Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Page 70
Starfið er margt, en eitt er brœðrabandið
boðorðið, hvarsem þér í fylking standið,
hvernig sem stríðið þá ogþá er blandið
það er: að elska, byggja og treysta á landið.
Hannes Hafstein
Þann 9. nóvember s.l. lést Sigrún
Magnúsdóttir hjúkrunarkona og
fyrrverandi forstöðukona Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur. Með
Sigrúnu er genginn brautryðjandi í
íslenskum hjúkrunarmálum. Saga
íslenskrar hjúkrunarstéttar er ung
nær einungis aftur til aldamóta. Svo
virðist sem sagnariturum fyrri tíma
hafi þótt lítt frásagnarvert að rita
um hjúkrunar- og líknarmál. Vopna-
brak, sverðaglamur og ættardeilur
einkenna sagnaritun mest til forna.
Þar koma þó fram frásagnir af
konum er bundu um sár særðra og
kunnu fyrir sér í lækningum. Fræg-
ust er e.t.v. frásögnin af bardag-
anum á Hrísateigi í Víga-Glúms-
sögu er Halldóra kona Glúms biður
konur þær er hún hafði hvatt með
sér til bardagasvæðisins að sinna
jafnt vinum sem óvinum.
Hér ræður mannkærleikur gjörð-
um og sú hugsjón að allir hafi sama
rétt á hjúkrun. Sama hugsjón
endurspeglast í siðareglum nútíma
hjúkrunarstéttar.
Það var mikill hugur í konum
árið 1915 hvað heilbrigðismál varð-
aði og stofnuðu nokkrar hjúkrunar-
konur það ár Hjúkrunarfélag er
þær nefndu Líkn. Frú Christophine
Bjarnhéðinsson, fyrrverandi for-
stöðukona Holdsveikraspítalans, í
Laugarnesi, var þar í fararbroddi.
Meginmarkmið félagsins var að
annast hjúkrun í heimahúsum og
efla almenna heilsuvernd. Starf-
semi Líknar markar þáttaskil í heil-
brigðismálum Reykjavíkur þar sem
félagið hafði frumkvæði að því að
veita og skipuleggja hjúkrun í
heimahúsum og síðar að leggja
grundvöll að víðtæku heilsuvernd-
arstarfi. Saga Líknar er samofin
sögu Hjúkrunarfélags íslands því
frú Sigríður Eiríksdóttir fyrrv. for-
maður Hjúkrunarfélags íslands var
þar í fararbroddi í 25 ár.
Aður en Hjúkrunarfélagið Líkn
var stofnað höfðu áhugamenn um
bætta heilbrigðisþjónustu stofnað
Minning
+
Sigrún Magnúsdóttir
Fædd 19.4. 1899
Dáin 9.11. 1989
Hjúkrunarfélag Reykjavíkur árið
1902 fyrir forgöngu Oddfellow regl-
unnar og Guðmundar Björnssonar
héraðslæknis. Jón Helgason síðar
biskup var þar í forystu í aldar-
fjórðung, tók á móti beiðnum um
hjúkrunarhjálp og skipulagði
starfið í samráði við þær tvær hj úkr-
unarkonur sem störfuðu hjá félag-
inu og lækna bæjarins.
Sigrún hóf störf hjá Hjúkrunar-
félagi Reykjavíkur þegar hún kom
heim frá námi og starfaði þar í tvö
ár. Til að auka þekkingu sína sigldi
hún eftir það til Skotlands og starf-
aði á Royal Infirmary í hálft ár.
Af Hjúkrunarfélagi Reykjavíkur
er það að segja að starfsemi þess
lauk 1937, en Hjúkrunarfélagið
Líkn starfaði óslitið til ársins 1953
að Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
tók til starfa og tók við verkefnum
félagsins.
Sigrún Magnúsdóttir var fyrsta
forstöðukona Heilsuverndarstöðv-
arinnar. Hún var vel í stakk búin til
að takast á við það uppbyggingar-
starf er þar beið. Sigrún hafði að
baki fjölþættan menntunar- og
starfsferil og var ásamt eðlislægum
persónukostum, af öllum, talin til
forystunnar kjörin.
Sigrún Magnúsdóttir var fædd
19. apríl 1899 á Gilsbakka, Hvítár-
síðu, Mýrasýslu, dóttir hjónanna
Magnúsar Andréssonar prófasts og
alþingismanns og konu hans Sig-
ríðar Pétursdóttur húsfreyju.
Sigrún lauk hjúkrunarnámi við
Nakskov Sygehus Danmörku árið
1925 og framhaldsnámi í geð-
hjúkrun frá Sindsygehospital
Nyköbing, Sjálandi árið 1926.
Þegar heim kom starfaði Sigrún
eins og áður greinir hjá Hjúkrunar-
félagi Reykjavíkur, en 1. janúar
1929 hóf hún störf hj á Líkn og starf-
aði þar óslitið til ársins 1944. Þá lá
leiðin til Bandaríkjanna og starfaði
Sigrún bæði í New York og Conn-
ecticut. Þegar til íslands kom hóf
Sigrún aftur störf hjá Líkn og starf-
aði þar til ársins 1953 að undan-
skildu því ári er hún stundaði fram-
haldsnám í heilsuvernd við háskól-
ann í Toronto, Kanada.
Sigrún lét félagsmál til sín taka
og sat í stjórn félagsins í 12 ár. Þeim
fækkar óðum merkiskonunum er
hófu á loft merki hjúkrunar á fs-
landi og gerðust brautryðjendur.
Sigrún Magnúsdóttir var ein af
þeim. Hjúkrunarfélag íslands
þakkar að leiðarlokum brautryðj-
endastörfin og vonar að hjúkrunar-
stéttin beri gæfu til að halda á lofti
því merki er hafið var á loft af fram-
sýni og kjarki.
Aðstandendum er vottuð samúð.
Blessuð sé minning Sigrúnar
Magnúsdóttur.
Sigþrúður Ingimundardóttir
formaður
64 HJÚKRUN Mi-65. árgangur