Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1999, Blaðsíða 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1999, Blaðsíða 9
Ávörp frá hátíðarfagnaði á Kjarvalsstöðum 6. nóvember 1999 Herdís Sveinsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Heilbrigöisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, landlæknir, Siguröur Guðmundsson, kæru hjúkrunar- fræöingar og aðrir góðir gestir. Til hamingju með daginn. Það er ástæða til að fagna því að nú í nóvember eru áttatíu ár liðin frá því að sex hjúkrunarkonur stofnuðu Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Þessar konur voru, eins og tíðkast meðal frumherja, stórhuga og framsýnar. Frumkvöðull að stofnun félagsins var Christophine Bjarnhéðinsson en hún mun hafa verið fyrsta fulllærða hjúkrunarkonan sem réðst til starfa á íslandi. Hún hóf störf tuttugu og einu ári fyrir stofnun félagsins eða árið 1898. Það segir okkur að á hundrað og einu ári hefur lærðum hjúkrunarkonum á fslandi fjölgað þrjúþúsundfalt. Og dugir þó ekki til í sam- félagi nútímans. Menntunarmálin voru eitt veigamesta stefnumál félags- ins frá upphafi. íslenskar hjúkrunarkonur skyldu hljóta bestu menntun sem völ var á. Að sjálfsögðu til hagsbóta fyrir þá sjúklinga sem þeim var falið að annast. Strax var lagt upp með þriggja ára nám í hjúkrun, tvö ár hér heima og reyndar átján mánuði í Danmörku. Hjúkrunarkonur, sem ekki höfðu lokið tilskildu námi, hlutu að öllu jöfnu ekki inngöngu í félagið. Marla Pétursdóttir greinir frá því í bók sinni Hjúkrunarsaga að þegar árið 1921 hafi eftirspurn eftir hjúkrunarkonum verið meiri en framboð. Var því samþykkt í félaginu að útskrifa svokallaðar héraðshjúkrunarkonur til bráðabirgða með tveggja ára námi sem Ijúka skyldi hér heima með fullnaðarprófi. Héraðshjúkrunarkonur höfðu ekki rétt til að starfa á stærri sjúkrahúsum né til að kenna hjúkrunarnemum. Þessi tilraun gafst ekki vel. Einungis fáar hjúkrunarkonur útskrifuðust á þennan hátt og óskuðu margar eftir að fá að fullnuma sig til að öðlast full réttindi. Það er og hefur verið afar sterkur þáttur í sjálfsmynd íslenskra hjúkrunarfræðinga að hljóta bestu menntun. Kristín Björnsdóttir hefur í doktorsritgerð sinni fært rök fyrir því að íslenskar hjúkrunarkonur á fyrri hluta aldarinnar hafi margar hverjar verið sannkallaðar heimskonur. Þær hlutu tækifæri til að vinna erlendis, fara í námsferðir, ferðast um önnur lönd og lifðu lífi sem fæstum konum stóð til boða. Það sem gerði íslensku hjúkrunarkonurnar að sönnum heimskonum, að mínu mati, var að þær sóttu stefnur og strauma til annarra þjóða, hlustuðu á reynslu þeirra með opnum hug og beittu sér svo í þágu skjólstæð- inga sinna hér heima. Eitt allra merkasta verk íslenskra hjúkrunarkvenna (og annarra kvenna með þeim) á þessari öld er stofnun og rekstur Hjúkrunarfélagsins Líknar. Stjórnun og rekstur Líknar var ávallt í höndum kvenna þó Ijóst sé að stuðningur áhrifamanna hafi verið nauðsynlegur fyrir félagið. Markmið Líknar var að veita fátækum ókeypis hjúkrunarþjónustu heima fyrir og veita sjúklingunum og fjölskyldum þeirra fræðslu um heilbrigða lifnaðarhætti og hvernig berjast mætti gegn útbreiðslu sjúkdóma. Ung- barnaeftirliti og mæðravernd var enn fremur komið á á vegum félagsins. Þarna var lagður hornsteinn að því heilsuverndar- og forvarnastarfi sem er ríkjandi í heil- brigðiskerfinu í dag og kemur fram í stefnu Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar um heilbrigði fyrir alla árið 2100. Bein tengsl voru á milli Líknar og þeirrar hugmyndafræði sem ríkjandi var innan Félags íslenskra hjúkrunarkvenna og sést það best á því að driffjöðrin í stofnun Líknar og formaður félagsins um árabil var Christophine Bjarn- héðinsson sem fyrr er getið. Sigríður Eiríksdóttir, sem var formaður Félags íslenskra hjúkrunarkvenna um 36 ára skeið og helsti frumkvöðull okkar í fag- og félagsmálum, tók við formennsku í Líkn af Christophine og gegndi þar formennsku í 26 ár. í stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrunar- og heilbrigðismálum, sem gefin var út árið 1997, kemur einnig fram að hugmyndafræði forvarna er rík meðal okkar hjúkrunarfræðinga. Vöxtur í sjúkraþjónustu er mikill á síðari hluta þessarar aldar. Landspítalinn hefur vaxið og dafnað, Borgarspítalinn var stofnaður og fjórðungssjúkrahús á landsbyggðinni. Hjúkrunarforstjórar hafa alls staðar verið ráðnir að sjúkrahús- Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 75. árg. 1999 297

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.