Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 39

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 39
beri að skera burtu. Meðan að hið rétta er að fæsta hnúta þarf að skera í burtu. Nr. 2 Röng ráðstöfun fjár í baráttunni gegn krabbameini. Öllu því fé sem varið hefur verið til rannsókna hefur verið varið til hefðbundinna krabbameinsrannsókna meðan aðrar rannsóknir eins og rann- sóknir á gildi náttúrulækninga hafa legið utangarðs og ekki fengið eyri. Sem betur fer segir Júlía, sjá nú fleiri og fleiri að það er með hina hefðbundnu krabbameinsmeð- ferð eins og nýju fötin keisarans í ævintýri H.C. Andersen. Þess vegna verður læknastéttin og samtök um baráttu gegn krabba- meini að staldra við og breyta meðan að tími er til. Það skal tekið fram hér að Júlía hefur sent bréf á bréf ofan til heil- brigðisyfirvalda í Danmörku, þar sem hún biður um að fá til sín úrtak af konum með hnúta eða æxli í brjóstum, sem tilraunahóp, á meðan að þær bíða eftir upp- skurði eða annarri meðferð. Sem sagt ómeðhöndlaðan hóp, en alltaf verið synjað. Þeir sjúklingar sem koma til hennar eru oftast nær og næstum alltaf sjúklingar sem búnir eru að fara í gegnum lyfjameðferð og jafnvel tvær eða þrjár skurðað- gerðir. Þrátt fyrir þetta eru það margir sjúklingar sem hafa fengið bata með því að lifa lengra eða styttra tímabil eftir kenningum Júlíu Völdan. Allt leitar jafnvægis, allt milli him- ins og jarðar, hvers vegna ekki einnig hinir ýmsu þættir líkamans. Hvort sem þessar kenningar Júlíu Völdan eiga eftir að standast tím- ans tönn eða ekki, þá fer ekki á milli mála að sú starfsemi sem þarna fer fram byggir á hugsjón, og ágæti þessarar starfsemi verður ekki véfengd. Þar fyrir utan finnst sjálfsagt seint einhver einn sann- leikur. Til gamans vil ég láta þess getið að Júlía og maður hennar, sem var miklu eldri en hún, voru vinafólk Jónasar heitins Kristjánssonar læknis. Einu sinni sem oftar á ferðum hans til útlanda kom hann í heimsókn til þeirra hjóna. Júlía tók þá viðtal við Jónas og birti í blaði þeirra Ny tid og vi. Um þetta leyti var Jónas einmitt að stofna fyrsta hluta heilsuhælis- ins í Hveragerði og segir frá því í þessu viðtali. Þessir samherjar virðast eiga það sameiginlegt að hafa helgað líf sitt náttúrulækningastefnunni og allri þeirri baráttu sem kringum hana er háð. í einni frásögn Jónasar af náms- ferð til Ameríku árið 1935 líkir hann náttúrulækningastefnunni við hlutverk Öskubusku í ævintýr- inu. Hann segir að sá dagur sé í nánd að náttúrulækningastefnan verði hafin til vegs og virðingar eins og Öskubuska. Við skulum vona að sá dagur sé ekki langt undan. Heimildir: Jónas Kristjánsson: Nýjar leiðir. Tímarit Náttúrulækningafélags íslands, 4. tbl. 1946. Völdan, Júlía: Syre ogbase balancen, 1969. Völdan, Júlía: Rákost og krœft, 1986. Greinarhöfundur er hjúkrunarfor- stjóri við Heilsuhœlið í Hveragerði. Bólusetning gegn lifrarbólguveiru - Hepatitis B (HB) Farsóttanefnd mælir meö aö eftirtaldir áhættuhópar fái bólusetningu gegn Hepatitis B (HB) veiru meö „recombinant DNA bóluefni" meö vísan til 1. grein- ar, 6-12 töluliðs laga nr. 38/1978 um ónæmisaðgerðir. Eftirtaldir aöilar fái bólusetningu sér aö kostnaðarlausu: 1. Sjúklingar meö dreyrasýki, sem þurla meðferð meö storkuþáttum. 2. Sjúklingar, sem þurfa á blóðskilun aö halda, svo og starfsfólk, sem starfar lengi viö hana. 3. Nýfædd bör mæöra, sem vitað er að hafi virkan HB viö fæðinguna. 4. Makar, kjörforeldrar og systkini þeirra, sem hafa virkan HB. 5. Þeir, sem af slysni stinga sig á nálum, sem ekki er hægt aö afsanna aö hafi komist í snertingu viö HBsAg jákvætt blóö í tengslum við starf á heil- brigöisstofnunum. 6. Starfsfólk á heilbrigðisstofnunum, sem aö staöaldri handleikur blóö eða vefi úr mönnum. 7. Starfsfólk á skurðdeildum og slysadeildum, flutningsmenn sjúkra og sýna úr sjúklingum ásamt starfsfólki þvottahúsa sjúkrastofnana. Áætla má aö 600-700 einstaklingar falli í þessa hópa. Stofnkostnaður viö grunnbólusetningu er því um 2-2,5 milljónir. Síöan veröa þaö mun færri ein- staklingar sem þurfa á slíkri bólusetningu aö halda. Eftirtöldum hópum veröi boðin bólusetning á eigin kostnaö: 8. Hommum, sem ekki hafa mótefni gegn HB-veiru. 9. Fíkniefnaneytendum sem sprauta sig og hafa ekki mótefni gegn HM- veiru. 10. Starfsfólki á vegum fyrirtækja og hjálparstofnana, sem starfa lengri tíma, þar sem HB-veiran er landlæg. 11. Tannlæknum. Þá mælir farsóttanefnd meö aö feröamönnum sem leggja leiö sína til landa, þar sem HB-veirusýking er landlæg og dvelji þar lengri tíma, veröi boöin bólu- setning á eigin kostnaö. Landlæknir HJÚKRUN !&i-64. árgangur 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.