Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 58

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 58
veikur maður eins og við höfum séð hann í bíó, í spennitreyju, og froðufellandi... þið kannist við þetta, ekki satt? Auðvitað er þetta misskilningur og er leitt til þéss að vita, að veikt fólk skuli vera notað sem skemmti- efni fyrir okkur sem erum svo hepp- in að vera ófötluð. Að minnsta kosti mætti oft sleppa öfgunum og sýna það sem sannara er. Sjúkling- arnir eru sjálfir haldnir fordómum, og það er þeim mikið andlegt áfall að þurfa að leggjast inn á geðsjúkra- hús. Þeir eru hræddir og kvíðnir fyrir því ókomna. Það opnast fyrir þeim nýr óþekktur heimur, sem á vissan hátt ógnar þeim. Þeir verða örvinglaðir og þjást af einmana- kennd og öryggisleysi. Þeir muna bara allt það neikvæða sem þeir hafa heyrt, séð eða lesið um geð- sjúkrahús, þ.e. spennitreyjur, öskur og óhljóð, froðufellandi ein- staklinga o.s.frv. Við eigum að breyta þessu við- horfi sjúklingsins, draga úr fordóm- um hans, og fá hann til að upplifa dvöl sína á geðdeild sem jákvæðan áfanga á leið til betri heilsu eða bata. Til þess að geta þetta verðum við að vera fordómalaus. Ha, við? Höfum við fordóma gagnvart geðrænum vandamálum, geðsjúklingum? Já, því miður. Bæði í daglega lífinu og innan heil- brigðiskerfisins. Þeir sem vinna við geðhjúkrun segjast finna fyrir for- dómum annarra í heilbrigðiskerf- inu, og að jafnvel þeirra eigin stétt líti á þá sem annars flokks starfs- fólk. Þetta er ósanngjarnt og til skamm- ar. Geðhjúkrun er mjög krefjandi starf, sem oft sýnir ekki árangur langtímum saman og t. d. í erfiðum yfirsetum geta samskipti sjúklings og starfsfólks verið niðurlægjandi fyrir báða aðila. Þess vegna þarf að hlúa vel að sjálfsvirðingu beggja. Fordómar og neikvæð viðhorf okk- ar hinna er það sem síst er þörf á. Sjúklingar hafa sagt, að þegar þeir reyni að segja frá því á vinnu- stað, að þeir hafi verið á geðsjúkra- húsi, þá sé allt í fari þeirra skyndi- lega gagnrýnisvert. Þeir mega ekki reiðast eða hækka röddina, þá fara starfsfélagar þeirra strax í varnar- stöðu og hræðsla skín úr augum þeirra. Það mætti benda ófötluðum á að líta í spegil næst þegar þeir reiðast, líklega brigði einhverjum í brún! Meira að segja þeirsem tróna á toppi píramídans í heilbrigðis- kerfinu, já læknarnir, eru haldnir fordómum, sumir hverjir að minnsta kosti. Þeir eiga þó að vita meira en við hin! Eru það ekki fordómar þegar læknir segir við sjúkling?: „Viltu í alvöru leggjast inn á geð- deild?,, eða: „Viltu fara áLandspít- alann, eða er þér sama þótt þú farir á Kleppsspítalann?" I Ef þetta eru ekki fordómar, hvað þá? Er ekki Landspítalinn og Kleppsspítalinn sama stofnunin, með sömu þjónustuna? Jú, að sjálfsögðu. Við skyldum ætla, að það ætti ekki að skipta máli á hvorn staðinn fólk Ieitar hjálpar, en því miður er ekki svo, því enn fylgja Kleppsnafninu þessi neikvæðu viðbrögð. Haft hefur verið eftir sjúkling- um, að það væri þungbært að vera veikur, en að verða fyrir öllu þessu þekkingarleysi, jafnvel eftir að bati var fenginn, væri illþolanlegt. T. d. væri framkoman við þá stundum eins og viðkomandi hefði smitsjúk- dóm. Það hefur jafnvel gengið svo langt, að börn þessara einstaklinga, á skólaskyldualdri, hafa verið snið- gengin, uppnefnd og lögð í einelti vegna þess að heyrst hafi að foreldri væri, eða hefði verið á Kleppi. Við skulum taka nokkur dæmi um við- horf og viðbrögð, frá sjónarhóli sjúklinganna: „Ég var settur inn á Kleppsspít- ala fyrir tveimur árum síðan, og ég fyrirgef þeim það aldrei, því enn geng ég með Kleppsspítalastimpil- inn á bakinu.“3) „Við viljum ekki vera lokuð inni. Enginn hefur gott af að vera lok- aður inni þó að í mjög alvarlegum tilfellum geti þurft þess tímabund- ið. Við erum ekki glæpamenn þó að við veikjumst. Allir hafa átt sínar erfiðu stundir, líka þeir sem eru fyrir utan. Gott viðmót og hlýja er betra en öll deyfilyf hvaða nöfnum sem þau nefnast. Þau eru allt sama tóbakið. Það er ætlast til þess að við gerum eitthvað af okkur, sönnum að við séum vitlaus og geðveik.“4) „Það voru alltaf þessir eilífu fundir alla morgna. Á fundunum var setið í hring í kringum borð og 2-3 læknar við háborð. Eitt sinn byrjaði einn læknirinn fundinn á þessari setningu: „Þið verðið að muna að þið eruð allar geðveikar og ykkur batnar aldrei alveg.“ Þegar fundunum var lokið hlupu flestir á eftir læknunum eins og skólakrakkar til að spyrja um eitt og annað sem þeir höfðu ekki haft einurð í sér til að spyrja um á fund- inum. Þeirra á meðal var ég. Ég gat aldrei tjáð mig í fjölmenninu á fundunum.“ 5) „Við hvað var ég alltaf svona hrædd? Hvað orsakaði alla þessa hræðslu og kvíða? Ég var oft svo hrædd í bæjarleyfum að ég þorði ekki upp í strætisvagninn og fór venjulega út úr honum að aftan jafnóðum. Ég gekk beina leið aftur inn á spítala. Það er engin leið að lýsa þessum tilfinningum sem grípa mann. Ef ég reyndi að tjá mig um þessa vanlíðan mína var alltaf eins og einhver kökkur væri í hálsinum á mér. Ég reyndi að stama einhverju upp en gafst svo alveg upp á að reyna að útskýra hvernig mér leið.“6) „Mér hafði verið boðið til veislu. Það er komið með bakka með vín- glösum til mín. Ég rétti út höndina eftir glasi. Þá hrópar ein frúin: „Guð almáttugur, mátt þú fá þetta?“ fyrst langar mig til að skvetta úr glasinu í andlitið á henni en átta mig svo. Ég fer því að reyna að lyfta glasinu í átt til hinna ýmsu gesta sem þarna eru. En þeir líta bara undan og þykjast ekki taka eftir mér. Ég þori ekki að skilja glasið við mig en þar sem ég er á hinum ýmsu taugalyfjum rek ég rétt tunguna ofan í glasið af hræðslu við hinar illu afleiðingar er hlytust af ef ég drykki ofan í lyfin. Mér finnst það samt virka eins og ég sé að reka tunguna framan í gestina. Ég fer að litast um eftir einhverjum sem ég kannast við. Jú, þarna er maður sem ég þekki. Ég geng til hans. En 52 HJÚKRUN - 65. árgangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.