Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 126

Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 126
„Endurvinnsla er æðisleg og ég vildi að flestir myndu stunda hana. En það er samt leiðinlegt þegar fólk tekur einhverja svona „signature“ hönnun annars hönnuðar og stelur henni. Allir mega verða fyrir innblæstri og jafnvel smitast af stíl, en þegar þetta er bara augljóst „copy paste“, þá er það ekki í lagi,“ segir Bára Hólmgeirsdótt- ir, eigandi Aftur, sem fékk ábendingu um málið í dag. „Ég fékk bara skjáskot af Instagram, frá vinkonu minni.“ Peysurnar frá Thelmu Steiman fást í versluninni Second Society í Kaup- mannahöfn. „Ég veit alveg að þessi stelpa veit hvað Aftur er, hún hefur verslað hérna,“ útskýrir Bára en hún vonar að þessi hönnunarstuldur sé gerður í hugsunarleysi. „Ég veit að það er hægt að rökræða um þessa hluti, hvort eitthvað sé nýtt undir sólinni. En þetta er bara Aftur,“ segir Bára sem er nokkuð viss um að flestir Íslendingar sem hafa áhuga á fatahönnun kannist við Aftur. „Aftur er næstum því átján ára gamalt merki.“ Erfitt að vernda sig gegn hugverkastuldi „Ég hef aldrei áður tjáð mig um kóper- ingar á Aftur. En þarna dreg ég línuna. Það er bara svo erfitt að taka á þessu, „meikað það“ Kvikmyndin InnSæi eftir þær Kristínu Ólafsdóttur og Hrund Gunnsteinsdóttur verður tekin til sýn-inga á Netflix world- wide – eða á heimsvísu – þann 15. júlí næstkomandi. Það þýðir að myndin verður aðgengileg öllum áskrifendum Netflix-veitunnar í þeim 190 löndum þar sem hún er leyfð. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir myndina að fá þessa dreifingu um allan heim. Vandamálið við heim- ildarmyndir er oft að það er erfitt að nálgast þær á fljótlegan og þægilegan hátt fyrir áhorfendur. Netflix er með öflugan flokk heimildarmynda þann- ig að þeir sem hafa áhuga á myndum þar sem kafað er djúpt ofan í við- fangsefnið hafa úr nógu að velja. Að Innsæi verði ein af þeim myndum er mikill heiður fyrir okkur,“ segir Kristín hjá Klikk Productions um myndina Innsæi sem fjallar m.a. um álag og stress sem fylgir auknu upp- lýsingaflæði og hraðanum sem ein- kennir nútíma samfélag. Í myndinni er til dæmis fylgst með skólabörnum í Bretlandi sem er kennt, með hjálp taugalíffræði og núvitundar, að takast á við mikið upplýsingaflæði, streitu og auknar kröfur sem gerðar eru til þeirra. Í myndinni koma einnig fram heimsþekktir leiðtogar og hugsuðir á sviði lista, vísinda og fræða sem leiða okkur inn í margræðan heim Innsæis. „Við vorum frökk að gefa heim- ildarmynd íslenskt heiti sem enginn erlendis skilur og margir héldu að við myndum ekki geta selt hana á erlenda markaði. En hugtakið Innsæi virðist bara hafa vakið upp forvitni erlendis og virðist ekki spilla fyrir myndinni heldur þvert á móti veitir henni með- byr. Innsæi er líka orð sem við viljum hefja upp því það er mjög fallegt og hefur margræða og djúpa merkingu eins og kemur fram í myndinni.“ Spurð út í hvort þessu stóra tæki- færi fylgi ekki mikil vinna og ákveðið stress segir Kristín: „Í raun ekki, þetta er bara mikil viðurkenning og það eru greinilega margir um allan heim sem tengja við efnið. Netflix sér líka um alla framkvæmd sbr. að þýða á öll tungumálin og auglýsa myndina á veitunni sinni á hverju svæði fyrir sig,“ útskýrir Kristín sem er afar spennt. Athugasemdir og „likes“ hrúgast inn Kristín áætlar að yfir 50.000 manns hafi núna séð Innsæi og þá er ótalið áhorf á Netflix sem veitan gefur ekki upp. Það gætu verið nokkrir tugir þúsunda í viðbót. „Rétt er að taka fram að langflestir eru erlendir áhorf- endur. Viðbrögðin hafa verið mjög nærandi fyrir okkur öll sem unnum að myndinni. Fólk virðist bregðast sterkt við boðskap myndarinnar og eftir að hún var frumsýnd í Norður- og Suður-Ameríku vorum við að fá 350-400 athugasemdir og „likes“ á Facebook-síðuna okkar daglega. Síðan hafa fjölmargir áhorfendur sent okkur tölvupóst með áhugaverðum sögum þeirra og löngun til að kynna efni myndarinnar í sínu landi eða í sinni borg. Og við Hrund höfum ferðast um Evrópu og Ameríku með fyrirlestra um myndina. Háskólasamfélögin í Banda- ríkjunum hafa líka sýnt myndinni mikinn áhuga.