Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 32
Fréttastofa 365
fylgist vel með
Þórhildur Þorkelsdóttir, frétta-
maður á Stöð 2, er stödd í
Frakklandi og gerir kosningunum
góð skil. Hún var líka í Frakklandi
þegar fyrri umferð kosninganna
fór fram. „Þetta eru sögulegar
kosningar fyrir margar sakir og
það verður spennandi að fylgjast
með hvernig sem fer. Lýðræðið
skiptir franskan almenning miklu
máli og þeir eru
ástríðufullir og
áhugasamir. Við
verðum á ferð-
inni alla helgina
og greinum
ítarlega frá
stöðu mála í
öllum okkar
miðlum,“
segir
Þórhildur.
meira í umhverfismálum og tækni-
framförum. Eitt stefnumála hans
er einnig að lækka fyrirtækjaskatt
úr 33,3 prósentum í 25 prósent. Le
Pen vill að franska ríkið reyni sem
mest að nýta sér þjónustu franskra
fyrirtækja í ríkis verkefnum. Hún vill
einnig lækka vexti á lánum til smá-
fyrirtækja.
Macron vill hafa sveigjanlegri
vinnuviku og halda sama aldri til
lífeyrissréttinda, en Le Pen vill lækka
aldurinn sem hægt er að þiggja líf-
eyri á úr 62 árum í 60 og halda 35
stunda vinnuvikunni. Le Pen vill
einnig refsa fyrirtækjum í formi
skatta fyrir að ráða erlent starfsfólk.
Báðir frambjóðendur vilja fjölga lög-
reglumönnum, en Le Pen vill fjölga
fangelsisplássum umtalsvert meira
en Macron.
Kosningarnar í Frakklandi eru þær
nýjustu í röð kosninga þar sem kosið
er um popúlísk málefni og um fram-
tíð Evrópusambandsins. Í Hollandi
náði flokkurinn með popúlísk gildi
ekki að tryggja sér sigur í mars.
Fyrstu niðurstöður munu liggja
fyrir um áttaleytið að staðartíma á
sunnudaginn. Sérfræðingar telja að
kjörsókn muni hafa mikil áhrif á nið-
urstöðuna. Kjörsókn í fyrri umferð
var heldur dræm, eða um 76 prósent.
Þar sem mánudagurinn er rauður
dagur hafa einhverjir áhyggjur af því
að það muni draga úr kosningaþátt-
töku.
Erfitt verður að meta hversu mikil
áhrif Macron eða Le Pen geta haft í
þinginu í kjölfar kosninga. Flokkur Le
Pen er núna einungis með tvo kjörna
þingmenn, og flokkur Macrons er nýr
og því ekki með neina. Áhrifin munu
skýrast þegar þingkosningar fara
fram í júnímánuði.
Næstu stóru kosningar í Evrópu
eru í lok september þegar kosið
verður um næsta kanslara Þýska-
lands. Kosningarnar í Frakklandi,
sem og í Þýskalandi, munu hafa tölu-
verð áhrif á áframhaldandi samstarf í
Evrópumálum.
Frakkland Önnur umferð forseta-
kosninganna í Frakklandi fer fram á
morgun. Þá fá Frakkar að kjósa milli
Emmanuels Macron, miðjumannsins
frá En Marche! flokknum, og Marine
Le Pen sem tilheyrir öfgahægri-
flokknum Þjóðfylkingunni. Forset-
inn er kosinn til fimm ára í senn.
Kosningarnar eru að mörgu leyti
sögulegar en þetta er í fyrsta skipti
frá 6. áratug síðustu aldar sem fram-
bjóðendur Repúblikana og Sósíal-
ista hljóta ekki nægt fylgi til þess
að komast áfram í aðalumferðina.
Niðurstöður fyrri umferðarinnar eru
taldar vera afar daprar fyrir vinstri-
vænginn í frönskum stjórnmálum.
Um 47 milljónir Frakka eru kjör-
gengar í þessum kosningum.
