Fréttablaðið - 06.05.2017, Side 20
Körfubolti „Ég er gríðarlega stolt-
ur,“ sagði Jón Arnór Stefánsson,
besti körfuboltamaður þjóðarinnar,
eftir að hann var útnefndur besti
leikmaður Domino’s-deildar karla
á uppgjöri Körfuknattleikssam-
bandsins í gær en það eru leikmenn,
þjálfarar og forráðamenn liðanna
sem kjósa ásamt sérstakri dómnefnd
skipaðri fagmönnum.
Thelma Dís Ágústsdóttir, 18 ára
gamall leikmaður Íslandsmeistara
Keflavíkur, var útnefnd besti leik-
maður Domino’s-deildar kvenna en
hún átti frábæra leiktíð með Suður-
nesjaliðinu sem fór alla leið bæði í
deild og bikar. Keflavíkurstúlkur sóp-
uðu að sér verðlaunum en Birna Val-
gerður Benónýsdóttir var besti ungi
leikmaðurinn og Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir besti varnarmaðurinn.
KR-ingar áttu besta leikmann-
inn og besta unga líkt og Keflavík í
kvennakörfunni en Þórir Guðmund-
ur Þorbjarnarson var útnefndur besti
ungi leikmaður tímabilsins hjá körl-
unum.
Starfið hjá KR það flottasta
„Ég hélt nú að menn þyrftu að spila
allt tímabilið til að vinna svona titil
en þetta eru kannski verðlaun fyrir
KR-liðið og hvernig við stóðum
okkur í ár. Það þarf einhver að taka
við þessum verðlaunum,“ sagði Jón
Arnór kíminn með verðlaunin í
höndunum en hann fór ekki af stað
fyrr en eftir áramót vegna meiðsla.
Jón kom heim síðasta sumar og
samdi við uppeldisfélagið en hann
stóð uppi sem Íslands- og bikar-
meistari í lok vetrar.
„Að vinna fjóra titla í röð er rosa-
legur áfangi. Þetta verður erfitt að
toppa. Starfið sem KR er að vinna í
körfunni er það flottasta á landinu
í dag og við munum halda áfram
að byggja ofan á þetta. Það er mikil-
vægt að stjórnin og liðið slaki ekki
á heldur haldi áfram að bæta ofan
á þetta,“ sagði Jón Arnór, en hver er
stefnan næsta vetur?
„Mér finnst fimm titlar vera meiri
yfirlýsing en fjórir titlar. Ég segi bara
að framtíðin er björt í KR og svo er
Benni Gumm kominn aftur heim.
Það sýnir metnaðinn í Vesturbæn-
um. Ég er persónulega mjög ánægð-
ur að fá hann aftur heim. Hann ól
mig upp í körfuboltanum og það er
mikill fengur að fá hann. Framtíðin
er björt og tímabilið æðislegt í alla
staði. Ég hlakka til að takast á við
næsta verkefni í vetur.“
Vill gera betur en mamma
Jón Arnór er 34 ára og fer að líða
undir lok hans ferils. Ferill Thelmu
Dísar Ágústsdóttur er aftur á móti
rétt að byrja. Þessi gríðarlega hæfi-
leikaríka stúlka var besti ungi leik-
maðurinn í fyrra en nú best allra í
deildinni.
„Við stóðum okkur ótrúlega vel í
vetur, allar sem lið og þetta er það
sem við erum að uppskera,“ segir
Thelma en Keflavíkurliðið sópaði
að sér verðlaunum í gær og vann allt
sem í boði var.
„Árangurinn sem við höfum náð
er vonum framar. Við vissum alveg
hversu góðar við erum en við bjugg-
umst ekki alveg við þessum árangri
í vetur. Allavega ekki ég. Þetta er
alveg æðislegt,“ segir Thelma.
Litlar líkur eru á að sú besta spili í
Domino’s-deildinni á næstu leiktíð
þar sem bandarískir háskólar eru
byrjaðir að hafa samband og það er
eitthvað sem heillar Suðurnesjast-
úlkuna.
„Ég er að skoða skóla úti núna og
það kemur í ljós fljótlega. Mig langar
að prófa þetta. Ég er búin að vera í
sambandi við nokkra skóla úti. Ég
er samt ekki alveg viss sjálf hvernig
þetta fer,“ segir Thelma Dís.
Thelma Dís er dóttir Bjargar Haf-
steinsdóttur, bestu skyttu í sögu
kvennakörfuboltans, en hún vann
fjölda titla með gullaldarliði Kefla-
víkur á árum áður. Björg var einnig
kjörin besti leikmaður tímabilsins
árið 1990 og nú 27 árum seinna fetar
dóttirin í fótspor hennar.
Fyrst Thelma er byrjuð að vinna
titla með ungu liði Keflavíkur og
hefur verið kosin best einu sinni, er
ekki stefnan að vinna fleiri verðlaun
en mamma? „Jú, af hverju ekki?“
segir Thelma.
tomas@365.is
Fimm í röð eru flottari en fjórir
Jón Arnór Stefánsson, KR, og Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík, voru útnefnd bestu leikmenn Domino’s-
deildarinnar í gær. Jón Arnór spilar aftur með KR næsta vetur og ætlar að tryggja liðinu fimmta titilinn í röð.
