða. Hvorki hnútunum né konunum er gefið hið minnsta tækifæri. Júlía talar um tvær örlagaríkar villur. Hin hefðbundna læknis- meðferð hefur ekki með lækningu krabbameins að gera. Hún miðast að því að meðhöndla einkenni en er í sjálfu sér engin lækning. Þarna er á ferðinni misskilningur sem á rætur sínar að rekja til tveggja grundvallaratriða sem eru: Nr. 1 Kórvilla læknastéttarinnar sem hún telur vera að þeir hafi s.l. hundrað ár framkvæmt og með- höndlað krabbamein út frá þeirri röngu kennisetningu að alla hnúta 32 HJÚKRUN Vfe-64. árgangur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.