Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 46
Greta segir að það leynist mörg tækifæri í Eurovision-keppninni og sjálfsagt sé að
nýta þau. Keppnin hafi gefið henni
kost á að ferðast og halda tónleika
víða. Þar fyrir utan hafi hún kynnst
mörgu góðu fólki. „Ef maður grípur
tækifærið eru allir vegir færir,“ segir
hún. Það hafa verið annasamir
dagar og vikur hjá Gretu undan-
farið en hún er ákveðin í að reyna
eftir fremsta megni að fylgjast með
öllum þremur Eurovision-kvöld-
unum í næstu viku.
„Ég er að spila úti um allar triss-
ur,“ segir Greta þegar við slógum á
þráðinn til hennar. „Það er svo ótrú-
lega margt búið að gerast. Ég verð
með „show“ í Eldborg í Hörpu eftir
viku. Það er fyrir skipafélagið
Cele brity Cruise Line sem býður
upp á þessa sýningu fyrir sérstaka
VIP-gesti á þeirra vegum. Síðan
verð ég með tvenna tónleika í
Salnum í Kópavogi fyrir Oddfellow.
Auk þess spila ég mikið við alls
kyns fagnaði, afmæli, brúðkaup eða
jarðarfarir. Það er alltaf eitthvað að
gerast,“ segir Greta og bætir við að
fljótlega liggi leiðin til New York
þar sem hún mun syngja á tísku-
sýningu sem haldin er fyrir baráttu-
samtök gegn einelti sem nefnast
Unicef against bullying.
Á ferð og flugi
„Eftir New York-ferðina verð ég í
Danmörku áður en ég fer aftur um
borð í Disney-skemmtiferðaskip.
Ég býst við að fljúga fram og til
baka að mestu leyti þetta sumarið
í stað þess að vera alltaf um borð í
skipinu,“ segir hún. „Næstu mán-
uðir eru því þéttskipaðir hjá mér.
Ég verð með annan fótinn heima og
hinn í útlöndum. Þetta er æðislega
gaman og það eru algjör forréttindi
að fá að gera það sem manni finnst
skemmtilegast.“
Greta tók þátt í Eurovision-
keppninni í fyrra skiptið í Bakú árið
2012 og síðan aftur árið 2016. Hún
segir að strax eftir fyrri keppnina
hafi hún fundið fyrir auknum verk-
efnum. Disney-skipafélagið hafði
samband og bauð henni að vera
með sýningu um borð í skemmti-
ferðaskipinu Disney Magic en hún
sigldi með skipinu í meira en eitt
ár og síðan aftur með hléum. Það
gaf henni kost á ferðalögum um
heiminn á fljótandi fimm stjörnu
hóteli. „Ég ætla ekki að vera hjá
Disney af sama kraftinum og áður
enda svo margt annað að gerast
hjá mér. Til dæmis verð ég með
tónleika í Líbanon í sumar,“ segir
þessi kraftmikla söngkona og fiðlu-
leikari. „Ég er einhvern veginn úti
um allt.“
Svala toppar þetta
Greta segist hugsa mikið
til Svölu Björgvins
þessa dagana. Hún
veit hvernig dagar
hennar eru í
Kænugarði. „Við
erum góðar
vinkonur og
erum í miklu
sambandi. Við
hittumst áður
en hún fór út og
spjölluðum um
keppnina. Ég sagði
henni frá minni
reynslu og hvernig ég
hefði upplifað keppnina.
Svo gaf ég henni auðvitað eins góð
ráð og ég gat. Það er gott að miðla af
reynslu sinni en jafnframt benti ég
á að þessi keppni er óútreiknanleg.
Í raun getur maður ekkert gert
annað en að gera sitt besta á
sviðinu. Niðurstaðan í keppninni
er í annarra höndum,“ segir Greta
sem viðurkennir að það hafi verið
sárt að komast ekki í aðalkeppnina.
„Sérstaklega af því að við fengum
frábær viðbrögð á staðnum og
mikinn stuðning. Ég fann það líka
eftir úrslitin að mörgum fannst þau
ósanngjörn. Við fengum síðan ótrú-
lega mikla fjölmiðlaathygli vegna
þess að við komumst ekki áfram. Ég
náði að nýta mér þá athygli á réttan
hátt og hef fengið mörg tækifæri út
á það.“
Þegar Greta er spurð hvort hún
telji að Svala komist upp úr undan-
keppninni, segist hún ekki þora
að spá um það. „Það er algjörlega
ómögulegt að svara því. En það er
ekki nokkur vafi í mínum huga að
hún á eftir að skila sínu upp í topp.