Jón Arnór Stefánsson og Thelma Dís Ágústsdóttir með verðlaun sín fyrir að vera bestu leikmenn tímabilsins. FRéTTAblAðið/EyþóR
Domino’s-deild karla
2016-17
Úrvalsliðið: Matthías Orri
Sigurðarson, ÍR, Logi Gunnarsson,
Njarðvík, Jón Arnór Stefánsson,
KR, Ólafur Ólafsson, Grindavík,
Hlynur Bæringsson, Stjarnan.
leikmaður ársins: Jón Arnór
Stefánsson, KR
þjálfari ársins: Jóhann Þór Ólafs-
son, Grindavík
besti ungi: Þórir Guðmundur Þor-
bjarnarson, KR
Varnarmaður ársins: Hlynur
Bæringsson, Stjarnan
besti erlendi leikmaðurinn:
Amin Stevens, Keflavík
Prúðasti leikmaðurinn: Tryggvi
Hlinason, Þór Ak.
Domino’s-deild kvenna
2016-17
Úrvalslið: Berglind Gunnarsdóttir,
Snæfell, Emelía Ósk Gunnars-
dóttir, Keflavík, Thelma Dís
Ágústsdóttir, Keflavík Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir, Skallagrímur, Ragna
Margrét Brynjarsdóttir Stjarnan.
leikmaður ársins: Thelma Dís
Ágústsdóttir, Keflavík
þjálfari ársins: Sverrir Þór Sverris-
son, Keflavík
besti ungi: Birna Benónýsdóttir,
Keflavík
Varnarmaður ársins: Salbjörg
Sævarsdóttir, Keflavík
besti erlendi leikmaðurinn:
Ariana Moorer, Keflavík
Prúðasti leikmaðurinn: Salbjörg
Sævarsdóttir, Keflavík
Við vissum alveg
hversu góðar við
erum en við bjuggumst ekki
alveg við þessum árangri í
vetur. Allavega ekki ég.
Thelma Dís Ágústsdóttir
laugardagur:
11.20 Man. City - C. Palace Sport
13.25 Mönchen. - Augsburg Sport
13.25 Dortmund - Hoffen. Sport 2
16.15 burnley - WbA Sport 3
16.20 Swansea - Everton Sport
16.25 barcelona - Villarreal Sport 2
17.00 Wells Fargo Golfstöðin
18.00 leicester - Watford Sport
18.40 Granada - Real Madrid Sport
20.20 bournem. - Stoke Sport 2
22.00 Hull - Sunderland Sport 2
inkasso-deildin:
14.00 leiknir F. - Grótta
14.00 Fylkir - Grótta
14.00 þróttur - Haukar
Sunnudagur:
12.20 liverpool - Southam. Sport
14.30 Upphitun Arsenal-Utd Sport
15.00 Arsenal - Man. Utd Sport
17.00 Wells Fargo Golfstöðin
19.00 Víkingur ó. - KR Sport
19.30 Toronto - Cleveland Sport 2
Pepsi-deild kvenna:
16.00 Fylkir - þór/KA
Pepsi-deild karla:
17.00 Stjarnan - ÍbV
19.15 Víkingur ó. - KR
Helgin
BAnni MeSSi AFLÉTT
Leikbannið sem Lionel Messi fékk
fyrir að hella sér yfir aðstoðar-
dómara í leik Argentínu og Síle í
undankeppni HM 2018 hefur verið
fellt úr gildi.
Messi var dæmdur í fjögurra
leikja bann af FiFA og tók fyrsta
leikinn í því út gegn Bólivíu. Arg-
entína tapaði leiknum 0-2.
Argentínska knattspyrnusam-
bandið áfrýjaði leikbanninu og
það bar árangur. Messi getur því
spilað með Argentínu í næsta leik
í undankeppninni sem er gegn
Úrúgvæ 31. ágúst næstkomandi.
UppSeLT Á KRóATÍULeiKinn
Allir fjögur þúsund miðarnir sem
í boði voru til kaupa á landsleik
Íslands og Króatíu þann 13. júní í
undankeppni HM 2018 í Rússlandi
seldust upp í gær. Ljóst er að færri
komast að en vilja.
Laugardalsvöllur tekur tæplega
tíu þúsund manns í sæti. Áður en
keppni hófst í undankeppninni
setti KSÍ á sölu miða sem giltu á
alla heimaleiki Íslands. Um tvö
þúsund miðar seldust. Þá eiga
Króatar rétt á tíu prósent miðanna,
tveimur hólfum í norðurenda
austurstúkunnar, tæplega eitt
þúsund miðum.
eftir standa tæplega þrjú þúsund
miðar sem fara til samstarfsaðila
KSÍ.
Þetta verður í fjórða skiptið á
fjórum árum sem þjóðirnar mæt-
ast á knattspyrnuvellinum. Marka-
laust jafntefli varð í Laugardalnum
í nóvember 2013 en Króatar unnu
báða leikina í Zagreb 2-0.
Króatar eru í efsta sæti i-riðils
með 13 stig en Ísland í öðru sæti
með 10 stig. Með sigri komast því
Íslendingar upp að hlið Króata í
toppsæti riðilsins.
leiknir R. - Keflavík 1-1
0-1 Jeppe Hansen, víti (15.), 1-1 Kolbeinn
Kárason (69.).
HK - Fram 1-2
0-1 Ivan Bubalo (44.), 0-2 Helgi Guðjónsson
(49.), 1-2 Árni Arnarson (90.).
Selfoss - ÍR 1-0
1-0 Ivan Martinez Gutierrez (11.).
Nýjast
inkasso-deildin
6 . m a í 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r20 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-4
B
5
0
1
C
C
F
-4
A
1
4
1
C
C
F
-4
8
D
8
1
C
C
F
-4
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K