Fréttablaðið - 06.05.2017, Síða 52
Jarðhnetusúpa
fyrir 4
Þessi dýrindis súpa er ein af dásemd-
um Gana í Vestur-Afríku og vinsæll
helgarmatur. Hún er gjarnan borin
fram með fufu (fæst í AfroZone) og
omutuo (hrísgrjónabollum).
1 dós Creamy Jumbo hnetusmjör
1 dós (70 g) tómatpuré
4 stórir og þroskaðir tómatar
2 stórir skalottlaukar
4 stórar gulrætur
Svolítið af brokkólíi (eða öðru græn-
meti að eigin vali)
Hvítlaukur (eins mikið og vill)
Fersk engiferrót (minna en meira ef
súpan á ekki að verða of sterk)
Salt og pipar
2 bollar sjóðandi vatn
Chilipipar
4-8 sveppir
Fiskur eða kjöt að eigin smekk
Magi/Jumbo fisk-, kjöt, eða græn-
metiskraftur
ATH! Creamy Jumbo hnetusmjör, 70
g tómatpuré, stórir skalottlaukar og
magi-kraftur fæst í AfroZone.
Mýkið tómatana í sjóðandi vatni,
takið af þeim hýðið og maukið
aldinkjötið. Setjið Creamy Jumbo
hnetusmjör í pott, tvo bolla af vatni,
helming af tómatpuréinu og nýlagað
tómatmaukið. Látið malla á miðl-
ungshita og hrærið í þar til hráefnið
er orðið brúnt með olíu á yfirborðinu
(í 15-25 mínútur.) Skerið kjúklinga-
kjötið í bita og gufusjóðið eða létt-
steikið í potti í 5 mínútur með salti
og stórum kraftkubbi. Takið hýðið
af engiferrót, skalottlauk og hvítlauk
og bætið saman við kjúklinginn.
Hrærið í hráefninu til að kjötið taki
í sig bragð. Setjið nú hnetusmjörs-
blönduna yfir kjúklinginn og bætið
við 2 bollum af vatni til viðbótar
ef þynna þarf súpuna. Látið sjóða í
20-30 mínútur og hrærið í af og til svo
festist ekki við botninn. Bætið við gul-
rótum og brokkólíi á seinni mínútum
suðunnar. Skreytið með fersku
spínati eða steinselju. Berið fram með
soðnum hrísgrjónum, hrísgrjóna-
bollum, fufu eða banku frá Gana.
Red red
fyrir 4
Ganabúar eru sólgnir í Red red.
Nafnið Rautt rautt er dregið af lit rétt-
arins sem er rauð kássa með rauðum
mjölbanönum. Patience er hrifin
af bragðsterkum mat og notar því
ferska tómata, hvítlauk, engiferrót,
lauka, tómatpuré og nautakjöt í sína
útgáfu en það gerir lit og bragð enn
ríkulegra. Í Red red eru oftast notaðar
augnbaunir (e. black-eyed peas) eða
aðrar kúabaunir sem finna má í Afro-
Zone. Útkoman er sannkölluð veisla!
4 stórir vel þroskaðir mjölbananar
500 g augnbaunir
Salt
Stór laukur
Ferskur hvítlaukur
Fersk engiferrót
Kjöt eða fiskur að eigin vali
1 dós (70g) Derica tómatpuré
200 ml rauð olía eða önnur græn-
metisolía
Chilipipar að vild
Magi fisk- eða kjötkraftur
Gari (búið til úr rótarhnýði cass-
ava-jurtarinnar)
ATH! Mjölbananar, augnbaunir og
aðrar kúabaunir, Derica tómat puré,
Sætar sælkerakrásir frá Gana
Efra-Breiðholt er suðupottur heimshornamenningar og þar er afrísk sæl-
kerabúð. Patience A. Karlsson reiðir fram vinsælasta helgarmatinn í Gana.
