Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 82
Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir - Fréttir
Fréttir frá stjórn
Sá háttur var á hér fyrr að úrdráttur
helstu málaflokka sem fjallað var
um í stjórn birtist í blaðinu.
Ákveðið hefur verið að fréttir frá
stjórn birtist nú reglulega í blaðinu,
félagsmönnum vonandi til einhvers
fróðleiks.
Árið 1989 hefur um margt verið
viðburðarríkt. Á fyrsta fundi fé-
lagsstjórnar á nýbyrjuðu ári voru
samþykktar yfirgripsmiklar tillögur
sem áhersluatriði í komandi kjara-
samningum. Kjaramál settu því
svip sinn á störf stjórnar fyrrihluta
ársins. Haldnir voru tveir fundir
með stjórn FHH um kjaramál en
félagið stóð í verkfalli í apríl sem
eitt af aðildarfélögum BHMR. Fé-
lagsstjórn samþykkti 500.000 kr.
styrk til hjúkrunarfræðinga í FHH
og rann það í Vinnudeilusjóð
félagsins. Kjaramálanefnd og
stjórn ákváðu að ekki skyldi hafa
samflot við félaga innan BSRB í
kjarasamningum, heldur samið sér.
Nóttina fyrir fulltrúafund gekk
síðan saman með samningsaðilum
og gildir sá samningur til 1. febrúar
1990. Hafinn erundirbúningurfyrir
næstu samninga.
Eins og félagsmönnum er kunn-
ugt hættir Nýi hjúkrunarskólinn
störfum um næstu áramót og mun
starfsemi sú er hann hefur gegnt
færast til Háskóla íslands. Þar
munu allir hjúkrunarfræðingar eiga
rétt á framhalds- og endurmennt-
un. Samstarfsnefnd á vegum NHS
og HÍ hefur starfað vegna þessa. í
henni eiga sæti frá NHS Sigþrúður
Ingimundardóttir, Pálína Sigur-
jónsdóttir, Sigríður Halldórsdóttir
og Birna Flygenring. Frá hálfu
námsbrautar í hjúkrunarfræði Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, Margrét
Gústafsdóttir, Herdís Sveinsdóttir
og Þórólfur Þórlindsson.
Félagsstjórn samþykkti á fundi
sínum 10. febrúar s.l. starfsreglur
fyrir rannsóknarnefnd HFÍ og á
fundi sínum 5. október reglur fyrir
vísindasjóð HFÍ. Leitað var til
deildar heilsugæsluhj úkrunarfræð-
inga um að minnast 12. maí alþjóða-
dags hjúkrunarfræðinga, en
„Skólahjúkrun“ var lykilorð
dagsins. Fræðslufundurvaráþeirra
vegum í húsnæði HFÍ þann dag og
tókst vel.
Á félagsstjórnarfundum er
alþjóðlegt og norrænt samstarf til
umfjöllunar en HFÍ er aðili að SSN
og ICN. 19. alþjóðaþingi hjúkrun-
arfræðinga sem haldið var í Seoul
S-Kóreu 28. maí til 2. júní s.l. eru
gerð skil í þessu blaði ásamt full-
trúafundi SSN sem haldinn var í
Danmörku 20.-22. september s.l.
Margvíslegt samstarf við stjórn
FHH var á árinu og héldu stjórn-
irnar með sér 6 sameiginlega fundi.
HFÍ samþykkti á fulltrúafundi 1988
tillögur sem eru stefnumarkandi
fyrir sameiningu félaganna.
Mikil gróska hefur verið í sam-
eiginlegu norrænu þróunrverkefni
sem er um gæðatryggingu í
hjúkrun. Fulltrúar HFÍ eru Anna
Birna Jensdóttir og Guðrún Karls-
dóttir. Þá hefur Vilborg Ingólfs-
dóttir verið fulltrúi HFÍ á nor-
rænum námskeiðum í hjúkrunar-
rannsóknum.
Félagsstjórn heldur fundi árs-
fjórðungslega en framkvæmda-
stjórn 1. og 3. fimmtudag í hverjum
mánuði. Fjöldi mála berast félag-
inu af margvíslegum toga. Félags-
mönnum er bent á að formenn
svæðisdeilda fá allar fundagerðir
sendar einnig hefur formaður
fastan símatíma milli kl. 11 og 12
hvern dag.
Sigþrúður Ingimundardótdr
formaður.
Tillögur um löggjöf
um skilgreiningu dauða
og brottnám líffæra
til ígræðslu í aðra
Heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra hefur ákveðið að skipa nefnd
sem gerir tillögur um löggjöf um
skilgreiningu dauða og brottnám
líffæra til ígræðslu í aðra.
í nefndinni verða Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri formaður, Ólafur
Ólafsson landlæknir, Páll Ás-
mundsson læknir, Sigfinnur Þor-
leifsson prestur, Sigþrúður Ingi-
mundardóttir hjúkrunarfræðingur
og Þórður Harðarson læknir.
Ritari nefndarinnar er Dögg
Pálsdóttir lögfræðingur.
„Neyðarfundur“ um
málefni geðsjúkra
Kiwanishreyfingin á íslandi efndi
til „neyðarfundar" um málefni geð-
sjúkra 18. október sl. Fundurinn
fór fram á Hótel Borg og hófst kl.
17. Til fundarins var boðið alþingis-
mönnum, borgarfulltrúum, emb-
ættismönnum, íbúum sambýla og
áfangastaða, starfsfólki í geðheil-
brigðiskerfinu o.fl. Fundurinn var
öllum opinn.
Sex sérfræðingar fluttu stutt
erindi á fundinum: Bjarney Krist-
jánsdóttir, yfirfélagsráðgjafi á
Landspítalnum, Bragi Guðbrands-
son, félagsmálastjóri í Kópavogi,
Jón G. Stefánsson, yfirlæknir á
geðdeild Landspítalans, Magnús
Þorgrímsson, sálfræðingur og for-
maður Geðhjálpar, Margrét Bárð-
ardóttir, sálfræðingur á Klepps-
spítala og Ólafur Ólafsson land-
læknir.
Kiwanismenn seldu síðan K-lykil-
inn til styrktar geðsjúkum en hagn-
aði af sölunni verður varið til bygg-
ingar sambýlis í Reykjavík.
76 HJÚKRUN - 65 árgangur