Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Page 47

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Page 47
Fastráðinn verði sérstakur stjórnandi deildarinnar við námsbraut í hjúkrunarfræði. Innan deildarinnar fari fram annars vegar framhaldsnám og hins vegar endurmenntun. 2.1 FRAMHALDSNÁM: 2.1.1 Framhaldsnám er leiði til sérhœfingar. Skipulagt verði framhaldsnám er leiði til sérhæfingar. í þetta nám geti hjúkrunarfræðingar, sem hafa hjúkrunarleyfi hér á landi innritast. Námskrá taki til bóklegs náms og starfsþjálfun- ar. Bóklegt nám verði byggt upp á samfelldum námskeið- um, en starfsþjálfun byggi á ákveðnum námstækifærum/við- fangsefnum og handleiðslu samkvæmt námsmarkmiðum. Ljósmæðranáminu stjórni sér- stakur námsstjóri. Hjúkrunarfræðingar frá Hjúkr- unarskóla íslands geta tekið ljósmæðranámið á 18 mánuð- um, en hjúkrunarfræðingar með B.S. prófgetatekiðnámið á 15 mánuðum, þar sem hluti af hjúkrunarnáminu í Háskóla íslands samræmist námskrá Ljósmæðraskólans (t.d. kennslu- fræði, stjórnunarfræði, heilsu- gæsla, rannsóknir o.fl.). Inn í námstímanum er allur verk- námstíminn. Ljósmæðranáminu ljúki með viðurkenningu og réttindum til að sækja um ljósmóðurleyfi. 2.1.2 Nám er leiði til M. S. gráðu. í framtíðinni verði stefnt að framhaldsnámi í hjúkrunar- fræði er leiði til M.S. gráðu (a.m.k. hlutanámi). Hugsan- legt er að nýta hin formlegu samskipti sem eru milli Há- skóla íslands og háskólanna í Minnesota og Iowa. Við þá há- skóla er bæði framhalds- og doktorsnám í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og eru mögu- leikar á því að fá sendikennara þaðan til að kenna einstök námskeið í framhaldsnámi, sem stytt gætu námstíma hjúkr- unarfræðinga í masters námi erlendis. 2.2. Endurmenntun. Skipulögð verði námskeið um afmörkuð efni og nýjungar er taki til viðbótar- og viðhalds- menntunar, s.s. námskeið er taki til undirstöðugreina í hjúkrunarfræði, námskeið í sérhæfðum greinum innan hjúkrunar- og ljósmóðurfræði, námskeið í hliðargreinum hjúkrunar t.d. stjórnun og kennslufræði. 3. Stofnuð verði 6 manna mennta- nefnd hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, er verði námsbraut í hjúkrunarfræði til ráðgjafar varðandi framhalds- og endur- menntun. í nefndinni eiga sæti einn fulltrúi frá eftirtöldum aðilum; námsbraut í hjúkrun- arfræði, Hjúkrunarfélagi ís- lands, Ljósmæðrafélagi ís- lands, Félagi Háskólamennt- aðra hjúkrunarfræðinga, hjúkr- unarstjórnun sjúkrahúsa og hjúkrunarstjórnun heilsugæslu- stöðva. Nefndin gerði könnun á viðhorf- um hjúkrunarstjórnenda, sem höfð var til hliðsjónar við gerð þessara tillagna. Þessum tillögum fylgdi greinargerð og rökstuðning- ur, sem ekki eru gerð skil hér.4) Nefndin, sem fulltrúafundur 1987 samþykkti að skipa, var ætlað að fara yfir tillögur síðasttöldu nefnd- arinnar. (Tillögur um nýskipan framhalds- og endurmenntunar hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Mars 1987). Þegar þetta er ritað hefur nefndin ekki skilað niðurstöðum. Ég tel að auðvelt sé að taka ákvarðanir út frá öllu því efni, sem þegar liggur fyrir um menntunarmál okkar og að ekki þurfi fleiri nefndir til athugana og álitsgerða. Nú er komið að framkvæmdaþættinum, en málið snýst um peninga. Við verðum að þrýsta á fjárveitinga- valdið til að koma þessu máli í höfn. Heimildir 1. Ársskýrsla Hjúkrunarfélags íslands 1978 Tímarit Hjúkrunarfélags íslands 2. tbl. 1979, bls. 24. 2. Álitsgerð hjúkrunarfræðinga í starfs- hópi, sem skipaður var í febrúar 1981. Um flutning hjúkrunarfrœðináms af framhaldsskólastigi í Háskóla íslands. Nóvember 1983. 3. Drög að frumvarpi til laga um hjúkrun- arskóla. Tímarit Hjúkrunarfélags íslands 4. tbl. 1976, bls. 137-139. 4. Nefndarálit. Tillögur um nýskipan framhalds- og endurmenntunar hjúkr- unarfræðingaogljósmœðra. Mars 1987. 5. Nefndarálit. Tillögur um hvernig gefa megi þeim sem lokið hafa hjúkrunar- prófi kostá viðbótarnámi til B.S.-prófs. Mars 1983. Fræðslustarf Hjúkrunarfélags íslands Eftirtalin námskeið verða haldin á vegum Hjúkrunarfélags ís- lands á vetri komanda. 1988 26.sept.-7.okt. 17.-28. október 7.-18. nóvember 21.nóv.-2. des. 1989 16. -27. janúar 6.-17.febrúar 27. febr.-10. mars 3.-14. apríl 17. -28. apríl Hjúkrunaldraðra Stjórnun Handlæknis- lyf- læknis- oggjör- gæsluhjúkrun Þroskasálarfræði Rannsóknar- aðferðir Kennslufræði Stjórnun II Geðhjúkrun Samtalstækni Vakin skal athygli á að dagsetn- ing námskeiðanna getur breyst. HJÚKRUN '/f«-64. árgangur41

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.