Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Side 64
strákana ráða ferðinni en kynlíf er
hins vegar mjög náin og innileg
tjáning tveggja einstaklinga þar
sem báðir þiggja og báðir gefa.
Oft er sagt að strákar hafi meiri
og sterkari kynhvöt en stelpur.
Kynhvöt er hins vegar fremur ein-
staklingsbundin en kynbundin.
Kynhvötin og löngunin getur verið
mismikil á ævinni. Það geta komið
tímabil í lífi okkar allra þar sem við
höfum takmarkaðan áhuga á kyn-
lífi og þörf okkar fyrir kynlíf vaknar
ekki endilega um leið og við verð-
um kynþroska.
Það hefur í för með sér töluverða
ábyrgð að lifa kynlífi. Þú þarft að
geta borið virðingu fyrir sjálfri/
sjálfum þér og vita hvað þú vilt auk
þess að taka tillit til annars einstak-
lings, virða tilfinningar hans og
skoðanir. Þú þarft að vita hvernig
hægt er að koma í veg fyrir að nýr
einstaklingur verði til. Þú þarft
einnig að vita að það getur verið
áhætta fólgin í því að kyssast og
kela. Oft leiðir eitt af öðru þannig
að þið gangið lengra en þið ætluðuð
og hafið samfarir án getnaðar-
varna. Þannig takið þið óþarfa
áhættu með tilliti til ótímabærrar
þungunar og kynsjúkdóma.
Kvenskoðun
Til að fá getnaðarvarnir svo sem
pilluna, hettuna eða lykkjuna,
þarft þú (stúlkan) að fara í skoðun
hjá lækni - svonefnda kvenskoðun.
Aður en þú ferð inn til læknisins er
nauðsynlegt að þú pissir, þannig að
skoðun verði þægilegri fyrir þig og
auðveldari fyrir lækninn. Fyrst
ræðir læknirinn við þig og fær upp-
lýsingar um almennt heilsufar, tíða-
hringinn og blæðingar, lengd þeirra
og magn. Því er gott að þú skráir
reglulega hjá þér hvenær þú hefur
blæðingar og hversu lengi þær
standa. Hafir þú einhver óþægindi
skaltu segja honum frá því. Næst
ferð þú úr að neðan og leggst í sér-
stakan skoðunarstól. Læknirinn
situr við enda stólsins. Hann skoðar
ytri kynfærin fyrst, þannig getur
hann séð roða, bólgur og sár. En
með hjálp áhalds (spekulum) getur
hann skoðað leggöngin, leghálsinn
og leghálsopið. Síðan tekur hann
skoðunartækið út og fer með tvo
fingur inn í leggöngin, en með hinni
hendinni ýtir hann á neðanverðan
kviðinn. A þennan hátt athugar
hann staðsetningu, stærð og af-
stöðu legs og eggjastokka og finnur
hvort eitthvað er óeðlilegt. Að öllu
jöfnu er þessi skoðun sársaukalaus
en það skiptir samt miklu máli að
þú slakir vel á. Við hræðslu spenn-
ast vöðvarnir og við það getur skoð-
unin orðið óþægileg. Til þess að þú
slakir vel á er gott að anda djúpt og
rólega nokkrum sinnum með opinn
munn og vera með slaka hand- og
fótleggi.
Margar stúlkur og konur eru
feimnar við þessa skoðun. Það er
því mjög mikilvægt fyrir þig að
skilja til hvers skoðunin er gerð.
Það hjálpar oft að skoða sig í spegli
til þess að vita hvernig kynfærin líta
út. Þetta er hluti af líkama þínum
og þú ættir að vita hvernig þú ert
sköpuð.
Ótímabœr þungun
Ef þið hafið samfarir án þess að
nota getnaðarvarnir, eða hafið
notað þær vitlaust, getur stúlkan
orðið ólétt. Gruni ykkur að svo sé
og stúlkan er komin eina-tvær vikur
fram yfir sinn venjulega blæðinga-
tíma, ættuð þið strax að fara með
þvagprufu, frá stúlkunni í hreinu
glasi, í rannsókn. Þvagprufu er
hægt að fara með á heilsugæslu-
stöðvar, mæðradeild Heilsuvemdar-
stöðvar Reykjavíkur, rannsókna-
stofu Kvennadeildar Landspítalans
og í apótek. Svar fáið þið sam-
58 HJÚKRUN - 65. árgangur