Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.05.1988, Qupperneq 56
Fréttir—Fréttir—Fréttir—Fréttir
Fréttir frá
Reykjavíkurdeild HFÍ.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
HFÍ var haldinn 28. janúar s.l., í
fundarsalnum að Suðurlandsbraut
22.
Fámennt var á fundinum og er
stjórn deildarinnar ekki ánægð
með það. Það er hreint og beint
makalaust að í deild sem telur
1466 meðlimi skuli innan við 50
manns mæta á aðalfund.
Ég bið ykkur að hugleiða það, að
vonleysi og örvænting grípur
mann, þegar félagsmenn sýna
félaginu sínu eða deildinni því-
líkan dofa og áhugaleysi. Það sér
hver maður að svona getur þetta
ekki gengið lengur. Hvað er fé-
lagið annað en hinn almenni félags-
maður? Er til of mikils ætlast að
félagsmenn mæti á fundi sex sinn-
um á ári, þ.e.a.s. á félagsfund í
deildinni sinni, annan hvern mán-
uð?
Stjórn deildarinnar er nú þannig
skipuð:
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, for-
maður, kosin fyrir ári síðan, til
tveggja ára.
Pálína Ásgeirsdóttir, varaformað-
ur.
Stefanía Snorradóttir, gjaldkeri.
Sigríður Sigurðardóttir, ritari.
Varamenn eru: Helga Bjarnadótt-
ir og Sigrún Óskarsdóttir. Þá fór
fram kosning á fulltrúum til full-
trúafundar, sem haldinn verður í
byrjun júní. Kosnir voru 10 nýir
fulltrúar, en deildin á 30 fulltrúa á
næsta fulltrúafundi. Hinir hlutu
kosningu, í fyrra, til tveggja ára.
Tillögur deildarstjórnar um laga-
breytingar:
Stjórnin lagði til að fækkað yrði í
stjórn deildarinnar um tvo. Yrðu
þá fjórir aðalmenn og tveir vara-
menn, í stað fimm aðalmanna
áður og þriggja varamanna. Vara-
menn verða áfram boðaðir á
stjórnarfundi, en þeim í sjálfsvald
sett hvort þeir mæta.
Kjör endurskoðenda:
Sigurlaug Magnúsdóttir situr
áfram í eitt ár og Ingibjörg Sigurð-
ardóttir gaf kost á sér næstu tvö
árin.
Að iokum langar mig að þakka fé-
lögum í fráfarandi stjórn samstarf-
ið. Árið var erfitt fyrir okkur, þar
sem við byrjuðum allar nýjar fyrir
ári, en þetta hefur jafnframt verið
afar lærdómsríkt ár.
Haldnir voru tólf stjórnarfundir
og sex félagsfundir á árinu.
Að síðustu langar mig að minna á
að ég verð áfram með viðtalstíma
á miðvikudögum frá kl. 15 til 17 og
eru allar hugmyndir og ábending-
ar vel þegnar.
Með von um betri fundarsókn á
nýju ári.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir,
formaður Reykjavíkurdeildar HFÍ.
Heilbrigðisþing
Þannó. febrúars.l. varhaldiðheil-
brigðisþing í Reykjavík. Þingið
sátu u.þ.b. 200 fulltrúar heilbrigð-
isstétta og annarra þeirra sem
sinna heilbrigðismálum.
Fyrir hönd Hjúkrunarfélags Is-
lands sátu þingið Pálína Sigurjóns-
dóttir, formaður og María Gísla-
dóttir, úr framkvæmdastjórn.
Heilbrigðisþing skal halda fjórða
hvert ár samkvæmt lögum um heil-
brigðisþjónustu. Þetta var annað
íslenska heilbrigðisþingið. Hið
fyrra var haldið árið 1980.
Árið 1977 setti Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin fram heilbrigðismark-
mið undir kjörorðinu „Heilbrigði
allra árið 2000“.
Árið 1986 ákvað þáverandi ríkis-
stjórn, að frumkvæði heilbrigðis-
ráðherrans, Ragnhildar Helga-
dóttur, að vinna að landsáætlun í
heilbrigðismálum með hliðsjón af
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar.
Árið 1987 var íslensk heilbrigðis-
áætlun lögð fram til Alþingis. Á
vegum heilbrigðisráðuneytisins
unnu síðan sjö vinnuhópar að
skoðun hinna ýmsu þátta heil-
brigðisáætlunarinnar og skiluðu
álitsgerðum. í vinnuhópunum
voru 6 hjúkrunarfræðingar. Á
heilbrigðisþinginu í febrúar s.l.
var fjallað um heilbrigðisáætlun-
ina og nefndarálitin. Skýrslur
vinnuhópanna voru um: Stefnu í
heilbrigðismálum, heilbrigða lífs-
hætti, heilbrigðiseftirlit, heilsu-
gæslu, lyfjamál, tryggingamál,
fjármuni og mannafla og rann-
sóknir og kennslu.
Dr. Halfdan Mahler, framkvæmda-
stjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
arinnar, ávarpaði þingið og fjall-
aði m.a. um forvarnir og fyrirbyggj-
andi starf.
Að loknum ávörpum og framsögu
vinnuhópa fóru fram almennar
umræður.
Nú að loknu heilbrigðisþingi á að
endurskoða heilbrigðisáætlunina
m.t.t. ábendinga og síðan verður
hún væntanlega lögð fram í vor til
þingsályktunar.
Ráðstefna
Samtaka heilbrigðisstétta
Laugardaginn 23. janúar s.l. var
haldin ráðstefna Samtaka heil-
brigðisstétta. í þessum samtökum
eru 19 aðildarfélög. Þau voru
stofnuð fyrir 19 árum með for-
göngu Maríu Pétursdóttur.
50 HJÚKRUN '/fe-64. árgangur