Við þurfum að standa með henni
sama hver úrslitin verða. Ég hlakka
til að fylgjast með Svölu á þriðju-
daginn,“ segir Greta og bætir við
að hún gæti alveg hugsa sér að taka
aftur þátt í keppninni á réttum for-
sendum. „Ef rétta lagið kæmi upp í
hendurnar á mér.“
Nýtt lag á leiðinni
Greta ætlar ekki að vera með Euro-
vision-partí komandi laugardag.
Ástæðan er sú að hún verður með
Disney-tónleikana í Hörpu daginn
eftir. „Ég verð á stífum æfingum á
laugardeginum auk annarra verk-
efna. Hins vegar er búið að bjóða
mér í nokkur partí og aldrei að vita
nema ég reki nefið inn einhvers
staðar. En það verður líklega ekki
kósíkvöld hjá mér.“
Um þessa helgi ætlar
Greta að reyna að taka
smá kósíkvöld með
fjölskyldunni í
sumarbústað
við Laugarvatn.
„Ég verð með
tvenna tón-
leika í Salnum
í dag fyrir
Oddfellow. Á
eftir bruna ég
svo í bústaðinn.
Ég reikna með
að hlaupa smá í sveitinni og byggja
mig upp. Síðan grillum við eitthvað
gott,“ segir Greta en kærastinn,
Elvar Karlsson, fær þá aðeins að sjá
hana. „Hann er sjálfur mjög upp-
tekinn alla daga í námi og starfi.
Hann er að klára viðskiptafræði og
verðbréfamiðlun og rekur að auki
fyrirtæki.“
Greta er fyrir utan allt annað
að semja lög á fullu. Hún ætlar
að senda frá sér nýtt lag í sumar,
fjörugt lag sem hún vonast til að
verði sumarsmellur. Fyrir stuttu lék
hún með Eurovision-stjörnunni
Alexander Rybak í Eldborgarsal
Hörpu. „Það var æðislegt. Við
fengum frábær viðbrögð frá
áhorfendum. Alexander er mjög
hrifinn af Íslandi og honum fannst
tónlistarviðbrögðin hér æðisleg.
Hann hefur hug á að koma aftur.
Við erum í góðu sambandi og ég á
von á að við vinnum meira saman,“
segir Greta sem hlakkar mikið til
næstu viku.
Eurovision hefur veitt Gretu Salóme fjölmörg tækifæri sem hún hefði ekki annars fengið. MYND/GVA
Greta Salóme með
glæsilegt „show“ um borð í
Disney-skemmtiferðaskipi.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Framhald af forsíðu ➛
NETVERSLUN HEILSUHUSID.IS
Hollt og gott!
27.apríl – 8. maíFRÁBÆR
TILBOÐ
Sólgæti – ávallt gott verð og nú enn betra!
Verð áður: 449 kr.
Verð nú: 337 kr.
Verð áður:
500 gr 250 gr 125 gr 125 gr
100 gr
250 gr
500 gr
250 gr
250 gr
489 kr.
Verð nú:
367 kr.
Verð áður:
869 kr.
Verð nú:
652 kr.
Verð áður:
598 kr.
Verð nú:
449 kr.
Verð áður:
559 kr.
Verð nú:
419 kr.
Verð áður:
509 kr.
Verð nú:
382 kr.
Verð áður:
509 kr.
Verð nú:
382 kr.
Verð áður:
629 kr.
Verð nú:
472 kr.
Verð áður:
699 kr.
Verð nú:
525 kr.
Verð áður:
569 kr.
Verð nú:
427 kr.
Verð áður:
469 kr.
Verð nú:
352 kr.
Verð áður:
409 kr.
Verð nú:
307 kr.
Verð áður:
379 kr.
Verð nú:
284 kr.
25%
500 gr
500 gr
Verð áður:
589 kr.
Verð nú:
442 kr.
500 gr
500 gr
200 ml
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU SÓLGÆTI
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-D
A
8
0
1
C
C
F
-D
9
4
4
1
C
C
F
-D
8
0
8
1
C
C
F
-D
6
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K