Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 13
Fréttabréf frá Vestmannaeyjadeild HFÍ
í tilefni 70 ára afmælis félagsins
Við buðum bæjarbúum upp á blóð-
þrýstingsmælingu í 2 stærstu versl-
ununum í bænum þann 19. maí s.l.
f*ar voru 2 hjúkrunarfræðingar á
vakt 2 tíma í senn frá kl. 10-12 og
14-18. Þetta var auglýst í bæjar-
blöðunum og í auglýsingunni fólst
uiarkmiö okkar. í því sama blaði
var kynning á Vestmannaeyjadeild
HFÍ. Áður höfðum við látið útbúa
eyðublöð til skráningar. Ef fólk var
1 efri mörkum báðum við það að
koma aftur í mælingu hjá hjúkrun-
arfræðingum á Heilsugæslustöð,
Þar sem 1 mæling væri ekki mark-
tæk.
Hjúkrunarfræðingar á Heilsu-
8®slustöðinni höfðu þá reglu að
mæla sjúklinga 2-3 með háa út-
k°rnu, áður en þær sendu þá til
heilsugæslulækna. Við höfum ekki
tölu yfír hvað margir þurftu með-
höndlunar við en vitum um þó
nokkra og höfum séð árangur af
starfi okkar.
I annarri versluninni buðum við
aö auki upp á cholesterolmælingu
°g dreifðum matarlista frá Hjarta-
vernd til þeirra sem reyndust háir.
í hinni versluninni sýndum við
myndbandið um Hjúkrun allan
daginn og fólk fylgdist með því á
meðan það beið við kassann. Bækl-
ingum frá Hjartavernd og Krabba-
meinsfélginu var dreift á báðum
stöðum og þeir sem ekki reyktu
voru sæmdir „orðu“ frá Krabba-
meinsfélaginu sem á stóð „Ég er í
reyklausa liðinu“. Gekk fólk stolt
út með þetta merki í barminum.
Þetta átak okkar mæltist mjög
vel fyrir og fékk góða umfjöllun.
Við höfðum allar ómælda ánægju
út úr þessum degi. Fólkið var svo
þakklátt og lýsti óspart ánægju
sinni með framtak okkar.
Daginn eftir slógum við í Vest-
mannaeyjadeild HFÍ upp fjöl-
skylduveislu með þátttöku heiðurs-
félaga okkar, frú Helgu Jóhanns-
dóttur.
Starfsemi okkar hefur legið niðri
í sumar en nú förum við að taka til
óspilltra málanna.
17. september 1989
F.h. Vestmannaeyjadeildar HFÍ
Lóa Skarphéðinsdóttir.
Niðurstöður blóðþrýstings-
mælinga hjúkrunarfélagsins
35,9% reykja og 37,4%
stunda líkamsrækt
Niðurstöður úr blóðþrýstingsmæl-
ingunum voru þessar:
Heildarfjöldi þeirra sem mældir
voru 382. Þar af karlar 137 og konur
245. Af þeim voru 137 sem reykja
eða 35,9%. 143 stunda líkamsrækt
eða 37,4%. 116 voru með hækkað-
an blóðþrýsting eða 30,4%.
Alls voru 202 yfir 40 ára aldri
mældir. Af þeim voru 59 sem
reykja, eða 29,2%. 72 stunda
líkamsrækt eða 35,6%. 87 höfðu
háan blóðþrýsting þ.e. 160/90 og
hærri sem er 43,1%. Fyrri brota-
talan er blóðþrýstingur þegar
hjartað er í vinnslu en lægri talan er
blóðþrýstingur þegar hjartað er í
hvíld.
180 voru mældir undir 40 ára
aldri. Þar af reykja 78 eða 43,3%.
71 stundar líkamsrækt, sem er
39,4%. 29 höfðu hækkaðan blóð-
þrýsting þ.e. 140/90 og hærri eða
16,1%.
Nokkrir einstaklingar mældust
verulega hækkaðir þ.e. yfir 100 í
neðri mörk (diastola) varþeim bent
á að ein mæling sé ekki marktæk við
þess aðstæður. Var því fólki ráðlagt
að láta endurtaka mælingu hjá
hjúkrunarfræðingi á Heilsugæslu-
stöð.
Hjúkrunarfræðingar þakka bæj-
arbúum góðar undirtektir og sér í
lagi starfsfólki á Tanganum og
Kaupfélginu í Goðhrauni fyrir
mjög góðar móttökur.
„Fréttir“ 25. maí 1989.
HJÚKRUN Mt9 - 65. árgangur 11