Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 34
Mér finnst svona menn vera að leika guð. Þeir taka konu og ákveða að gera eitthvað við hana sem hún hefur ekkert um að segja. Taka valdið,“ segir Magnús Sveinsson um menn sem gerast sekir um kynferðisofbeldi. Þegar dóttir hans var fjórtán ára var henni nauðgað utandyra af sautján ára strák. Hann hlaut tveggja ára fang- elsisdóm og afplánaði um helming tímans. „Þetta gerðist á Bryggjuhátíð á Stokkseyri aðfaranótt 18. júlí 2010. Við vorum með henni fram yfir miðnætti en ákváðum svo að leyfa henni að vera aðeins lengur,“ segir Linda Björg Perludóttir, móðir stúlkunnar. „Upp úr tvö um nóttina vorum við vakin með þessu erfiða símtali. Lögreglumaður kynnti sig og sagðist hafa erfiðar fréttir að færa. Það liti út fyrir að dóttur okkar hefði verið nauðgað og við þyrftum að koma strax á lögreglustöðina,“ segir Linda. Allt ferlið var til fyrirmyndar hvað varðar dóttur hjónanna. Henni var ekið á Neyðarmóttöku fyrir þol- endur nauðgana í Fossvogi og fékk þar aðstoð og gert var að áverkum. Samkvæmt dómnum sem féll voru áverkar hennar m.a. blóðug hné. Þá var að finna sand og mold víðsvegar um líkama hennar og í fötum. Viku síðar var stúlkunni boðin sálfræðimeðferð í Barnahúsi sem hún nýtur enn góðs af þegar atvikið leitar á hana, sjö árum síðar. Foreldrarnir og eldri bróðir stúlk- unnar sátu hins vegar eftir í áfalli og þurftu að busla í djúpu lauginni, vanmáttug gagnvart ofbeldinu sem dóttir þeirra varð fyrir. Magnús var fullur af nærri óyfirstíganlegri reiði. „Það fyrsta sem ég bað um á lög- reglustöðinni var hvort ég fengi ekki bara tvær mínútur niðri í kjallara til að ræða við drenginn. Það verður allt svart. Ég veit ekki hvernig mæður upplifa þetta en ég varð gjörsamlega svartur af reiði. Það er eðlilegt. En í mínu tilfelli er svo slæmt að tilfinningin skuli ekki dofna,“ segir Magnús. Lítið unnið með reiðina Í bók Steinars Braga, Kötu, fer móðir af stað og hefnir fyrir það ofbeldi sem dóttir hennar varð fyrir. Aðal- söguhetjan framkvæmir í raun það sem flestir foreldrar segjast myndu gera, þ.e. að ganga verulega nærri þeim sem einhvern tíma voguðu sér að meiða börn þeirra. Það þekkja allir foreldrar þessa yfirnáttúrulega sterku tilfinningu, að vilja vernda barnið sitt. „Ég held að það sé ómæld og nánast ótæmandi reiði hjá manni. Partur af þessu er pínu sjálfsásökun. Ég gat ekki komið í veg fyrir þetta og finnst ég hafa brugðist sem foreldri. Þetta er litla stelpan mín og ég á að vernda hana en gat það ekki,“ segir Magnús. Linda tekur undir en bætir við að það sé ekki hægt að pakka börnunum sínum inn í bómull. „Nei, maður veit ekki hvaða bíll kemur á móti.“ Og í nærri sjö ár burðaðist Magn- ús með reiðina á milli sérfræðinga í þeirri von að honum gæti farið að líða betur. „Þegar ég fór að sofa var andlitið á drengnum og nafn hans það síðasta sem ég hugsaði um. Hann var svo það fyrsta sem ég hugsaði um á morgnana. Ég dæmdi fólk úr hans heimabæ sem ekki gott fólk og meira að segja óskaði þess að körfuboltaliði bæjarins, sem er að standa sig frábærlega, gengi illa.