Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.04.2017, Qupperneq 73

Fréttablaðið - 22.04.2017, Qupperneq 73
Starfsemi orku- og veitugeirans er samofin öllu daglegu lífi og verðmætasköpun í landinu, bæði hjá almenningi og fyrirtækj- um. Þetta segir Páll Erland, fram- kvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Aðildar- félög eru um 50 talsins og starfa um allt land. Lífsgæðin ekki sjálfgefin „Það vill oft vera svo að þau gæði sem okkur þykja hvað sjálfsögðust geta verið þau allra mikilvægustu fyrir daglegt líf. Á það svo sannar- lega við þau miklu lífsgæði sem við Íslendingar búum við, þökk sé nátt- úrunni okkar, varmanum og vatn- inu,“ segir Páll. Á síðustu áratugum hefur orkan sem býr í landinu verið færð inn á heimilin með markvissri uppbyggingu vatns-, hita- og frá- veitu og raforkukerfis. „Það gerðist ekki af sjálfu sér; til þess þurfti fólk með mikla framsýni og áræðni.“ Það er auðvelt að gleyma því að aðeins eru fáeinir áratugir síðan hitaveitur umbyltu húshitun í landinu. Árið 1970 voru 53 prósent heimila hituð með olíu en í dag njóta 96 prósent þeirra hitaveitu. „Hitaveituvæðingin var mikið hitamál á sínum tíma en nú efast enginn um ábata hennar fyrir íslenskt samfélag,“ segir Páll. Hann nefnir einnig mikla gangskör í fráveitumálum undanfarin ár sem mun leiða til þess að um 85 prósent landsmanna verða tengd skólp- hreinsistöð í lok næsta árs miðað við aðeins 6 prósent árið 1993. Þjóðhagsleg hagkvæmni ótvíræð Íslendingar neyta langsamlega mest af vatni af íbúum Norðurlandanna, nota mikið rafmagn og hita húsin sín vel. Þegar kostnaður heimila í Reykjavík vegna húshitunar, raf- magns, frá- og vatnsveitu er borinn saman við aðrar höfuðborgir á Norðurlöndum kemur í ljós að hann er bæði lægstur og minnsta hlutfall af árstekjum. „Í Kaupmannahöfn þurfa hjón til dæmis að borga 730 þúsund krónur fyrir sama magn og hjón í Reykjavík sem borga 250 þúsund,“ segir Páll. „Með því að nota innlenda, endurnýjanlega orkugjafa í stað þess að flytja inn kol og olíu sparar íslenskt þjóðarbú sér einnig árlegan viðbótarkostnað á bilinu 60-110 milljarðar króna,“ segir Páll. Í þessu samhengi er fróðlegt að sjá að við- skiptaafgangur Íslands fyrir árið 2015 var 125 milljarðar. Mikilvægt framlag til loftslagsmála Íslendingar búa við þá sérstöðu að nánast öll raforka og orka til húshit- unar er fengin frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Þess vegna er beislun þeirra og nýting ekki einungis heillaskref fyrir fjárhag heimila og samfélagið í heild heldur um leið framlag landsmanna í baráttunni gegn hlýnun jarðar. „Orkunotkun almennra not- enda myndi skila 26 sinnum meiri útblæstri ef orkuframleiðsla væri með svipuðum hætti og hjá ríkjum OECD, segir Páll. „Á Norðurlöndun- um er útblásturinn þrettán sinnum meiri en á Íslandi.“ Tækifærin blasa við „Okkar umhverfisvænu orkugjafar verða áfram í lykilhlutverki við að draga úr brennslu jarðefniseldsneytis hér á landi,“ segir Páll. Hann segir tækifærin blasa við þjóðinni. „Stærsta framfaraskrefið væri að nýta innlenda, græna orkugjafa í samgöngur að svo miklu leyti sem unnt er.“ Fyrir tilstilli orku- og veitufyrirtækjanna, sem leitt hafa innleiðingu hleðslustöðva, hefur rafbílum til dæmis fjölgað mikið á skömmum tíma. „Íslendingar hafa einu sinni leitt orkuskipti með hita- veituvæðingu, svo eftir var tekið um allan heim,“ segir Páll. „Við getum nú sýnt gott fordæmi enn á ný því hér eru allar forsendur til þess.“ Stórt framlag til lífsgæða í landinu Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, segir Íslendinga búa við mikil lífsgæði úr íslenskri náttúru sem séu ekki sjálfgefin. „Það vill oft vera svo að þau gæði sem okkur þykja hvað sjálfsögðust geta verið þau allra mikilvægustu fyrir daglegt líf,“ segir Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku. Mynd/ AnTon Brink FYRIR LÍFSGÆÐI OKKAR ALLRA Orku- og veitufyrirtækin eru samofin verðmætasköpun og almennum lífsgæðum í landinu Íslendingar neyta mest af vatni af íbúum Norðurlandanna, eru stórnotendur rafmagns og hita húsin sín vel. Kostnaður heimila fyrir þessa þjónustu er lægstur á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Íslenskir orkugjafar eru endurnýjanlegir og umhverfisvænir. Þeir spara þjóðarbúinu einnig tugi milljarða á ári hverju. Nánari upplýsingar á www.samorka.is Samtök orku- og veitufyrirtækja kynninGArBLAÐ 7 L AU G A r dAG U r 2 2 . a P r Í l 2 0 1 7 2 2 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C B 1 -D 0 5 8 1 C B 1 -C F 1 C 1 C B 1 -C D E 0 1 C B 1 -C C A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.