Á miðvikudagskvöld fóru fram
sjónvarpskappræður milli fram-
bjóðendanna tveggja sem áætlað er
að um 20 milljónir hafi horft á. Þær
voru taldar afar mikilvægar á þeim
tímapunkti þar sem áætlað var að
18 prósent kjósenda væru óákveðin.
Samkvæmt nýjustu könnunum er
Macron spáð öruggum sigri eða um
60 prósentum atkvæða. Ástæða þessa
er að talið er að Macron sem miðju-
miður geti laðað að sér atkvæði fjöl-
breyttari hóps en Le Pen. En vinstri-
menn í Frakklandi geta fæstir hugsað
sér að kjósa Le Pen.
Macron stóð uppi sem sigurvegari
fyrri umferðarinnar, með 23,8 pró-
senta fylgi, en þar með er ekki sagt
að hann muni sigra í seinni umferð-
inni. The Telegraph greinir frá því
að í þeim níu kosningum sem farið
hafa fram á síðustu fimmtíu árum
hafi frambjóðandinn með næstmesta
fylgið í fyrri kosningunum þrisvar
sinnum sigrað í seinni umferðinni.
Margir hafa einnig bent á að skoð-
anakannanir í aðdraganda kosninga
hafi ekki séð fyrir að Bretar myndu
kjósa að yfirgefa Evrópusambandið
né að Donald Trump yrði kjörinn
forseti Bandaríkjanna og því sé ekki
hægt að spá um úrslitin.
Ólíkir frambjóðendur bjóða fram til forseta. Emmanuel Macron er miðjumaður, en Marine Le Pen tilheyrir öfgahægriflokknum Þjóðfylkingunni. Spár segja að Macron hafi betur. NordicPhotoS/AFP
Úrslitin ráðast
á morgun
Kosið verður um
næsta forseta Frakk-
lands á morgun.
Tveir ólíkir fram-
bjóðendur, Marine
Le Pen og Emmanuel
Macron, boða ólíka
framtíð fyrir Frakk-
land. Macron er
mikill Evrópusinni
en Le Pen sem er
öfgahægrisinni boðar
lokaðra Frakkland.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
harðduglegir starfsmenn setja upp kjörklefa. NordicPhotoS/AFP
Greenpeace mótmæltu Marine Le Pen með því að hengja borða á Eiffel-turninn í gær. NordicPhotoS/AFP
Emmanuel Macron var einkar vel fagnað á baráttufundi. NordicPhotoS/AFP
Vísbendingar eru jafnframt um að
franskir kjósendur hafi misst trú á
hefðbundnum stjórnmálamönnum
og vilji róttækar breytingar. The
Guardian greinir frá því að könnun
hafi sýnt að 89 prósentum Frakka
finnist stjórnmálamenn ekki hlusta
á almenning.
Macron er sterkastur í þéttbýli.
Hann hlaut 34,8 prósent atkvæða
í París í fyrri umferðinni. Hann er
einnig vinsæll í norðvesturhluta
Frakklands. Le Pen gekk aftur á
móti mjög vel í norðausturhluta
Frakklands, en einnig fyrir sunnan,
í kringum Marseille. Þetta endur-
speglar svipaða stöðu og í Bretlandi
og Bandaríkjunum á síðasta ári, þar
sem Clinton var vinsæl í stórborgum
og Trump í dreifbýli, og þeir sem
studdu áframhaldandi aðild að Evr-
ópusambandinu bjuggu í borgum
Bretlands.
Þekktasta ágreiningsefni fram-
bjóðendanna tveggja er Evrópusam-
bandið. BBC greinir þó frá því að
margt annað sé ólíkt í stefnumálum
þeirra. Macron vill efla franska
hagkerfið. Hann vill skera niður
útgjöld ríkisins en einnig fjárfesta
6 . m a í 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r32 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-A
4
3
0
1
C
C
F
-A
2
F
4
1
C
C
F
-A
1
B
8
1
C
C
F
-A
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K