“ Í dag veit hann að þær hugsanir eru ekki réttlátar. Foreldrarnir fengu nokkra sál- fræðitíma á sjúkrahúsinu á Selfossi sem gagnaðist þeim lítið. Magnús fór til fjögurra sálfræðinga án nokk- urs árangurs þar til hann kynntist sálfræðingnum Önnu Kristínu New- ton síðastliðið haust. Það má segja að Anna hafi sérhæft sig í reiðum karlmönnum. Hún hefur meðal annars haft fanga, unga brotamenn og menn sem beita heimilisofbeldi í sálfræðimeðferð. „Mér fannst vanta sérhæfingu hjá hinum. Þeir sálfræðingar sem ég var fyrst sendur til voru ekki að tengja við mig eða ég ekki við þá. Ég lýsti því bara fyrir þeim að ég vildi taka drenginn og klára hann en í stað þess að unnið væri með reiðina fór tíminn frekar í að telja mér hug- hvarf. Tilfinningin var svona skotin niður með „nei nei, þú ætlar nú ekki að fara að gera það“. Í raun og veru var bara reynt að telja mér hughvarf í stað þess að vinna á lönguninni. Og svörin mín urðu bara eftir því sem sálfræðingurinn vildi heyra hverju sinni,“ segir Magnús. Linda segir að rökin um að hvorki honum né fjölskyldunni myndi líða neitt betur hafi eðlilega ekki bitið á. „Auðvitað vissi hann alveg að það Málinu er lokið en reiðin eftir Dóttur Magnúsar Sveinssonar og Lindu Bjargar Perludóttur var nauðgað. Málinu lauk með dómi en ekki fyrr en nú hefur Magnús fundið leið til að sigrast á reiðinni. Magnús Sveinsson og Linda Björg Perludóttir höfðu þörf fyrir meiri stuðning þegar dóttir þeirra var beitt ofbeldi fyrir sjö árum. Sá stuðningur er nú til staðar í stuðnings- hópi á vegum samtakanna Blátt áfram. FréttaBLaðið/Eyþór Anna Kristín Newton sálfræð- ingur hefur náð að sefa tilfinningar Magnúsar og koma honum á réttan kjöl. Hún kemur að fundunum sem aðstandendum býðst að sækja hjá Blátt áfram. „Flestir foreldrar sem lenda í því að barnið þeirra er beitt ofbeldi upplifa að þeir hafi brugðist þeim. Það er ekki endilega rökrétt hugsun en í sumum til- fellum er mikilvægt að hjálpa fólki að skoða þessar hugmyndir sem það hefur af sér.“ Hún segir að ekki megi vanmeta að stundum sé ekki rétti tíminn til að vinna úr áfalli. „Það er ekki hægt að vinna sig úr sorg á sex vikum. En það er lítið rætt um það að þegar fólk lendir í ofbeldi þá er ekki bara brota- þolinn og brotamaðurinn sem um ræðir, heldur hefur ofbeldið víðtæk áhrif.“ Magnús reyndi fjóra sálfræðinga áður en hann hóf meðferð hjá Önnu. Munurinn er að þar voru tilfinningarnar tæklaðar í stað þess að bægja þeim frá tímabundið. „Við viljum ekki lækna reiðina. Reiði hefur tilgang í réttu hlutfalli, á réttum tíma. Það er misskilningur að það eigi að taka reiðina burt en við viljum beina henni í rétta átt. Reiði er oft varnarviðbragð því fólk kann ekki að takast á við vondar til- finningar. Það er trix að kenna fólki að þekkja og stýra tilfinningum. Við þekkjum öll að hafa átt ömur- legan dag og koma heim og vera leiðinleg við maka okkar, þó hann eigi það ekki skilið. Það þarf að koma tilfinningum í réttan farveg.“ Hún hefur í gegnum tíðina m.a. aðstoðað menn sem beita ofbeldi. Hóp sem á það sammerkt að byrja inni mikla reiði. „Margir af þeim Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is Fleiri aðilar að ofbeldi en eingöngu gerandi og þolandi ↣ 6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R34 H e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 0 6 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 1 3 6 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C F -9 0 7 0 1 C C F -8 F 3 4 1 C C F -8 D F 8 1 C C F -8 C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 3 6 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.