Fréttablaðið - 22.04.2017, Blaðsíða 46
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . a p r í l 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og
póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd
mál. Hjá PFS starfa 23 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra og
lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is
Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS. Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása
eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum.
Þá tekur netöryggissveitin þátt í því að tryggja virkni almennra fjarskiptaneta, vernd, virkni og gæði IP fjarskiptaþjónustu og vernd upplýsinga í almennum fjarskiptanetum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Greining á spilliforritum og viðbrögð við öryggisatvikum
• Atvika-, veikleika- og búnaðargreining, ásamt því að dreifa upplýsingum um atvik og
berskjölduð tölvu- og fjarskiptakerfi
• Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
• Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu
• Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá innlendum netöryggishópum
• Eftirlit með reglum um net- og upplýsingaöryggi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur
haldgóða reynslu á sviði netöryggis.
• Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga,
ásamt þekkingu á fjarskiptamarkaðnum, er æskileg. Þekking á fjármálageiranum og/eða
orkugeiranum og öryggismálum þeirra er kostur.
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi.
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð.
• Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif
• Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra.
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum
Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS)
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs.
Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Sérfræðingur í rannsóknar- og heil-
brigðisdeild
Sérfræðingur
Vinnueftirlitið auglýsir eftir sérfræðingi í rannsóknar- og
heilbrigðisdeild til að starfa við rannsóknir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Rannsóknir á sviði vinnuverndar m.a. með áherslu
á líkamlega og skipulagslega þætti vinnuverndar
• Þátttaka í fræðslu á sviði vinnuverndar með áherslu
á líkamlega og skipulagslega þætti vinnuverndar.
• Stuðningur við eftirlit með áherslu á líkamlega og
skipulagslega þætti vinnuverndar.
Hæfnikröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af rannsóknum
• Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
• Sveigjanleiki í starfi m.t.t verkefna
• Færni í framsetningu upplýsingaefnis
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Færni til að geta unnið sjálfstætt á skipulagðan hátt
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármálaráðherra og Fræðagarður hafa gert.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Vinsamlega sækið um á starfatorg.is eða á heimasíðu
Vinnueftirlitsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2017
Nánari upplýsingar veitir
Kristinn Tómasson - kristinn@ver.is - 5504600
VER Rannsóknadeild
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
MARKAÐSSTJÓRI SÉRVÖRU
HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfið, s.s.
viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegt
• Reynsla og árangur í stjórnun, stefnumótun,
markaðsmálum og rekstri
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Ástríða fyrir starfinu og hæfni ti l að l ifa gildin okkar
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Markaðsstjóri sérvöru ber ábyrgð á þeim flokki innan
Ölgerðarinnar og er hluti af markaðsdeild fyrirtækisins.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra markaðssviðs.
Deildin er í örum vexti en í henni eru mörg af þekktustu
vörumerkjum landsins á sviði snyrtivöru, fatnaðar, hrein-
lætisvara ásamt fleiri vöruflokkum. Ný vörumerki munu
einnig bætast við á næstunni.
Við leitum að öflugum einstaklingi með reynslu og færni
í stjórnun, markaðsmálum og rekstri . Starfið felur meðal
annars í sér samskipti við viðskiptavini og lykilbirgja í
sérvöru, vinnu með vörumerkjastjórum og sölustjórum að
markaðssetningu vörumerkja ásamt stjórnun deildarinnar
og ábyrgð á rekstri hennar.
Við bjóðum krefjandi og áhugavert starf í skemmtilegu
starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á metnað,
jákvæðni, jafnrétti og starfsþróun.
ÖLGERÐIN er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði.
ÖLGERÐIN framleiðir, flytur inn, dreifir og selur
matvæli og sérvöru af ýmsum toga.
Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta
flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að
hágæða þjónustu vísri.
Áhugasamir eru beðnir um að fyl la út umsókn
á vef Ölgerðarinnar umsokn.olgerdin.is ásamt
meðfylgjandi ítarlegri feri lskrá og kynningarbréfi .
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí nk.
Ölgerðin óskar eftir að ráða markaðsstjóra sérvöru til starfa
olgerdin.is
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
2
-3
8
0
8
1
C
B
2
-3
6
C
C
1
C
B
2
-3
5
9
0
1
C
B
2
-3
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K