Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 28
Kristbjörg Þórðardóttir skólastjóri
Námsstefna um
illa meðferð á börnum
/
Itilefni 20 ára afmælis
deildar heilsugœsluhjúkr-
unarfrœðinga og 10 ára
afmœlis deildar barnahjúkr-
unarfræðinga innan HFÍ,
minntust deildirnar tímamót-
anna með því að efna til náms-
stefnu dagana 21. og 22. sept-
ember s.l. í ráðstefnusal ríkis-
ins að Borgatúni 6, Reykjavík.
Námsstefnan bar yfirskriftina
„III meðferð á bömum“ yfirskriftin
er fengin að láni úr Heimsljósi Hall-
dórs Kiljans Laxness. Þegar undir-
búningsnefndin valdi yfirskrift
námsstefnunnar hafði hún í huga
Ólaf Kárason Ljósvíking. Ólafur
lagði sig allan fram við fermingar-
undirbúning sinn og lærði heima-
lærdóminn utanað. í kristindómn-
um stóð meðal annars: „111 meðferð
á skepnum ber vott um grimt og
guðlaust hjarta“ Ólafurþuldi þetta:
„Hundrað og ellefta meðferð á
skepnum ber vott um grimt og
guðlaust hjarta“. Væntanlega er
öllum kunnugur eftirleikur þessa
skiljanlega misskilnings Ólafs
Kárasonar.
Með námsstefnunni vildu deild-
irnar leggja sinn skerf að mörkum
til að vekja athygli manna hér á
landi á því erfiða vandamáli sem ill
meðferð á börnum er og vonast þær
til þess að námsstefnan opni um-
ræður um þessa dökku hlið samfé-
lagsins. Hér er á ferðinni alvarlegt
og viðkvæmt mál. Börn bera ekki
vandamál sín á torg því verðum við
að hjálpa þeim börnum sem beitt
hafa verið illri meðferð, fá þau til
að opna sig, skýra frá vandamálum
sínum og fá þau til að skilja að til er
fullorðið fólk sem vill hlusta á þau
og skilur þau. Við teljum að opnar
og málefnalegar umræður um illa
meðferð á börnum sé fyrsta skrefið
til lausnar vandans.
Tildrög þess að þetta efni var
valið í sambandi við afmæli deild-
anna var vaxandi umræða meðal
hjúkrunarfræðinga um illa meðferð
á börnum. En umræður um þennan
málaflokk varð enn meiri eftir að
nokkrir hjúkrunarfræðingar sóttu
samnorræna ráðstefnu um illa með-
ferð á börnum í Osló í september
1982. Pegar þeir komu heim fóru
þeir að hugleiða hvernig þessum
málum væri háttað hér á landi.
Það var síðan í ársbyrjun 1988 að
Bergljót Líndal hjúkrunarforstjóri
á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
kallaði saman vinnuhóp hjúkrun-
arfræðinga sem síðan hefur komið
saman vikulega undir faglegri
stjórn Huldu Guðmundsdóttur fé-
lagsráðgjafa og rætt um illa með-
ferð á börnum.
Að undirbúningi námsstefnunn-
ar stóðu: Bergljót Líndal, heilsu-
gæsluhjúkrunarfræðingur, hjúkr-
unarforstjóri Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, form.,
Guðrún Ragnars, barnahjúkrunar-
fræðingur, barnadeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur. Hall-
dóra Kristjánsdóttir, barna-
hjúkrunarfræðingur, vökudeild
Landspítalans, form. deildar
barnahjúkrunarfræðinga, Hallveig
Finnbogadóttir, heilsugæslu-
hjúkrunarfræðingur, barnadeild
heilsuverndarstöðvar Reykjavík-
ur. Herdís Storgaard, hjúkrunar-
fræðingur deildarstjóri slysadeildar
Borgarspítalans, Hertha W. Jóns-
dóttir, barnahjúkrunarfræðingur,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, Bama-
spítala Hringsins, Kristbjörg Þórð-
ardóttir, hjúkrunarfræðingur
MPH, skólastjóri Sjúkraliðaskóla
Islands, form. deildar heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga, María Guð-
mundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
26 HJÚKRUN ^9-65. árgangur