Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 85
hann. Ég hefði aldrei tekið þetta að
mér nema fyrir hvatningu hans og
stuðning. Fyrstu árin aðstoðaði
hann mig mikið við útlitsteikningu
á blaðinu og lagði hönd á plóginn á
margvíslegan hátt. Það hafa eigin-
menn annarra ritstjórnaraðila einnig
gert.
Ég tek síðan við blaðinu í janúar
1970. Elísabet Malmberg heitin,
fráfarandi ritstjóri, hjálpaði mér
ómetanlega og ritstjórnin sem hafði
verið með Elísabetu hélt áfram.
Það voru þær: Alda Halldórsdóttir,
Lilja Óskarsdóttir og Sigurveig Sig-
urðardóttir. Þær voru og eru enn
stórkostlegir persónuleikar, sem
gaman er að vinna með.
Það sama má segja um aðra rit-
stjórnaraðila sem ég hef starfað
með og langar mig að nefna þá:
Sigrún Einarsdóttir, Erna Holse,
Elísabet Ingólfsdóttir, Stefanía
Sigurjónsdóttir, Guðrún Askels-
dóttir, Anna María Andrésdóttir,
Ingibjörg Helgadóttir, Sigrún Sig-
urjónsdóttir, Anna S. Indriðadótt-
ir, Áslaug Sigurbjörnsdóttir, Jóna
Guðmundsdóttir, Sigríður Sigur-
jónsdóttir, Ása St. Atladóttir, Sig-
ríður Skúladóttir og Rannveig Sig-
urbjörnsdóttir.
Þegar ég tók við blaðinu var fram-
undan Norðurlandaþing hjúkrun-
arkvenna, en slík þing voru haldin
með reglulegu millibili til skiptis á
Norðurlöndunum. Þá voru þetta
opin þing og öllum hjúkrunarfræð-
ingum heimil þátttaka.
Þau gátu því orðið mjög fjöl-
menn. Samvinna hjúkrunarfræð-
inga á Norðurlöndum hafði þá
ákveðið að hætta að halda slík þing
og halda fulltrúafundi með kjörn-
um fulltrúum í þess stað. Þetta var
því síðasta opna þingið sem halda
skildi að sinni og það átti að fara
fram hér á Islandi.
Fyrsta opinbera embættisverkið
mitt var að ég var send til Svíþjóðar
til að funda með ritstjórum hjúkr-
unarblaðanna á Norðurlöndum, til
að undirbúa þingið hvað fjölmiðlun
varðaði. Erfiðast fannst mér þá
hvað sænskan vafðist verulega fyrir
mér, þó ég væri ágæt í dönsku. Ég
hélt því dauðahaldi í danska rit-
stjórann, sem þýddi fyrir mig þegar
á þurfti að halda.
RITSTJÓRAR TÍMARITS HFÍ „HJÚKRUN“
Fremrí röðfrá vinstrí: Margrél Jóhannesdóttir, Sigríður Bachmann, Þorbjörg Árnadóttir, Sigríður Eiríksdóttir. Aftari röðfrá vinstri:
Valgerður Helgdóttir, Ásta Hannesdóttir, Sigríður Jakobsdóttir, Jóna Hall, Aðalheiður Árnadóttir, Jóhanna Stefánsdóttir, Ingibjörg
Arnadóttir. Margir aðrir hjúkrunarfrteðingar hafa staðið íforsvari fyrir „Hjúkrun" fráþvíað blaðið hóf göngu sína 1925, en ekki náðist
til fleiri þegar myndin var tekin 1982. Ljósm.: Emil Þór.
HJÚKRUN Ma - 65. árgangur 79