Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 74
Haraldur Briem og Sigurður Guðmundsson, sérfræðingar í smitsjúkdómalækningum
Bólusetning gegn mislingum,
rauðum hundum og hettusótt
Að höfðu samráði við far-
sóttanefnd, Félög heimilis-
lœkna, barnalœkna og smit-
sjúkdómasérfrœðinga, hefur
verið ákveðið aðfrá og með 1.
janúar 1989 verði tekin upp
bólusetning með þrígildu bólu-
efni gegn mislingum, rauðum
hundum og hettusótt. Mark-
miðið er að útrýma þessum
farsóttum. Bólusetningarað-
ferð sem beitt hefur verið gegn
rauðum hundum hefur komið
í vegfyrir fœðingar skaddaðra
barna en ekki faraldra, sem
gengið hafa yfir.
Landlœknir
Þrígilt bóluefni
gegn mislingum, hettusótt
og rauðum hundum
Landlæknir hefur ráðlagt að hafnar
verði almennar ónæmisaðgerðir
með þrígildu bóluefni gegn misling-
um, hettusótt og rauðum hundum
frá 1. janúar 1989.Hérlendis hafa
verið framkvæmdar ónæmisaðgerðir
gegn þessum sjúkdómum með mis-
munandi aðferðum. Árangurinn
hefur verið viðunandi hvað varðar
mislinga og rauða hunda en nú er
ætlunin að bæta um betur og út-
rýma þessum sjúkdómum með
þrígilda bóluefninu. Til þess að sá
árangur náist er nauðsynlegt að
þátttaka í bólusetningunni verði
almenn.
Mislingar:
Mislingar eru oft alvarlegur sjúk-
dómur og fylgikvillar eru algengir.
Má þar nefna lunganbólgu2) og
aðrar sýkingar af völdum baktería.
Allt að helmingur þeirra sem sýkj-
ast fá heilabólgu3* og u.þ.b. 1/1000
fá einkenni um heilabólgu. Van-
nærðum börnum í þróunarlöndum
er sérstaklega hætt við alvarlegum
sjúkdómi af völdum mislinga trú-
lega vegna lélegs frumubundins
ónæmis4). Verndun einstaklinga
gegn mislingum með ónæmisaðgerð-
um er því mikilvæg og óumdeild.
Almenn mislingabólusetning
hófst meðal 18 mánaða barna í
Reykjavík og víðar í landinu 1976.
Frá þeim tíma hefur aðeins einn
mislingafaraldur herjað á landinu
en það var árið 1977. Þrátt fyrir
þetta hefur af og til borið á mislinga-
tilfellum einkum 1985. Enda þótt
mislingabóluefnið sé mjög virkt er
ástæða til að ætla að hægt sé að ná
til fleiri einstaklinga og bæta enn
frekar ónæmissvörun með bóluefn-
inu með því að bólusetja tvisvar
t.d. við 18 mánaða aldur og aftur
við 12 ára aldur5). Nú er talið að
útrýming mislinga sé raunhæft mark-
mið6) enda hefur Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin (Evrópudeildin) sett
það markmið fyrir árið 1995.7)
Hettusótt:
Hettusótt er algengur sjúkdómur
sem gengið hefur í faröldrum á um
það bil 5 ára fresti eftir 1940 á ís-
landi8). Sjúkdómurinn er algeng-
astur meðal barna á aldrinum 5-10
ára. Þótt sjúkdómurinn sé í flestum
tilfellum vægur eru alvarlegir fylgi-
kvillar ekki sjaldgæfir. Er talið að
allt að 15% þeirra sem sýkjast fái
einkenni frá miðtaugakerfi9). Af
þeim sem leggjast á sjúkrahús
vegna einkenna frá miðtaugakerfi
má ætla að 1-4% fái alvarlega fylgi-
kvilla s.s. heyrnarleysi, lamanir
o.fl.10,u)Um20% þeirrakarlmanna,
sem fá veikina á kynþroskaaldri, fá
bólgur í eistu, sem valda þó mjög
sjaldan ófrjósemi.9) Tíðni hjarta-
bólgu er álitin vera 4-15%12,13) og
getur hjartabólga af völdum hettu-
sóttar valdið dauðsföllum.l4) Fleiri
fylgikvillar hettusóttar eru þekktir
eins og briskírtilsbólga.15) Ávinn-
ingur af hettusóttarbólusetningu er
því talinn ótvíræður.16)
Allt frá því að Bandaríkjamenn
hófu bólusetningar gegn hettusótt
1968 hefur nýgengi sjúkdómsins
minnkað umtalsvert eða um 98%
og er nú einungis skráð 1,2 tilfelli/
100.000 íbúa á ári.17) Enda þótt flest
hettusóttartilfelli í Bandaríkjunum
verði meðal eldri óbólusettra ein-
staklinga verður að hafa í huga að
dregið hefur verulega úr nýgengi
sjúkdómsins í öllum aldurshóp-
um.17) Þannig hefur ekki borið á
neinni aukningu á hettusótt meðal
eldri einstaklinga í Bandaríkjunum
þau rúmlega 20 ár sem hún hefur
verið framkvæmd þar.
Rauðir hundar:
Árið 1979 hófust almennar bólu-
setningar hérlendis gegn rauðum
68 HJÚKRUN - 65. árgangur