Fréttablaðið - 22.04.2017, Side 46

Fréttablaðið - 22.04.2017, Side 46
 6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . a p r í l 2 0 1 7 LAUGARDAGUR Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 23 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS. Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum. Þá tekur netöryggissveitin þátt í því að tryggja virkni almennra fjarskiptaneta, vernd, virkni og gæði IP fjarskiptaþjónustu og vernd upplýsinga í almennum fjarskiptanetum. Helstu verkefni og ábyrgð: • Greining á spilliforritum og viðbrögð við öryggisatvikum • Atvika-, veikleika- og búnaðargreining, ásamt því að dreifa upplýsingum um atvik og berskjölduð tölvu- og fjarskiptakerfi • Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins • Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu • Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum netöryggishópum • Eftirlit með reglum um net- og upplýsingaöryggi Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur haldgóða reynslu á sviði netöryggis. • Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga, ásamt þekkingu á fjarskiptamarkaðnum, er æskileg. Þekking á fjármálageiranum og/eða orkugeiranum og öryggismálum þeirra er kostur. • Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi. • Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð. • Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif • Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra. • Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin • Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS) PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl nk. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Sérfræðingur í rannsóknar- og heil- brigðisdeild Sérfræðingur Vinnueftirlitið auglýsir eftir sérfræðingi í rannsóknar- og heilbrigðisdeild til að starfa við rannsóknir. Helstu verkefni og ábyrgð: • Rannsóknir á sviði vinnuverndar m.a. með áherslu á líkamlega og skipulagslega þætti vinnuverndar • Þátttaka í fræðslu á sviði vinnuverndar með áherslu á líkamlega og skipulagslega þætti vinnuverndar. • Stuðningur við eftirlit með áherslu á líkamlega og skipulagslega þætti vinnuverndar. Hæfnikröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af rannsóknum • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi. • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. • Sveigjanleiki í starfi m.t.t verkefna • Færni í framsetningu upplýsingaefnis • Hæfni í mannlegum samskiptum • Færni til að geta unnið sjálfstætt á skipulagðan hátt Frekari upplýsingar um starfið: Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Fræðagarður hafa gert. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Vinsamlega sækið um á starfatorg.is eða á heimasíðu Vinnueftirlitsins. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2017 Nánari upplýsingar veitir Kristinn Tómasson - kristinn@ver.is - 5504600 VER Rannsóknadeild Bíldshöfða 16 110 Reykjavík MARKAÐSSTJÓRI SÉRVÖRU HÆFNISKRÖFUR: • Háskólamenntun sem nýtist í starfið, s.s. viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegt • Reynsla og árangur í stjórnun, stefnumótun, markaðsmálum og rekstri • Framúrskarandi samskiptahæfni • Ástríða fyrir starfinu og hæfni ti l að l ifa gildin okkar • Góð íslensku- og enskukunnátta Markaðsstjóri sérvöru ber ábyrgð á þeim flokki innan Ölgerðarinnar og er hluti af markaðsdeild fyrirtækisins. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra markaðssviðs. Deildin er í örum vexti en í henni eru mörg af þekktustu vörumerkjum landsins á sviði snyrtivöru, fatnaðar, hrein- lætisvara ásamt fleiri vöruflokkum. Ný vörumerki munu einnig bætast við á næstunni. Við leitum að öflugum einstaklingi með reynslu og færni í stjórnun, markaðsmálum og rekstri . Starfið felur meðal annars í sér samskipti við viðskiptavini og lykilbirgja í sérvöru, vinnu með vörumerkjastjórum og sölustjórum að markaðssetningu vörumerkja ásamt stjórnun deildarinnar og ábyrgð á rekstri hennar. Við bjóðum krefjandi og áhugavert starf í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á metnað, jákvæðni, jafnrétti og starfsþróun. ÖLGERÐIN er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði. ÖLGERÐIN framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Áhugasamir eru beðnir um að fyl la út umsókn á vef Ölgerðarinnar umsokn.olgerdin.is ásamt meðfylgjandi ítarlegri feri lskrá og kynningarbréfi . Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí nk. Ölgerðin óskar eftir að ráða markaðsstjóra sérvöru til starfa olgerdin.is 2 2 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 2 -3 8 0 8 1 C B 2 -3 6 C C 1 C B 2 -3 5 9 0 1 C B 2 -3 4 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.