Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1999, Blaðsíða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1999, Blaðsíða 29
^frí-t'tír {rÁ 'S'SlN-vÁðs tt{vuAnni sem haldin var í Helsíngfors 21 .-22. október 1999 Samstarf hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN) hélt ráðstefnu í Helsingfors í Finnlandi dagana 21 .-22. október 1999. Á ráðstefnunni var litið fram á veginn og fjallað um „Heilsu fyrir alla á 21. öld" (HFA 21). Rætt var um hvernig hjúkrunarfræðingar geti stuðlað að þessu markmiði og hlutverk þeirra í heilbrigðisáætlun landa sinna. Alls sátu um 60 manns ráðstefnuna. Fulltrúar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga voru Herdís Sveinsdóttir formaður, Erlín Óskarsdóttir 1. varaformaður, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, landlæknis- embættinu og dr. Kristín Björnsdóttir, dósent. Fulltrúar hjúkrunarstúdenta voru Ólöf Ásdís Ólafsdóttir og Halla Dröfn Þorsteinsdóttir úr námsbraut í hjúkrunarfræði við H.l. Auk þessara fulltrúa íslands var dr. Auðna Ágústsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, gestur SSN en Auðna flutti erindi á ráðstefnunni. Á ráðstefnunni voru fluttir fyrirlestrar og vinnuhópar störfuðu. Anita Simoens-Desmet, aðalráðgjafi félagsmála-, heil- brigðis- og umhverfismálaráðuneytisins í Belgíu, fjallaði um þýðingu heilbrigðisáætlunarinnar HFA 21 fyrir félög hjúkr- unarfræðinga á Norðurlöndum og væntingar til innleggs þeirra eða þátttöku í að framfylgja áætluninni. Jette Soe, formaður danska hjúkrunarfélagsins og SSN, kynnti stefnumörkun evrópsku hjúkrunardeildarinnar innan WHO varðandi HFA 21 áætlunina og síðan kynntu formenn félaga hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum hvað félögin legðu áherslu á varðandi heilbrigðisáætlunina hver í sínu landi. Þá var skoðað hlutverk menntunar hjúkrunarfræð- inga í tengslum við HFA 21. Dr. Auðna Ágústsdóttir flutti fyrirlestur um hjúkrun byggða á rannsóknum (Evidence based nursing) og hvernig félögin gætu hagnýtt sér og stutt við þá þróun. Erindi Auðnu hlaut mjög góðan hljómgrunn hjá ráðstefnugestum. Að lokum var þátttakendum skipt í 6 hópa sem fengu það verkefni að fjalla um hvaða áhrif HFA 21 áætlunin hefði á klíníska hjúkrun, hjúkrunarrannsóknir, hjúkrunar- menntun og heilbrigðisþjónustu og hvernig SSN getur unnið áfram með niðurstöðurnar. Hóparnir skiluðu síðan niðurstöðum sem teknar voru saman í eins konar ályktun ráðstefnunnar. Þessi ályktun var síðan send stjórn SSN. Nýtt hlutverk hjúkrunarfræðinga í tengslum við HFA 21 SSN bendir á að hjúkrunarfræðingar gegni afgerandi hlutverki í heilbrigðisáætluninni HFA 21. SSN væntir þess að áætlunin styðji við rannsóknir á heilsueflingu og fyrirbyggjandi aðgerðum. SSN væntir þess að hjúkrunarfræðingar fái viðhlítandi menntun á öllum sviðum heilbrigðisþjónustunnar til að ná markmiðum heilbrigðisáætlunarinnar HFA 21. Heilbrigðisáætlunin HFA 21 leggur sérstaka áherslu á hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilsueflandi og fyrirbyggjandi aðgerðum. Hjúkrunarfræðingurinn lítur á einstaklinginn sem hluta af fjölskyldu og samfélagi. Nýtt hlutverk hjúkrunarfræðingsins gerir ráð fyrir að aukin áhersla sé lögð á fjölskyldu sjúklingsins og hans nánasta umhverfi bæði í heilsugæslunni og á sjúkrastofnunum. í menntun hjúkrunarfræðinga verði lögð áherslu á þá þekkingu sem hægt er að nota til að leiðbeina sjúklingum og fjölskylda hans til að koma í veg fyrir ýmiss konar áhættuhegðun og breyta lífsstíl sínum eftir þörfum til að bæta heilsuna. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarstörf hjúkr- unarfræðinga grundvallist á þekkingu byggðri á rann- sóknum. Heilbrigðisáætlunin HFA 21 gerir ráð fyrir að heilsu- gæslan þróist frekar. Fleiri hjúkrunarfræðinga þarf að ráða til heilsugæslunnar þar sem þeir hafa mikilvæga innsýn og yfirsýn yfir heilbrigðisvandamál þjóðarinnar sem nýtast vel til að ná fram markmiðum HFA 21 áætlunarinnar. Aðalbjörg Finnbogadóttir. Aðalfundur fagdeildar hjúkrunarfræðinga Á krA(7bAw.dn5^uíði Fagdeild hjúkrunarfræðinga á krabbameinssviði minnir á aðalfund fagdeildarinnar sem verður haldinn 9. febrúar 2000 kl. 20:00 í fundarsal Fíh að Suðurlandsbraut 22. Venjuleg aðalfundarstörf og stjórnarkjör. Kosinn for- maður og 3 stjórnarmenn. Sendið tilnefningar til Nönnu Friðriksdóttur, s. 560 1000/nannafri@rsp.is, eða Birnu G. Flygenring, s. 525 4984/bgf@hi.is”. Tímarit hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 75. árg. 1999 317

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.