Ganabúinn Patience A. Karlsson er eigandi verslunarinnar Afro Zone í Hólagarði í Efra-Breiðholti. Hún varð ástfangin af Íslendingi sem var við túnfiskveiðar í
Gana fyrir fjórtán árum. Patience flytur inn brakandi ferska ávexti og grænmeti, ásamt freistandi og framandi hráefni í eldamennskuna frá Afríku. MYND/ERNIR
Red red er
vinsælasti aðal-
réttur Ganabúa
og sannkallað
gómsæti sem
hittir í mark á
kósíkvöldi.
Faðir Patience
er sólginn í
heimalagaðar
karamellur úr
niðursoðinni
mjólk enda ein-
stakt hnossgæti.
rauð grænmetisolía og gari fást í Afro-
Zone, Lóuhólum 2-6.
Hreinsið baunir og látið í pott með
vatni sem nær minnst þumlung
yfir. Sjóðið í klukkustund eða þar til
mjúkar. Skerið lauk og annað hrá-
meti. Blandið hluta af því við kjötið
ásamt salti og krafti. Látið sjóða í 2
mínútur. Hitið næst olíu á pönnu og
snöggsteikið soðið kjötið í um 2 mín-
útur. Fjarlægið nú kjötið, kælið olíuna
aðeins og steikið upp úr henni lauk,
hvítlauk og engifer í um hálfa mínútu.
Setjið tómatpuré út á pönnuna og
hrærið þar til verður rautt, bætið þá
við ferskum tómötum. Bætið við
krafti og kjöti og eldið á miðlungs-
hita til að byrja með en síðan er látið
malla á lágum hita í 5-10 mínútur.
Bætið að síðustu soðnum baunum
saman við, saltið og látið malla á
lágum hita á meðan bananar eru
undirbúnir.
Mjölbananar
Fjarlægið bananahýðið, snyrtið
bananana og skerið í litla bita.
Saltið lítillega. Hellið olíu á pönnu,
um hálfan þumlung á dýpt, og
steikið bananabitana á miðlungs-
hita. Hrærið og veltið til svo bitarnir
brúnist vel. Takið þá af pönnunni
og þerrið á eldhúspappír eða grind.
Berið fram með kássunni. Skreytið
með gari líkt og gert er með parmes-
anost á pitsu eða notið sem meðlæti
sem vætt er í vatni.
ATH! Sleppa má olíu, skera bananana
smærra og sjóða í saltvatni í 5-10
mínútur eða rista í ofni í 5-10 mínútur
á 200°C.
Einnig er Red red gómsætt sem
grænmetisréttur með því að sleppa
kjöti eða fiski.
Karamellur úr
niðursoðinni mjólk
Ganamenn eru lítt gefnir fyrir
sælgæti og líta á það sem verðlaun
fyrir krakka. Í Gana er flestur matur
heimaunninn og á það líka við um
sætindi. Patience telur það vera vegna
þess að ódýrara er að kaupa dós af
niðursoðinni mjólk til að gera heima-
gerðar karamellur en að kaupa þær
innfluttar. Karamellurnar innihaldi
minni sykur en bragðist jafnvel enn
betur. „Ungir krakkar taka gjarnan
upp á því að kaupa niðursoðna
mjólk fyrir vasapeninginn og búa til
karamellur sem þeir selja svo skóla-
systkinum sínum undir borðið. En
þótt krakkar séu sannarlega sólgnir í
karamellurnar er pabbi minn vitlaus í
þær líka. Þær eru ljúffengt laugardags-
nammi,“ segir Patience.
1 dós niðursoðin mjólk
1 msk. smjör
Panna og trésleif
Bræðið smjör á miðlungsheitri
pönnu. Hellið niðursoðnu mjólkinni
yfir bráðið smjörið og hrærið í
stöðugt í 10-15 mínútur. Takið af
hitanum þegar karamellan er orðin
brún og hægt að snúa við kaldri skeið
án þess að karamellan detti af. Mótið
að vild og njótið! Berið fram með kaffi
eða kaldri mjólk.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . m A í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
F
-D
5
9
0
1
C
C
F
-D
4
5
4
1
C
C
F
-D
3
1
8
1
C
C
F
-D
1
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K