Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Side 49
Hjónin Guðrún Dóra Guðmannsdóttir ogséra Magnús Björn Björnsson. Sigurbjörn Einarsson biskup
og kona hans Magnea Porkelsdóttir.
sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er
með yður alla daga allt til enda
veraldar“.
Einkunnarorð KFH eru: „Pað fara
fleiri á sjúkrahús í heiminum í dag
en í kirkjur, og þegar kirkjum er
lokað eru sjúkrahúsin enn opin“.
KFH er ekki söfnuður, heldur
samfélag þeirra, sem vinna á heil-
brigðisstofnunum og játa trú á
Drottinn Jesúm og vilja vinna að
þessu stórkostlega verkefni að
„gera nýja lærissveina“ og þannig
mæta þessari djúpstæðu þörf
mannsins á samfélagi við Guð um
tíma og eilífð.
í stuttu máli fer starfsemi í KFH á
Islandi fram á eftirfarandi hátt:
Bœnastarf
~ Vikulegar bænastundir inni á
mörgum heilbrigðisstofnunum og
elliheimilum landsins.
- Mánaðarlegur bænadagur, þar
sem beðið er fyrir fjölmörgum ein-
staklingum og málefnum.
- Alþjóðlegir bænadagar á vegum
samtakanna, þar sem tekin eru
fyrir ákveðin bænaefni, og félagar
um alla veröld biðja fyrir sömu
málefnum.
- Bænafulltrúar KFH á íslandi.
Þeir hafa það hlutverk að kenna
um bænina og hvetja til hinna
ýmsu bænaverkefna.
- Mánaðarlegir útbreiðslufundir,
öllum opnir. Fundarstaður er
safnaðarheimili Laugarneskirkju.
Eru þetta fræðslufundir og trúar-
lega uppbyggilegir fundir.
Útgáfustarfsem i
- Bænabæklingur, sem dreift
hefur verið á allar heilbrigðis-
stofnanir landsins og til allra
presta.
- Kynningarbæklingur.
- Tímarit, tvö tölublöð komið út
til þessa.
- Félagsbréf, sem kemur út 3svar-
4 sinnum á ári.
Öllu hefur þessu verið dreift
ókeypis.
Kynningar- og frœðslufundir hafa
verið inni á fjölmörgum sjúkra-
húsum og elliheimilum víða um
land.
Aðventuhátíðir, eru haldnar ár
hvert inni á nokkrum sjúkrahúsum
og elliheimilum á höfuðborgar-
svæðinu.
íbúð, hefur félagið tekið á leigu
sem er starfsstöð KFH. Kemur
hún í góðar þarfir til smáfundar-
halda, - og er nú skrifstofa og
vinnuaðstaða starfsmanna okkar.
Biblíulestrar eru vikulega í íbúð-
inni og öllum opnir.
Starfsmenn. - Sigríður Halldórs-
dóttir, B.S. hjúkrunarfræðingur var
HJÚKRUN '/fe-64. árgangur43