Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1989, Blaðsíða 75
hundum með RA/27/3 stofni meðal
næmra kvenna á aldrinum 12-45
ára fil að hindra meðfædda rauða
hunda. Við mat á ónæmi kvenna á
barneignaraldri sem framkvæmt
var 1983 kom í ljós að 2,1% þeirra
sem voru á aldrinum 14-20 ára og
3,4% þeirra sem voru á aldrinum
21-35 ára voru næmar fyrir rauðum
hundum.18) Þessum bólusetningum
var ekki ætlað að útrýma rauðum
hundum úr íslensku samfélagi.
Þeim var ætlað að ná til þeirra
kvenna sem ekki fengu náttúrulegt
ónæmi gegn sjúkdómnum og hindra
þannig meðfædda rauða hunda.
Vandinn við þessa áætlun er hins
vegar sá að aldrei hefur náðst til
allra ónæmra kvenna á barneignar-
aldri og alltaf eru einhverjir ein-
staklingar sem ekki svara bólusetn-
ingu. Þannig má búast við að á
meðan rauðir hundar halda áfram
að ganga í faröldrum geti sjúkdóm-
urinn náð til næmra barnshafandi
kvenna. Árið 1985 gekk tiltölulega
lítill faraldur á íslandi sem olli því
að 4 fóstureyðingar voru fram-
kvæmdar meðal næmra kvenna
sem fengu sjúkdóminn (Landlæknir,
heilbrigðisskýrslur). Þar sem gera
verður ráð fyrir að slíkt muni
endurtaka sig í framtíðinni þegar
faraldrar ganga yfir hefur land-
læknir mælt með því að almennar
bólusetningar verði hafnar við 18
mánaða aldur sem síðan verði
endurteknar við 12-14 ára aldur.
•lafnframt þessu verði haldið áfram
bólusetningu eftir mótefnamælingu
gegn rauðum hundum hjá 12-14 ára
stúlkum.
Miklu skiptir að ending ónæmis
gegn rauðum hundum eftir bólu-
setningu sé góð. Vitneskja sem nú
er fyrir hendi bendir til að mótefni
gegn rauðum hundum eftir bólu-
setningu endist a.m.k. í 1-2 ára-
tugi.19’20) Engu að síður er mikil-
vægt að fylgjast vel með langtíma
ónæmisástandi einstaklinga gegn
rauðum hundum eftir að almenn
bólusetning er hafin með hinu þrí-
gilda bóluefni.
Astœða notkunar
þrígilds bóluefnis:
Ástæða notkunar þrígilds bóluefnis
gegn mislingum, hettusótt og rauð-
um hundum er sú að lílega er unnt
að útrýma með hagkvæmum hætti
þessum sjúkdómum. Einungis þarf
að skipta á bóluefninu gegn misling-
um og þrígilda bóluefninu þegar
bólusett er við 18 mánaða aldur. Þá
er lagt til að bólusetning með þrí-
gilda bóluefninu verði endurtekin
við 12 ára aldur. Það er gert til að ná
til þeirra barna sem ekki náðist að
bólusetja við 18 mánaða aldur og til
þess að örva enn frekar ónæmis-
svörun þeirra sem bólusett voru í
fyrra skiptið og hindra þannig að
þessir sjúkdómar færist yfir á eldri
aldurshópa.2I)
Reynslan hérlendis18* eins og í
Bretlandi22,23,24) sýnir að bólusetn-
ing gegn rauðum hundum sem bein-
ist eingöngu að næmum 12 ára stúlk-
um og konum á barneignaraldri
nær ekki til allra næmra kvenna.
Þessi aðferð nægir því ekki til að
hindra meðfædda rauða hunda og
fóstureyðingar meðal næmra
kvenna sem sýkjast í meðgöngu á
meðan að rauðu hunda faraldrar
geisa í samfélaginu. Útrýming á
rauðum hundum er þannig enn ein
öryggisráðstöfunin til að fyrirbyggja
meðfædda rauða hunda og notkun
þrígilds bóluefnis er hagkvæm
aðferð til að ná því markmiði.25,26)
Það eykur mjög á möguleika út-
rýmingar á þessum sjúkdómum að
bólusetning með þrígilda bóluefn-
inu er nú hafin í öllum nágranna-
löndum okkar og Norður Ameríku
og er að hefjast í gjörvallri Vestur
Evrópu.
Ástæða er til að benda á að heila-
bólga af völdum mislinga, hettu-
sóttar og rauðra hunda hefur horfið
meðal finnskra barna eftir að bólu-
setning með þrígilda bóluefninu
hófst þar í landi 1982.27)
Samsetning og notkun:
Þrígilda bóluefnið sem er á mark-
aðnum hérlendis nefnist „Virivac"
(Statens Bakteriologiska Labora-
torium, Stokkhólmi). Bóluefnið
inniheldur veiklaða veirustofna:
Mislingaveiran er af Enders Ed-
monston B stofni, hettusóttaveiran
er af Jeryl-Lynn stofni og rauðu
hunda veiran er af RA27/3 stofni.
Bóluefnið er þurrfrosið og er
afgreitt með aukaglasi með leysi-
efni. Bóluefnið á að geyma í kæli-
skáp við 2-8°C þannig að ljós kom-
ist ekki að. Eftir að búið er að leysa
bóluefnið upp skal nota það sem
fyrst en að öðrum kosti geyma það
uppleyst í kæli við 2-8°C þannig að
ljós komist ekki að og skal nota það
innan 8 klukkustunda. Skammtur-
inn er 0.5 ml sem gefinn er djúpt
undir húð helst á úthlið upphand-
leggs.
Frábendingar:
Börn með ómeðhöndlaða illkynja
sjúkdóma eða eru á ónæmisbælandi
meðferð eða geislameðferð. Ein-
kennalausir eða einkennalitlir HIV
smitaðir einstaklingar þola bólu-
setninguna vel.
Börn sem fengið hafa bólusetn-
ingu með öðru lifandi bóluefni
þremur vikum áður eða skemur.
Börn sem hafa ofnæmi fyrir neó-
mýcíni, kanamýcíni eða sögu um
anafýlaxis af hvaða ástæðu sem er.
Börn með bráða smitsjúkdóma
þegar bólusetning er ráðgerð.
Sé bóluefnið gefið kynþroska
konum á að koma í veg fyrir
þungun í 3 mánuði eftir gjöf þess.
Bóluefnið skal ekki gefa innan
þriggja mánaða frá immunoglobul-
ingjöf.
Ofnæmi fyrir eggjum (úrtikaría,
öndunarerfiðleikar, lost).
Aukaverkanir:
Nákvæm rannsókn, sem var tví-
blind og borin saman við sýndar-
bóluefni (placebó), sýndi að tíðni
aukaverkana var lág eða 0,5-
4,0% .28) Helstu aukaverkanir voru
staðbundinn roði, hiti, óróleiki,
slappleiki, útbrot, hvarmabólga og
liðverkir. Hins vegar voru kvef,
hósti, ógleði og uppköst algengari
meðal þeirra sem fengu bólusetn-
ingarlíki. Gæti það gefið til kynna
HJÚKRUN Mw - 65. árgangur 69