Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 49
Sigþrúður Ingimundardóttir, for-
maður og Pálína Sigurjónsdóttir,
varaformaður fundinn. Vel hafði
verið staðið að undirbúningi fund-
arins og öll fundagögn borist aðild-
arfélögunum með góðum fyrirvara.
Formaður ICN tímabilið 1985-
1989 Nelly Garzon frá Kólombíu
flutti skýrslu stjórnar ásamt fram-
kvæmdastjóra ICN, Constance Holl-
eran. Mikil gróska hefur verið í öllu
starfi ICN á tímabilinu og formaður
ferðast víða til aðildarlandanna.
Málaflokkar eru margir má þar
m.a. nefna þróunaraðstoð við hin
ýmsu aðildarfélög ICN. Þetta verk-
efni hefur verið forgangsverkefni
s.l. fjögur ár. Áætlunin er tvíþætt:
Annars vegar að hjálpa hjúkrunar-
fræðingum í Afríku til að takast á
við hin ýmsu heilbrigðisvandamál í
sínu landi, Hins vegar að gefa þeim
möguleika á meiri menntun og að
öðlast annað sjónarmið með náms-
ferðum til Evrópu. Starfshópur
undir styrkri stjórn Kirsten
Stallknecht, formanns danska
hjúkrunarfélagsins hefur unnið
ötullega að þessum málum á tíma-
bilinu.
Innan vébanda ICN er starfandi
nefnd „Professional Services Com-
mitee“ þar er fjallað um fag- og
félagsleg málefni, einnig vinnur
nefndin náið með hinum ýmsu aðil-
um. Má þar nefna Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunina (WHO), en
verkefni hennar „Heilbrigði öllum
til handa árið 2000“ hefur verið eitt
af aðalverkefnum ICN síðan 1978
að Alma Ata yfirlýsingin var gefin
út. Af öðrum aðilum sem nefndin
starfar með má nefna, Alþjóða
Rauða krossinn, Sameinuðu þjóð-
irnar og Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna.
Á fulltrúafundinum voru sam-
þykktar margar ályktarnir:
Daudarefsing
Noregur lagði fram ályktun um
dauðarefsingu, þar kom fram að
dauðarefsing stríddi gegn öllum
grundvallaratriðum hjúkrunar, að
vernda líf, lina þjáningar og efla
heilbrigði.
Gegn kjamorkustríði
og vopnabúnaði
Ástralía lagði fram ýtarlega
ályktun um þetta yfirgripsmikla
málefni. Þar kom fram að ef til
kjarnorkustyrjaldar kæmi, yrði
enginn möguleiki á því að veita þá
hjúkrun sem nauðsynleg væri þeim
er myndu lifa. Því yrðu hjúkrunar-
fræðingar að vinna að því að kjarn-
orkustríð brytist ekki út. ICN var
falið að útbúa kennslugögn er
tækju mið af því að gera hjúkrunar-
fræðinga sér meira meðvitaða um
málið.
Ályktun um
hjúkrunarfrœðinga
Stjórn ICN lagði fram ályktun þar
sem hvatt er til þess að aðildrlöndin
beiti sér fyrir því að gera átak í að
halda hjúkrunarfræðingum innan
starfsins. Þetta verði gert í sam-
vinnu við yfirvöld og litið verði á í
því sambandi, starfsaðstöðu hjúkr-
unrfræðinga, menntun og launa-
kjör.
Eyðni - Krabbamein -
III meðferð á börnum
England lagði fram ályktun um það
að öll aðildarlöndin beittu áhrifa-
mætti sínum gegn sjúkdómnum
eyðni og að allar upplýsingar um
þennan vágest væru aðgengilegar
fyrir fólk. Jafnframt lagði breska
hjúkrunarfélagið fram ályktanir
um mikilvægi forvarnarstarfs gagn-
vart krabbameini.
111 meðferð á börnum hefur
mikið verið rædd innan stjórnar
ICN. í ályktun frá breska hjúkrun-
arfélaginu kom fram að nauðsyn-
legt væri að útbúa reglur um hlut-
verk hjúkrunarfræðinga í því sam-
bandi.
Reykingar
Kanada lagði fram ályktun þar sem
hvatt er til þess að hjúkrunarfræð-
ingar gangi á undan með góðu for-
dæmi gagnvart reykingum.
Greiðslukerfi innan
heilbrigðisþjónustunnar
Bandaríkin lögðu fram ýtarlega
greinagerð um „Analysis of health
care payment systems based on
prospective payment and diag-
nosis-related groups (DRGs),“
sem var samþykkt. Þar kom fram
að mikilvægt væri fyrir hjúkrunar-
fræðinga að halda vöku sinni og
vera með í uppbyggingunni frá
byrjun.
Enska hefur verið opinbert mál
innan ICN, þar sem flestir tala það
mál. Öll gögn eru þó einnig á
frönsku og spænsku. Á fundinum
var þýtt jöfnum höndum á málin
þrjú ásamt japönsku. Mikil um-
ræða varð um það á fundinum
hvernig standa skyldi að samþykkt
frá því fyrir tveimur árum þannig
að frönsku og spænsku yrði gert
jafnt undir höfði eins og enskunni.
Þetta þýðir í reynd það að allir eru
jafnhæfir til að gefa kost á sér í
stjórn og vinnunefndir ICN. Regl-
an hefur verið sú að einungis þeir
sem skildu og töluðu ensku væru
gjaldgengir þar sem enska er töluð
þar. Danmörk var með móttillögu
og rökstuddi mál sitt á þeim for-
sendum að mikil auka fjárútlát
myndu verða, þar sem túlka þyrfti
allt sem sagt væri á t.d. stjórnar-
fundum. Norðurlöndin studdu til-
lögu Danmerkur, en Norðurlöndin
borga samviskusamlega fyrir hvern
sinn félagsmann til ICN, meira en
mörg lönd gera. Aukin fjárbyrgði á
ICN vegna tungumálaörðugleika
kæmi ekki fram á neinu öðru en
hækkun félagsgjalda og það kæmi
hart niður á okkur hér í norðrinu.
Tillagan var felld og frá og með
1993 verða enska - franska -
spænska opinber mál innan ICN.
Stjórn ICN tímabilið 1989-1993
skipa:
Forseti Dr. Mo-Im Kim frá
Kóreu. 1. varaforseti Trevor Clay
frá Englandi. 2. varforseti Martha
Quivey frá Noregi. 3. varaforseti
Merel Hanson frá Jamaica.
Aðrir stjórnarmenn eru: Dr.
Amelia Mangay-Maglacas frá Fil-
ippseyjum, Inger Ohlsson frá
Svíþjóð, Dr. Margretta Styles frá
HJÚKRUN - 65. árgangur 43