Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 55
Fréttir—Fréttir—Fréttir—Fréttir
HAGELIN MAGNUSSON SUNDELIN
BARNHÁLSO
VÁRD
Liber
Ritkynning
Anna Eyjólfsdóttir, heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingur í Svíþjóð
sendi okkur bókina „Barnhálso-
várd“ eftir: Elisabet Hagelin,
heilsugæsluhjúkrunarfræðing, Mar-
garetha Magnusson, barnahjúkr-
unarfræðing og Claes Sundelin,
barnalækni sem Liber Láromedel
Stockholm hefur gefið út.
Bókin fjallar um heilsuvernd
barna í Svíþjóð og er hugsuð sem
undirstöðurit fyrir kennslu í þeirri
grein meðal nema í læknisfræði og
hjúkrunarfræði. Einnig er hún
notuð sem handbók í starfi á
heilsugæslustöðvum. Bókin
kostar 260 sænskar krónur.
Barnið okkar fæddist með
skarð í vör og/eða góm
Om þessar mundir er að koma út
bœklingur sem heitir Barnið okkar
fceddist með skarð í vör og/eða
góm.
Útgefendur eru: Ríkisspítalar,
Landlœknisembættið og Hjúkrun-
arfélag íslands.
Fyrir um sjö árum barst mér í
hendur norskur bæklingur um
börn fædd með skarð í vör og klof-
inn góm.
Sem móðir barns er þannig fædd-
ist, fannst mér hér vera saman
komnar upplýsingar, fræðsla og
uppörvun til allra foreldra, er
standa í sömu sporum og ég.
Framtíð þessara barna getur svo
sannarlega verið björt þó svo að
við fæðingu sé ekki allt eins og það
ætti að vera.
Þegar ég lít til baka finnst mér
næsta ótrúlegt að barn mitt hafi
fæðst með slíkt lýti. í dag sé ég
stóran skóladreng með sínar vænt-
ingar til lífsins. Hann hefur þurft
að reyna ýmislegt en ekkert óvið-
ráðanlegt, staðráðinn í að allt
muni fara vel.
Það er von mín að þessi bæklingur
megi verða foreldrum uppörvun
og þau börn, sem vaxin eru úr grasi
og fæddust með þennan fæðingar-
galla, skilji þýðingu þess að á slíkri
fræðslu er þörf. Það er einnig til-
gangur með útgáfu þessa bæklings
að hann sé til á sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum og nýtist heil-
brigðisstéttum sem vinna með
börn.
Mig langar að þakka Árna Björns-
syni, sérfræðingi í lýtalækningum,
fyrir mjög góðar undirtektir og
skilning á mikilvægi þessa litla rits,
svo og Vigdísi Magnúsdóttur,
hjúkrunarforstjóra Landspítal-
ans. Útgefendum er einnig þakk-
að, að þessi litli en að mínu mati
þýðingarmikli bæklingur lítur
dagsins ljós.
Bæklinginn má fá á skrifstofu
Hjúkrunarfélags íslands.
Rósa Einarsdóttir
Góðar fréttir
frá Bandaríkjunum
Hjúkrunarfræðingar í Maryland,
Bandaríkjunum hafa fengið
viðurkennt ákveðið hlutfall milli
hjúkrunarfræðinga og sjúklinga
við Liberty Medical Center í
Baltimore. Þar segir að í
almennri hjúkrun eigi að vera
einn hjúkrunarfræðingur á átta
sjúklinga og í gjörgæslu-,
slysa- eða bráðahjúkrun eigi að
vera einn hjúkrunarfræðingur á
tvo sjúklinga. Þessi samningur
er talinn vera sá fyrsti í Banda-
ríkjunum.
Úr American Journal of Nursing,
júlí 1987.
NÝI HJÚKRUNARSKÓLINN
Eirikigata 34
101 Reykjavík • í.land
Simi 62-11-95
Tilkynning frá
Nýja hjúkrunarskólanum
Ákveðið hefur verið að eftirfar-
andi nám hefjist í skólanum
haustið 1988, ef nægjanleg þátt-
taka fæst:
Nám í hjúkrunarstjórnun
Nám í geðhjúkrun
Jafnframt er ákveðið að nám í
skurð- og svæfingahjúkrun hefj-
ist um áramótin 1988-1989, ef
nægjanleg þátttaka fæst.
Námsskrár munu liggja fyrir
mánuði áður en nám hefst og
þá mun skólinn svara fyrir-
spurnum þar að lútandi.
Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu skólans að Eiríksgötu 34,
suðurdyr, sími 6211 95.
HJÚKRUN VÍ«-64. árgangur49