Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 88
Ég hélt fyrstu myndlistar-sýninguna ellefu ára. Það var á Hólmavík þaðan sem ég er ættuð og á ömmu og afa. Við amma fórum að skoða útskornu fuglana hans Hafþórs Þórhallssonar sem bauð mér að setja upp sumar- sýningu í galleríinu sínu og seldi ég fimmtán myndir yfir sumarið,“ segir Ynja Mist og brosir að minn- ingunni. Sjálfstraust hennar óx líka í samræmi við undirtektirnar. „Þetta var mér mikils virði. Ég fékk mjög mikla trú á sjálfri mér og í kjölfarið bjó ég til leirskartgripi sem ég seldi fyrir framan Litlu jóla- búðina á Laugavegi. Ég á auðvelt með að fylgja draumum mínum, kannski vegna þess að orðið „seinna“ er varla til í minni hugsun þegar kemur að hugmyndum. Það þarf allt að gerast núna. Ég hef líka alltaf vitað hvert ég stefni og að ég er listamaður frá því ég var barn.“ Ynja stendur nú fyrir sinni fjórðu einkasýningu sem lýkur 13. maí í Bókasafni Kópavogs. „Það er mikil- vægt fyrir listamenn að sýna verk sín og ofsalega gaman að upplifa viðbrögð sýningargesta. Ég veit að margir á mínum aldri teikna en finna sig ekki vera orðna gildandi listamenn. Því þarf blöndu af djörf- ung og þori til að taka af skarið, ásamt sjálfstrausti og metnaði því það stýrir manni enginn né segir hvað á að gera. Sköpunarkrafturinn þarf að vera köllun og mikilvægt að vera opinn og þora að sýna allar hliðar; það sem manni fannst mis- heppnað og það sem tókst vel.” Náttúrumyndir voru viðfangsefni Ynju sem barn og andlitsmyndir á unglingsárunum. „Í dag vil ég að verk mín túlki það sem mér liggur á hjarta. Grunn- skólaheimsókn í Sorpu hafði varanleg áhrif á barnshugann og ég fór að hugsa mikið um endur- vinnslu og hvar ruslið sem ég henti lenti. Amma kallaði mig meira að segja Ynju Endurvinnslu því ég var alltaf að skamma fullorðna fólkið,“ segir Ynja og hlær dátt. Sýning hennar nú ber þessa einmitt merki en hún ber nafnið Hlýnun og snýst um hlýnun jarðar. „Fyrir mér er aðalvandamálið okkar eigin neysla, hvort sem það er alfarið eða að hluta til á okkar ábyrgð að veðurfar sé að breytast. Við hendum ógrynni af mat, fötum, húsgögnum og umbúðum. Sóunin sem á sér stað í nútíma samfélagi er gríðarleg. Til að hemja neysluna kaupi ég til dæmis aldrei mat í tvöföldum umbúðum og vel vörur eftir umbúðum, inni- haldi og framleiðsluaðferðum. Ég vel mér líka frekar föt sem endast lengi og forðast að nota einnota hluti eins og heitan eldinn. Ég hef miklar áhyggjur af plasti í sjónum og áhrifum þess á lífríkið og því fer mjög í taugarnar á mér þegar fólk setur ávexti og grænmeti í plast- poka þegar það þarf þess ekki. Ávextir, eins og til dæmis bananar, voru skapaðir í náttúrulegum umbúðum!“ Er löngu orðin fullorðin Ynja Mist er ekki við eina fjölina felld. Hún var tilnefnd sem íþrótta- kona Garðabæjar í ár, fékk verðlaun fyrir árangur sinn með Stjörnunni og segir líf sitt snúast um myndlist, kökuskreytingar og kraftlyftingar. „Ég réð mig í kökuskreytingar til Sætra synda þegar ég var sautján ára og skreyti þar enn þegar færi gefst. Ég kunni ekkert til að byrja með en ég er góð í höndunum og allt sem snýr að sköpun og handa- vinnu liggur vel fyrir mér,“ segir Ynja sem átti stóran þátt í uppbygg- ingu Sætra synda sem fyrsti starfs- maður bakarísins og tímir ekki að sleppa hendinni af starfinu þótt hún sé nýlega flutt til Kaupmanna- hafnar. Þar stefnir hún á nám í vöruhönnun við arkitekta- og hönnunarskólann KADK og býr ein því kærastinn stundar háskólanám heima á Íslandi. „Hér líður mér vel og finnst ekkert mál að vera ein. Ég held að það fari mjög eftir einstaklingum hvort þeir upplifi sig fullorðna um tvítugt. Sumum þykir enn gott að búa í foreldrahúsum en ég hef haft mikla sjálfstæðisþörf frá sextán ára aldri og vildi þá strax byrja að vinna fyrir mínum mat.“ Um helgina ætlar Ynja að koma sér fyrir í nýju íbúðinni og taka vakt á Big Bowl, sem er veitinga- og keilusalur. „Ég reyni að vinna sem minnst til að hafa tíma fyrir mynd- listina. Þá hafa kraftlyftingar setið á hakanum og ég þarf brátt að taka stærðfræðipróf í sendiráðinu til að komast inn í skólann. Ég var á myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ sem fer aðeins fram á tvo áfanga í stærðfræði en það dugar ekki til því margar listgreinar kalla á meiri stærðfræði.“ Ynja fór að mæta á æfingar í Sporthúsinu þegar hún var fimm- tán ára og heillaðist af lóðunum. „Ég fór æ meira út í kraftlyftingar og fannst skemmtilegt að ná meiri þyngdum. Með mér í FG voru strákar sem æfðu með Kraftlyft- ingafélagi Garðabæjar og hvöttu mig til að koma á æfingar. Ég sló til og hef verið þar eina stelpan síðan,“ segir Ynja sem á Íslandsmet í öllum lyftum í -57 kílóa flokki. „Metin mín á síðasta móti voru 100 kíló í hné- beygju, 107,5 kíló í réttstöðulyftu og 60 kíló í bekkpressu, en síðan hef ég bætt þyngdirnar talsvert,“ segir Ynja sem tekur þriggja tíma æfingar þrisvar í viku og teygjuæfingar þess á milli. „Jú, þetta er tímafrekt sport og skemmtilegt en myndlistin hefur alltaf forgang,“ segir hún brosmild. Ynja Mist opnar sýningu í Galleríi LAK á Akureyri í júlí. Sjá ynjaart. com og society6.com/ynjaart. Amma kallaði mig meira að segja Ynju Endurvinnslu því ég var alltaf að skamma full- orðna fólkið. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Fór í afdrifaríka skólaferð í Sorpu Kópavogsmærin Ynja Mist á engan sinn líka. Hún stendur á tvítugu, er nýflutt ein síns liðs til Kaupmannahafnar og er jafnvíg á myndlist, kraftlyftingar og kökuskreytingar. Ynja Mist er fædd 1996 en í þá daga þurftu foreldrar hennar leyfi frá mannanafnanefnd fyrir nafninu Ynja. KRAFTMIKIL UMRÆÐA UM PÓLITÍKINA OG LANDSMÁLIN MEÐ KRISTJÁNI KRISTJÁNSSYNI SUNNUDAGA MILLI KL. 10:00 12:00 SPRENGISANDUR Á BYLGJUNNI 333 krá dag* 365.is Sími 1817 *9.990.- á mánuði. 12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M a í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C F -E E 4 0 1 C C F -E D 0 4 1 C C F -E B C 8 1 C C F -E A 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.