Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Blaðsíða 48
Margrét Hróbjartsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
10 ára
Kristilegt félag heilbrigðisstétta
var stofnað 16. jan. 1978. Við
minntumst þess á hátíðarfundi í
Laugarneskirkju 18. jan. s.l.
10 ár er ekki mjög hár aldur, en
nógu hár til að hafa öðlast tölu-
verða reynslu og mótast að þó
nokkru leyti. Þegar við lítum yfir
farinn veg, sjáum við fyrst og
fremst trúfesti Guðs. Hann var
aldrei fjarri. Og því getur KFH
tekið undir með Davíð konungi:
„Það veit ég, að Guð liðsinnir
mér. Með Guðs hjálp mun ég lofa
orð hans... Guði treysti ég og ótt-
ast eigi, hvað geta menn gjört
mér? Á mér hvíla, ó Guð, heit við
þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir
af því að þú hefur frelsað sál mína
frá dauða og fætur mína frá hrös-
un, svo að ég megi ganga frammi
fyrir Guði í ljósi lífsins“. Sálm. 56:
10-14.
1952 var lítið félag stofnað hér á
landi, sem kallað var kristilegt
félag hjúkrunarkvenna. Það átti
upptök sín í því, að nokkrir hjúkr-
unarnemar byrjuðu að koma
saman til bænastunda með þá þrá í
hjarta að verða hæfari vottar Jesú
Krists inni á heilbrigðisstofnun-
um. Ef þær gátu fundið smáat-
hvarf inni á sjúkrahúsunum til
stuttrar bænastundar, gerðu þær
það, annars hittust þær heima hjá
hvor annarri til biblíulesturs og
sambænastundar. Einu sinni til
tvisvar á ári efndu þær til svokall-
aðra útbreiðslufunda, þar sem
samstarfsfólki þeirra á sjúkra-
húsum var boðið að koma og öðr-
um sem áhuga höfðu. Margt fleira
gerðu þær til að efla og útbreiða
hinn kristna vitnisburð. Fyrsti for-
maður þessa félags var Áslaug
Margrél Hróbjartsdóttir
Johnsen, hjúkrunarfræðingur og
seinna kristniboði. Áslaug er
látin. Maður hennar var Jóhannes
Ólafsson, kristniboðslæknir.
1977 kom maður að nafni Francis
Grim hingað til íslands, ásamt
þeldökkum samstarfsmanni sín-
um, Godfrey O’neal. Þeir komu til
að heimsækja kristilegt félag
hjúkrunarkvenna, og hafði Francis
komið til íslands tvívegis áður,
sömu erinda. Hann ræddi mikið
við stjórn félagsins og hvatti hana
til að færa út kvíarnar, þannig að
allt starfsfólk sjúkrahúsa og heil-
brigðisstofnana gæti orðið þátt-
takendur í þessu mikilvæga starfi.
Formaður félagsins þá var Ingunn
Gísladóttir, hjúkrunarfræðingur
og kristniboði, ritari var Þórey
Ingvarsdóttir hjúkrunarfræðingur
og gjaldkeri, Esther Gunnarsson
hjúkrunarfræðingur, Margrét Hró-
bjartsdóttir var varaformaður.
Stjórn félagsins tók þetta til alvar-
legrar athugunar og skipuð var
nefnd sem vinna átti sérstaklega í
málinu. Hana skipuðu hjúkrunar-
fræðingarnir María Finnsdóttir,
Áslaug Sigurbjörnsdóttir, og Mar-
grét Hróbjartsdóttir. Árangurinn
varð sá, að á aðalfundi félagsins
var samþykkt að stofna nýtt félag
og skyldi það heita: Kristilegt
félag heilbrigðisstétta.
Francis Grim er stofnandi sam-
taka, sem heita á ensku, Interna-
tional Hospital Christian Fellow-
ship. Þau samtök sáu dagsins ljós í
S-Afríku fyrir rúmlega 50 árum
síðan og hafa breiðst út til meira
en 100 þjóðlanda heims. Francis
og bróðir hans sátu við dánarbeð
föður þeirra og sáu þá glöggt þörf
sjúklinganna fyrir andlega og trú-
arlega aðstoð, en jafnframt að
henni var ekki mætt sem skyldi.
Vaknaði þá hjá Francis þessi
löngun að koma starfsfólki sjúkra-
húsa til hjálpar, svo það gæti betur
aðstoðað sjúklinga sína. Hugsjón
hans var og er að sameina kristið
trúað fólk í heilbrigðisstéttum,
hvetja það og kenna því að ná til
sjúklinga sinna og samstarfsfólks
með fagnaðarerindið um Jesúm
Krist og á þann hátt mæta trúar-
legum og andlegum þörfum
þeirra. Grundvöllurinn og hvatinn
að stofnun samtakanna eru orð
Jesú, sem oft hafa verið nefnd
kristniboðsskipunin og standa
m.a. í Matteusarguðspjalli 28:18-
20: „Allt vald er mér gefið á himni
og jörðu. Farið því og gjörið allar
þjóðir að lœrisveinum, skírið þá í
nafni föður, sonar og heilags anda,
og kennið þeim að halda allt það,
42 HJÚKRUN V&8-64. árgangur