“ Spurð út í hvaða tilgang og tækifæri þær sjái í Innsæi segir Kristín: „Við viljum breiða út boðskap Innsæis um allan heim. Fá áhorfendur til að tengj- ast aftur við sitt innsæi í nútímasam- félagi þar sem hraði og stress ræður oft ríkjum. Við viljum minna fólk á að gefa innsæi sínu séns og leyfa því að vera með í stórum ákvörðunartökum í lífi okkar og starfi. Ekki einungis treysta bara á rökhugsun okkar. Við þurfum bæði innsæi og rökhugsun til að fun- kera rétt, þetta er eins og tveir ryþmar sem geta ekki verið án hvor annars. Við erum búin að einblína á rökhugsunina of lengi núna en við erum öll með haf- sjó af visku innra með okkur. Nýtum hana og njótum hennar. Þá fyrst fær sköpunargleði okkar að njóta sín.“ En Netflix er ekki eina efnisveitan sem Klikk Productions hefur gert samning við í tengslum við Innsæi. Nú þegar er hægt að leigja og kaupa Inn- sæi á efnisveitunni Vimeo on demand um allan heim nema í Bandaríkjunum og Kanada eins og sakir standa. Svo er einnig hægt að leigja og kaupa mynd- ina á streymisveitusvæði Amazon í þremur löndum; Bretlandi, Japan og Þýskalandi. Það er því ljóst að Innsæi er komin víða og þá er óhætt að segja að þær Kristín og Hrund hafa „meikað það“ með myndinni. gudnyhronn@365.is Hafa á heimsvísu Kristín Ólafsdóttir er framleiðandi og leikstjóri heimildarmyndarinnar Innsæi sem er fyrsta íslenska myndin sem fer á Netflix á heimsvísu. Kristín, sem leikstýrði myndinni með Hrund Gunnsteinsdóttur, er himinlifandi með árangurinn. Kristín Ólafsdóttir hefur gert samninga um dreifingu á Innsæi við nokkrar af stærstu efnisveitum heims, þar á meðal er Netflix. Við Vorum frökk að gefa Heimildar- mynd íslenskt Heiti sem enginn erlendis skilur og margir Héldu að Við mynd- um ekki geta selt Hana á erlenda markaði. telur sig hafa orðið fyrir hönnunarstuldi „Mér finnst sorglegt þegar fólk sér sig knúið til að stela hugmyndum annarra,“ segir eigandi Aftur, um þá staðreynd að nýverið komu í sölu peysur sem svipa mikið til hönnunar Aftur. Um er að ræða flíkur úr endurunnum efnisbútum. Þessi peysa er frá merkinu Aftur. Bára leggur áherslu á endur­ nýtingu í hönnun sinni. Þessi peysa kemur úr smiðju Thelmu. Þessi peysa þykir afar lík hönnun frá Aftur. snið, „second hand“-fatnað og fleira. Og ég var loksins að ganga frá því að kúnnar geti skilað inn eldri flík- um sem hægt er að nýta áfram. Allt sem sprottið er af minni vinnu og hönnun hefur verið þróað í samræmi við þau verkefni sem ég hef tekið að mér í samstarfi við önnur fyrirtæki, eða verkefnavinnu úr mínu námi, ásamt minni hugmyndafræði sem mig langar að innleiða á fata- markaðinn. Ég hef aðeins auglýst á samfélagsmiðlum brot af því nýja sem ég hef upp á að bjóða. Ef það fer eitthvað fyrir hjartað á Báru í Aftur að ég sé að vinna með notaðan fatnað og nýta yfir í nýjar flíkur, þá þykir mér það miður. É g b e r mikla virð- ingu fyrir Aftur, þeirra hugmynda- f r æ ð i o g þykir gaman að kíkja við [í búðina] ef ég fer til Íslands," segir Thelma. gudnyhronn @365.is að vernda sig gegn hugverkastuldi. „Þetta er alltaf erfitt og persónulegt málefni að taka, maður forðast þessa umræðu. En þetta er bara okkar „sig- nature“ Aftur hönnun sem um ræðir.“ Að lokum vill Bára árétta að henni þyki jákvætt þegar hönnuðir vinna með endurvinnslu. „Mér finnst alltaf gaman að sjá unga hönnði endur- vinna. En fólk verður að koma upp með sitt eigið, það er enginn frami í þessu ef maður ætlar bara að kópera. Þetta er ekkert hádramatískt, bara leiðinlegt.“ Ber mikla virðingu fyrir Aftur „Mér þykir leiðin- legt að heyra að mínar flíkur séu tengdar við svoleið- is umræðu,“ segir Thelma spurð út í málið. „Ég hef verið að vinna með sjálf- bæra hönnun núna síðastliðin tvö ár. Þá bæði með afgangs- efni, „zero waste“- fólk fer gjarnan út í að segja „þetta er ekki alveg eins, og svo framvegis“, því oft eru línurnar svo óskýrar og það er erfitt 6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R70 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð Lífið 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 2 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C F -9 F 4 0 1 C C F -9 E 0 4 1 C C F -9 C C 8 1 C C F -9 B 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.