Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 32
Fríöa Proppé
Börnin leita í sívaxandi mæli til skólahjúkrunarfræðinga:
Allt frá plástri upp í ofbeldi af ýmsum toga
Þeim ber ekki síöur aö leita uppi og „finna" börn sem eiga í erfiðleikum. Skólahjúkrunarfræöingarnir, sem rætt er viö, taldir frá vinstri: Stefanía, Margrét og Bergljót.
Starf skólahjúkrunarfræöinga meö börnum á grunnskólaaldri hefur breyst gífurlega á undanförnum árum.
Aukin áhersla er lögö á andlega og félagslega þætti en dregið hefur úr líkamlegum skoöunum. Umfang
starfsins hefur aukist með lengri skóladegi, lengra skólaári og vegna stefnu menntamálayfirvalda um skóla án
aðgreiningar. Tengsl heilsugæslunnar eru vöröuö í gegnum mæöravernd, ungbarnavernd, leikskóla og grunn-
skóla, auk heföbundinna heilsugæslustarfa. Meö breyttri þjónustu skólahjúkrunarfræðinga og lengri viöveru
barna í skólanum má gera ráö fyrir aö ofbeldismál gagnvart börnum komi oftar inn á þeirra borö. Viö ræddum
nýverið viö þrjá skólahjúkrunarfræöinga, þær Stefaníu Arnardóttur og Margréti Héðinsdóttur, heilsugæslu-
hjúkrunarfræöinga í Árbænum, og Bergljótu Þorsteinsdóttur, heilsugæsluhjúkrunarfræðing í Grafarvogi.
Það kom fram í upphafi viðtalsins að hjúkrunarfræðingarnir
eru í náinni samvinnu við aðrar fagstéttir bæði innan skólanna,
heilsugæslustöðvannaogannarrastofnana. Nemendaverndarráð
skólanna taka ákvarðanir í alvarlegum málum og unnið er þver-
faglega að lausn þeirra. Skólahjúkrunarfræðingum ber ekki
einungis að sinna þeim málum sem koma upp
hverju sinni, þeirra hlutverk er ekki síður að leita
uppi og „finna“ börn sem eiga í erfiðleikum eða
eiga á hættu að Ienda í erfiðleikum.
! Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 81. árg. 2005