Fréttablaðið - 06.05.2017, Qupperneq 50
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Tilurð þessarar bókar nær aftur til ársins 2008 þegar við gáfum út litla bók sem
hét 101 Ísland: áfangastaðir í
alfaraleið. Hún var byggð á þeirri
hugmynd að segja Íslendingum
frá minna þekktum áfangastöðum
vítt og breitt um landið en snið-
ganga þekkta áfangastaði. Lögð
var áhersla á greinargóðar leiðar-
lýsingar og að allir gætu komist
á staðinn,“ lýsir Páll Ásgeir en
nokkrum árum síðar var gefin út
uppfærð bók með 155 áfangastöð-
um. „Síðan var ákveðið að fjölga
enn áfangastöðum og bæta nú við
baðstöðum af öllu landinu, bæði
sundlaugum utan alfaraleiðar og
náttúrulaugum af einhverju tagi.“
Mælingar með kjöthitamæli
Síðastliðið sumar þvældist hann
því ásamt eiginkonu sinni, Rósu
Sigrúnu Jónsdóttur, um landið
með minnisbók, myndavél og kjöt-
hitamæli og skoðaði baðstaði af
ýmsum toga. „Konan mín er alltaf
með mér á þessum ferðalögum og
sér um vísindalegar rannsóknir
sem að þessu sinni fólust í því að
mæla hitann á laugunum með
kjöthitamæli,“ segir Páll Ásgeir
glettinn.
Þau skoðuðu sögulega staði,
náttúrulaugar en ekki síður gamlar
sundlaugar hér og þar sem hann
segir að séu ótrúlega víða opnar.
„Við skoðuðum miklu fleiri staði
en þá sextán sem komust í bókina.
Sumar laugarnar voru ekki nógu
heitar, eða nógu stórar til að baða
sig í. Þá eru sumar laugar á einka-
landi og í túnfætinum hjá fólki en
við vildum ekki vísa fólki á bað-
staði nema eigendur samþykktu
það.“
Heiðarleikapróf í gömlum
laugum
Hann segir verkefnið hafa verið
mjög skemmtilegt og að þau hafi
uppgötvað fjölmarga staði sem
þau vissu ekki að væru til. „Til
dæmis var ofboðslega gaman að
finna gamlar sundlaugar frammi í
afdölum sem ungmennafélög sveit-
anna byggðu fyrir 60 til 80 árum.
Í dag eru allir fluttir úr sveitinni,
laugarnar eru enn aðgengilegar en
enginn starfsmaður á staðnum. Í
staðinn er baukur í anddyrinu sem
fólk á að setja pening í. Fylgir þessu
einhver sérkennilegur eyðileiki
sem gaman er að upplifa og um
leið er þetta nokkurs konar heiðar-
leikapróf.“
Gamla laugin í Brautartungu
En eru einhverjir staðir sem standa
upp úr? „Nokkrir baðstaðir á
landinu eru alveg ógleymanlegir
vegna staðsetningar. Þar má nefna
laugina í Krossnesi sem er alveg
ofan í fjöru á stórkostlegum stað.
Einnig má nefna Hellulaug í Flóka-
lundi á Barðaströnd sem er alveg
niðri í fjöru. Þá má ég til með að
nefna sundlaug í Lundarreykja-
dal í Borgarfirði á stað sem heitir
Brautartunga. Hún er stórkostlega
falleg og gaman að koma í hana
enda er allt svo hreint og fallegt,
bæði laugin og búningsklefarnir,
og baukur í anddyrinu.“
Í fótspor Williams Lord Watts
Páll Ásgeir situr ekki auðum
höndum í sumar. Hann er þjóð-
þekktur fararstjóri og fer í fjöl-
margar ferðir sem slíkur en einnig
ferðast hann á eigin vegum. „Um
helgina er ég á leið upp á Snæfells-
jökul með hóp á vegum Ferða-
félags Íslands,“ segir hann en mest
hlakkar hann til ferðar sem hann
fer með litlum hópi fólks seinni
hluta júlímánaðar. „Þá fetum við
í fótspor Williams Lord Watts
sem fyrstur allra fór gangandi yfir
Vatnajökul árið 1875. Ég held að
þetta verði bæði mjög erfiður og
skemmtilegur leiðangur.“
Sérkennilegur eyðileiki
Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðaðist um landið síðastliðið sumar til að finna náttúrulaugar og gamlar
laugar sem eru á fárra vitorði. Frá þeim segir hann í bókinni 171 Ísland, áfangastaðir í alfaraleið.
Páll Ásgeir Ásgeirsson skoðaði fjölda
baðstaða um allt land síðastliðið
sumar. MYND/GVA
Sundlaugin í Brautartungu í Lundarreykjadal.
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
UPPLIFÐU FRELSIÐ!
UPPLIFÐU FRELSIÐ Á YAMAHA MÓTORHJÓLI
Yamaha mótorhjólin eru þekkt fyrir gæði og einstaka
hönnun. Við eigum örugglega rétta hjólið fyrir þig!
TRACER 700 TRACER 900
WR450R XSR700XT1200Z SUPER TÉNÉRÉ YZF-R1M
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . M A Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-E
9
5
0
1
C
C
F
-E
8
1
4
1
C
C
F
-E
6
D
8
1
C
C
F
-E
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K