Fréttablaðið - 22.04.2017, Page 40
Rauðhumla að
störfum.
Hannes Þór
ætlar að leiða
fuglaskoðun í
Grasagarðinum í
dag. „Við finnum
ný hreiður svo
til daglega,“
segir Björk.
MYND/ANTON
BRINK
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Í tilefni dagsins standa Grasa-garður Reykjavíkur, Garð-yrkjufélag Íslands, Fuglavernd
og Býræktarfélag Íslands fyrir
áhugaverðri skemmtidagskrá fyrir
fólk á öllum aldri. „Við ætlum að
byrja á fuglaskoðun og fugla-
fræðslu í Grasagarðinum kl. 11
þar sem Hannes Þór Hafsteinsson,
garðyrkjufræðingur og fugla-
áhugamaður, og Einar Þorleifsson
náttúrufræðingur ætla að stjórna
fuglaskoðun. Hér í Grasagarðinum
er formleg fuglaskoðun tvisvar á
ári, að vori og í desember, og þetta
Fuglaskoðun og býflugnarækt
Svartþrestir hafa gert sig heimakomna í Grasagarðinum.
árið hittist svo vel á að hún verður
á Degi Jarðarinnar. Fuglaskoðunin
er alltaf rosalega skemmtileg.
Það er svo mikið fuglalíf í Grasa-
garðinum á þessum árstíma og við
finnum ný hreiður svo til daglega,“
segir Björk Þorleifsdóttir, verk-
efnastjóri fræðslu og miðlunar hjá
Reykjavíkurborg. „Ég mæli með að
fólk taki kíki með sér í gönguna
til að sjá fuglana enn betur. Við
munum einnig fá félaga í Fugla-
vernd til að kynna sína starfsemi.
Þeir hafa látið smíða flott fuglahús
sem verða til sýnis inni hjá Café
Flóru. Húsin eru mismunandi
hönnuð eftir því fyrir hvaða fugla-
tegund þau eru ætluð en þau eru
smíðuð hér á landi. Fuglavernd
hefur einnig gefið út bækling þar
sem fólki er kennt að elda ofan í
fuglana,“ segir Björk.
Býflugur til sýnis
Í húsi Garðyrkjufélagsins, sem
er steinsnar frá Grasagarðinum,
verður síðan boðið upp á súpu og
brauð um eittleytið, sem stendur
öllum til boða á meðan birgðir
endast. „Þá hefst spennandi dag-
skrá á vegum býflugnaræktenda.
Þeir ætla meira að segja að koma
með býflugur með sér til að leyfa
gestum að skoða. Oft er talað um
hvað gerist þegar og ef býflug-
urnar hverfa en þá stöndum við
frammi fyrir miklu vandamáli,“
segir Björk. Býflugnaræktendur
ætla að halda erindi um eitur
og óáran vegna innflutnings á
býflugum, segja frá efnasamsetn-
ingu og geymsluþoli hunangs og
loks ræða um mistök í býflugna-
rækt.
Fyrst haldinn 1970
Dagur Jarðar var fyrst haldinn
árið 1970 í Bandaríkjunum og
tóku um 20 milljónir manna þátt
í hátíðarhöldunum. Þrjátíu árum
síðar fögnuðu um 200 milljónir
manna deginum um allan heim.
Björk segir að átta árum fyrr,
1962, hafi komið út bókin Raddir
vorsins þagna, þar sem vakin var
athygli á þeim umhverfisskaða
sem þegar var orðinn vegna
notkunar á skordýraeitri í ræktun.
„Bandaríski þingmaðurinn Gay-
lord Nelson átti frumkvæðið að
því að halda Dag Jarðar en á þeim
tíma var fólk að vakna til vitundar
um umhverfismál. Frá árinu 2009
hefur hann verið haldinn hátíð-
legur 22. apríl ár hvert en það
ár tilnefndu Sameinuðu þjóð-
irnar þennan dag alþjóðlegan dag
móður Jarðar,“ upplýsir Björk.
Dagur Jarðar er
haldinn hátíðleg
ur í dag. Um er að
ræða árlegan við
burð til að minna
fólk á að staldra
við og huga
að umhverfis
málum.
www.jardbodin. is · s ími 464 4411 · info@jardbodin. is
- Verið velkomin í Mývatnssveit -
Slökun - Vellíðan - Upplifun
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-3
C
F
8
1
C
B
2
-3
B
B
C
1
C
B
2
-3
A
8
0
1
C
B
2
-3
9
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K