Fréttablaðið - 22.04.2017, Side 73
Starfsemi orku- og veitugeirans er samofin öllu daglegu lífi og verðmætasköpun í landinu,
bæði hjá almenningi og fyrirtækj-
um. Þetta segir Páll Erland, fram-
kvæmdastjóri Samorku, samtaka
orku- og veitufyrirtækja. Aðildar-
félög eru um 50 talsins og starfa um
allt land.
Lífsgæðin ekki sjálfgefin
„Það vill oft vera svo að þau gæði
sem okkur þykja hvað sjálfsögðust
geta verið þau allra mikilvægustu
fyrir daglegt líf. Á það svo sannar-
lega við þau miklu lífsgæði sem við
Íslendingar búum við, þökk sé nátt-
úrunni okkar, varmanum og vatn-
inu,“ segir Páll. Á síðustu áratugum
hefur orkan sem býr í landinu verið
færð inn á heimilin með markvissri
uppbyggingu vatns-, hita- og frá-
veitu og raforkukerfis. „Það gerðist
ekki af sjálfu sér; til þess þurfti fólk
með mikla framsýni og áræðni.“
Það er auðvelt að gleyma því að
aðeins eru fáeinir áratugir síðan
hitaveitur umbyltu húshitun í
landinu. Árið 1970 voru 53 prósent
heimila hituð með olíu en í dag
njóta 96 prósent þeirra hitaveitu.
„Hitaveituvæðingin var mikið
hitamál á sínum tíma en nú efast
enginn um ábata hennar fyrir
íslenskt samfélag,“ segir Páll. Hann
nefnir einnig mikla gangskör í
fráveitumálum undanfarin ár sem
mun leiða til þess að um 85 prósent
landsmanna verða tengd skólp-
hreinsistöð í lok næsta árs miðað
við aðeins 6 prósent árið 1993.
Þjóðhagsleg
hagkvæmni ótvíræð
Íslendingar neyta langsamlega mest
af vatni af íbúum Norðurlandanna,
nota mikið rafmagn og hita húsin
sín vel. Þegar kostnaður heimila í
Reykjavík vegna húshitunar, raf-
magns, frá- og vatnsveitu er borinn
saman við aðrar höfuðborgir á
Norðurlöndum kemur í ljós að hann
er bæði lægstur og minnsta hlutfall
af árstekjum. „Í Kaupmannahöfn
þurfa hjón til dæmis að borga 730
þúsund krónur fyrir sama magn
og hjón í Reykjavík sem borga 250
þúsund,“ segir Páll.
„Með því að nota innlenda,
endurnýjanlega orkugjafa í stað
þess að flytja inn kol og olíu sparar
íslenskt þjóðarbú sér einnig árlegan
viðbótarkostnað á bilinu 60-110
milljarðar króna,“ segir Páll. Í þessu
samhengi er fróðlegt að sjá að við-
skiptaafgangur Íslands fyrir árið
2015 var 125 milljarðar.
Mikilvægt framlag
til loftslagsmála
Íslendingar búa við þá sérstöðu að
nánast öll raforka og orka til húshit-
unar er fengin frá endurnýjanlegum
orkugjöfum. Þess vegna er beislun
þeirra og nýting ekki einungis
heillaskref fyrir fjárhag heimila og
samfélagið í heild heldur um leið
framlag landsmanna í baráttunni
gegn hlýnun jarðar.
„Orkunotkun almennra not-
enda myndi skila 26 sinnum meiri
útblæstri ef orkuframleiðsla væri
með svipuðum hætti og hjá ríkjum
OECD, segir Páll. „Á Norðurlöndun-
um er útblásturinn þrettán sinnum
meiri en á Íslandi.“
Tækifærin blasa við
„Okkar umhverfisvænu orkugjafar
verða áfram í lykilhlutverki við að
draga úr brennslu jarðefniseldsneytis
hér á landi,“ segir Páll. Hann segir
tækifærin blasa við þjóðinni. „Stærsta
framfaraskrefið væri að nýta innlenda,
græna orkugjafa í samgöngur að svo
miklu leyti sem unnt er.“ Fyrir tilstilli
orku- og veitufyrirtækjanna, sem leitt
hafa innleiðingu hleðslustöðva, hefur
rafbílum til dæmis fjölgað mikið á
skömmum tíma. „Íslendingar hafa
einu sinni leitt orkuskipti með hita-
veituvæðingu, svo eftir var tekið um
allan heim,“ segir Páll. „Við getum nú
sýnt gott fordæmi enn á ný því hér eru
allar forsendur til þess.“
Stórt framlag til lífsgæða í landinu
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, segir Íslendinga búa við
mikil lífsgæði úr íslenskri náttúru sem séu ekki sjálfgefin.
„Það vill oft vera
svo að þau gæði
sem okkur þykja
hvað sjálfsögðust
geta verið þau
allra mikilvægustu
fyrir daglegt líf,“
segir Páll Erland
framkvæmdastjóri
Samorku. Mynd/
AnTon Brink
FYRIR LÍFSGÆÐI OKKAR ALLRA
Orku- og veitufyrirtækin eru samofin verðmætasköpun og almennum lífsgæðum í landinu
Íslendingar neyta mest af vatni af íbúum Norðurlandanna, eru stórnotendur rafmagns og hita húsin sín vel.
Kostnaður heimila fyrir þessa þjónustu er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum.
Íslenskir orkugjafar eru endurnýjanlegir og umhverfisvænir. Þeir spara þjóðarbúinu einnig tugi milljarða á ári hverju.
Nánari upplýsingar á www.samorka.is
Samtök orku- og
veitufyrirtækja
kynninGArBLAÐ 7 L AU G A r dAG U r 2 2 . a P r Í l 2 0 1 7
2
2
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
B
1
-D
0
5
8
1
C
B
1
-C
F
1
C
1
C
B
1
-C
D
E
0
1
C
B
1
-C
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K